Mynd: Aðalsteinn Kjartansson

Frelsið rætt í einræðisríki soldáns

„Af hverju þurfum við rétt­indi?“ spyr Ómani á meðan annar hlær að hug­mynd­inni um lýð­veldi á Arab­íu­skaga. Alþjóð­leg hreyf­ing stétt­ar­fé­laga blaða­manna fund­aði í ein­ræð­is­rík­inu Óman; þar sem frjáls fjöl­miðlun er ekki til og mál­frelsi veru­lega tak­markað.

„Við erum öll menntuð í Banda­ríkj­unum. Ég er með meistara­gráðu í sam­skiptum, hún er sál­fræð­ingur og svo er líka verk­fræð­ingur hérna,“ segir Abdullah, afgreiðslu­mað­ur­inn í Vodafone-versl­un­inni í hinni glæ­nýju og marm­ara­þöktu versl­un­ar­mið­stöð Mall of Oman. Hingað var ég sendur til að flýja sól­ina sem skín um það bil beint yfir höfði mér, svo að varla fellur skuggi á jörð­ina. Ég átti líka erindi hingað enda, eins og starfs­maður Hringdu hafði útskýrt fyrir mér áður en ég flaug af stað, yrði ég lík­lega per­sónu­lega gjald­þrota ef ég ætl­aði mér að nota íslenska sím­kortið mitt í Óman. Það var vesen að fá sím­kort og því end­aði ég á að verja góðum klukku­tíma í þess­ari verslun. Fyrir vikið gafst tæki­færi á að spjalla við starfs­fólkið, sem útskýrði meðal ann­ars að þau hefðu öll verið send erlendis í nám á vegum ómanska rík­is­ins. Eða sold­áns­ins öllu heldur. Allt er gert í hans nafni og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár