Undið af veruleikum

Hin franska Claire Paugam, sýn­ing­ar­stýrir útskrift­ar­sýn­ingu mastersnema Lista­há­skól­ans sem haldin er í Nýlista­safn­inu í Mars­hall­hús­inu úti á Granda. „Ég hugs­aði bara, þetta er það sem ég vil gera við líf mitt,“ segir Claire um val sitt á starfs­vett­vangi en útsend­ing í franska sjón­varp­inu á ung­lings­árum hennar þar sem sýnt var frá sýn­ing­ar­stjóra setja upp sýn­ingu í Pompidou safn­inu í París varð kveikjan.

Undið af veruleikum
Rýmið nýtt Rými Nýlista­safns­ins í Mars­hall­hús­inu nýt­ist vel fyrir stóra skúlp­t­úra útskrift­ar­nem­anna.

„Mig hefur alltaf langað til að sýn­inga­stýra útskrift­ar­sýn­ingu”, segir Claire Paugam, sem gerði einmitt það og sýn­ing­ar­stýrði útskrift­ar­sýn­ingu mastersnema Lista­há­skól­ans. Sýningin ber heitið Undið af veru­leikum. Claire er fædd í Frakk­landi en kom hingað til lands til þess að fara í MA námið í  fyrr­nefndum Lista­há­skóla, þaðan sem hún lauk námi árið 2016. Eftir námið tók hún þátt í alls konar verk­efnum um allan heim en kom aftur til lands­ins fyrir eitt slíkt og átt­aði sig þá á að hér ætti hún að vera. „Það klikk­aði bara eitt­hvað. Það var dásam­leg til­finn­ing,“ lýsir Claire.

Claire skil­greinir sig sem mynd­list­ar­mann/sýn­ing­ar­stjóra. Stærsta sýn­ingin sem hún hefur stýrt er lík­lega Vestur í blá­inn árið 2020 sem fjall­aði um inn­flytj­endur á Íslandi. „Sýningin dreifð­ist um tíu sýn­ing­ar­staði í Reykja­vík. Ég var að vinna með vini mínum, tón­list­ar­manni, sem hann­aði tón­heim með inn­flytj­endum sem sögðu sögur á sínu móð­ur­máli, og auð­vitað mynd­list­ar­mönnum sem túlk­uðu þema sýn­ing­ar­innar á sinn hátt.“ 

Sameiginlegur grunnur

Útskrift­ar­sýn­ing Lista­há­skól­anum er frá­brugðin hefð­bundnum sam­sýn­ingum vegna þess að sýn­ing­ar­stjór­inn velur ekki hóp­inn - og er ekki með fyr­ir­fram ákveðið umfjöll­un­ar­efni. „Það er auð­vitað stærsta áskor­unin og besti part­ur­inn, að velja ekki lista­menn­ina. Hvernig get­urðu verið nógu hug­mynda­ríkur til að tengja allt saman? Finna sam­eig­in­legan grunn og láta allt virka,“ lýsir Claire og heldur áfram, „það er svoldið eins og vinna aftur á bak. Snýst mikið um að upp­götva list­sköpun hvers nem­anda. Ég bjó til kort með öllum þemunum og per­sónu­leikum nem­end­anna og velti fyrir mér hvað tengdi þau saman.“ Hún lýsir því að það sé alltaf hægt að finna ein­hvern sam­eig­in­legan grunn. „Ég lék mér líka með að setja verk saman sem voru ótrú­lega ólík, að þau rekast næstum því á sjón­rænt, en ná þannig að tengj­ast saman.“ Claire vísar í verk Jasa Baka og Melanie Ubaldo sem dæmi. Verk þeirra eru hlið við hlið, en verk Jösu er mósaík gos­brunnur, mjög við­kvæmt og lit­ríkt verk sem hefur verið nostrað við, á meðan verk Melanie er stór kassi smíð­aður úr berum viði. Inní kass­anum eru vel valdir hlutir úr heim­ili móður Melanie. Vatn seytlar í gos­brunni Jösu og vatns­hljóðið stemmir við mynd­bands­verk Elnaz Mansouri skammt frá sem sýna m.a. brunn og her­bergi hálf­fullt af vatni.

Ástríður og þráhyggjur

Annað sem er ólíkt með útskrift­ar­sýn­ingum og öðrum sam­sýn­ingum er að nem­end­urnir hafa verið að sjóða saman í potti síð­ast­liðin tvö ár. Það hlýtur að hafa mikið að segja um útkom­una. Oft eru verk á útskrift­ar­sýn­ingum lík, kannski eðli­legt vegna þess að lista­menn­irnir hafa farið í gegnum þennan tíma saman sem eitt­hvað ákveðið er í gangi í sam­fé­lag­inu, taka sömu kúr­s­ana og sömu umræður sem skap­ast. „Ég er viss um að það hafi ein­hvers konar áhrif. Ég sá skýra teng­ingu á milli nem­end­anna en ég er ekki viss um að þau hafi séð hana sjálf. Ég kom seint inn í ferlið svo ég hafði meiri fjar­lægð frá því sem hafði verið í gangi áður.“ Claire fylgdi nem­end­unum frá einka­sýn­ing­unum sínum að sam­sýn­ing­unni. „Það kom mér skemmti­lega á óvart, að þótt allir hafi verið saman í bekk og unnið náið saman síð­ustu tvö ár, þá var hver og ein list­iðkun ein­stök og ólík. Ekki svipuð í tengslum við efni eða sjón­ræna fag­ur­fræði. Það er svo gaman að sjá nem­endur dýfa sér ofan í ástríður og þrá­hyggjur sínar, það er það sem gerir allt per­sónu­legt í lokin.“

Ástríður og þrá­hyggjurÚtskrift­ar­nem­arnir köf­uðu djúpt við vinnslu verka sinna.

Samþykki er lykillinn

Sýn­ing­ar­stjórar eru jafn mis­jafnir og þeir eru margir. Eins og komið hefur fram er Claire bæði mynd­list­ar­maður og sýn­ing­ar­stjóri, svo hún hefur verið báðum megin við borðið. „Fyrir mig er það ótrú­lega mik­il­vægt að sýn­ing­ar­stjór­inn hafi skiln­ing á verk­unum. Að eiga í sam­tali við lista­menn­ina svo þema sýn­ing­ar­innar passi þeim og hvernig þeir líta á sína list. Ég vil ekki svíkja lista­mann­inn á neinn hátt.“ Claire byrjar alltaf á að hafa fund með öllum lista­mönn­unum, sér­stak­lega ef þeir þekkj­ast ekki inn­byrðis fyrir og skapa lítið sam­fé­lag í kringum sýn­ing­una. Búa til góða stemn­ingu. „Ég hef tekið þátt í stórum sam­sýn­ingum þar sem sýn­ing­ar­stjór­inn spyr mann ekki alltaf um sam­þykki, til dæmis til þess að ramma inn verkið manns eða setja það á ein­hvern vegg án þess að spyrja. Fyrir mér er það algert no-no. Ég passa upp á að vera með lista­mann­inum eins mikið og hægt er, alla leið niður í stað­setn­ingu á merki­mið­anum. Það er svo mik­il­vægt að lista­mað­ur­inn taki þátt í þessum atriðum, þá er hægt að segj­ast treysta sýn­ing­ar­stjór­anum... eða ekki, en spurn­ingin þarf alltaf að vera til staðar.“

Góð stemning

Hill­billy reynir oft­ast að vera í góðri stemn­ingu og greip orð Claire á lofti um gott and­rúms­loft við und­ir­bún­ing sýn­inga. Hvernig var and­inn við gerð útskrift­ar­sýn­ing­ar­innar? „Á þess­ari sýn­ingu fannst mér and­inn mjög góður, frá mínu sjón­ar­horni alla­vega. Það gekk allt mjög smurt, frá því að kynn­ast nem­end­unum, verk­unum og að upp­setn­ing­unni í rým­inu. Auðvitað er útskrift alltaf stórt skref sem fylgir oft mikið stress, meira stress en í kringum aðrar sam­sýn­ingar held ég.“ Lítill fugl hvísl­aði að Hill­billy að Claire hafi haldið ró sinni í gegnum allt ferlið. „Það er bara mitt starf að vera mann­eskja sem mynd­list­ar­menn­irnir treysta. Ég vil ekki bæta við stressi. Stundum þarf ég auð­vitað að segja stressandi hluti eins og til dæmis að biðja lista­mann um að ákveða titil á verkið sitt... í dag! En það er mik­il­vægt að sýna öllum að mér sé treystandi, og að ég treysti öllum fyrir sínu. Ég fann ekki fyrir neinu stressi fyrr en allra síð­ustu dag­ana, en þeir eru alltaf stressandi.“ Hill­billy sam­mælist Claire um að það sé alltaf eitt­hvað sem kemur upp rétt fyrir dea­d­line. „Það koma alltaf upp ein­hver vanda­mál á síð­ustu stundu, ég bara beið spennt eftir hvað kæmi upp í þetta sinn!“.

Litatengingar

Hill­billy reyndi að finna teng­ingar þegar hún steig inn í rýmið og ein slík var lita­teng­ing á milli verka. „Já, það var mjög áhuga­vert, ég byrj­aði að sjá það líka í lokin,” segir Claire. „Margar ákvarð­anir voru teknar frekar seint, ég sá til dæmis ekki verk Yuhua Bao fyrr en hún kom með verkin í Nýló, en það eru níu kubbar; blóm frá Kína inní þrí­vídd­ar­prent­uðum kubbum, svo­kall­aðir drauma­fang­arar.“ Litlu skúlp­t­úr­arnir voru sægrænir og tengj­ast lita­lega séð verki Freyju Reyn­is­dóttur, tveimur kössum sem standa á gólf­inu á móti hvorum öðrum (og á milli þeirra skap­ast töfrar). Verk Tinnu Guð­munds­dóttur er umfangs­mik­ill skúlp­túr þar sem sægrænir kaðlar spila stórt hlut­verk og Maria Sideva saum­aði setn­ing­una Býflugur búa til hun­ang í sitt verk með þræði í sama lit.

TöfrarVerk Freyju Reyn­is­dóttur, tveir kassar, skapar töfra.

Ólíkir raunveruleikar

Titill sýn­ing­ar­innar, Undið af veru­leikum (e. Unra­vell­ing Rea­lities), kom til Claire eftir miklar pæl­ingar. „Mér fannst öll verkin tengd í gegnum raun­veru­leika á ein­hvern hátt. Það er eng­inn að gera skáld­skap­ar­heim. Öll verkin eru byggð á ein­hverri athugun, raun­veru­legum upp­lif­unum, eitt­hvað svo jarð­tengd.“ Claire minn­ist á verk Ragn­hildar Weisshappel, Hill­billy systur, sem sýnir mynd­bands- og hljóð­verk af vind­sokk að dansa og syngja í vind­inum. „Verkið er ein­fald­lega um vind­inn og að finna fyrir vind­inum; að skoða vind­inn sem vind,“ segir Claire. Einnig nefnir hún verk Patryk Wilks um kvíða, sem er líka í raun­veru­leik­anum. „Svo kom orðið Undið af (e. Unra­vell­ing) til mín, þessar djúpu til­finn­ingar sem koma saman með verk­unum. Það er verið að vinda af ein­hverju á sýn­ing­unni, vinda af nám­inu, allt er að koma saman meira og meira.“

Listamannarekið rými

Sýningin er haldin í Nýlista­safn­inu í Mars­hall­hús­inu úti á Granda. „Það er dásam­legt rými. Margir voru hræddir um að það væri ekki nógu stórt fyrir sýn­ing­una, því aldrei hafa jafn margir útskrif­ast úr MA nám­inu og í ár. Ég hafði aldrei áhyggjur af pláss­leysi. Þetta er svo frá­bært rými, svo mikil birta og arki­tekt­úr­inn skemmti­legur - þú gengur gegnum gang inn í stórt rými og svo beyg­ist það, maður sér ekki allt strax þegar gengið er inn.“ Verk Patryks og Arnþórs Ævar­sonar (Adda), njóta sín vel inn­ar­lega í Nýló þar sem er 7 metra loft­hæð. Martha Haywood nýtti sér einnig rýmið og kom fyrir papp­írsskúlp­túr, stóru býflugna­búi uppí loft Nýló og fín­gerðum skúlp­túr yfir alla glugga á hlið safns­ins.

„Sam­starfið milli Lista­há­skól­ans og Nýló er líka skemmti­legt. Nýló er lista­manna­rekið safn sem tekur á móti útskrift­ar­nemum. Þau geta sett sig í spor nem­end­anna, sem eru að byrja fer­il­inn sinn og vilja móta sína list­sköpun.”

Að umbreyta rými

Ástæða Claire í stuttu máli fyrir að velja mynd­list sem aðal­starf sitt varð til þegar hún var ung­lingur að horfa á sjón­varpið. „Það var lista­maður að setja upp sýn­ingu í Pompidou safn­inu í París. Hún var að leika sér með rýmið, setja skúlp­t­úrana sína upp í salnum, að finna rétta stað­inn fyrir verkin. Og ég hugs­aði bara, þetta er það sem ég vil gera við líf mitt.“ Hill­billy finnst þetta mjög áhuga­vert, maður sér ekki nógu oft, í línu­legri dag­skrá, lista­mann í þessu ferli. Oft er frekar sýnt frá vinnu­stof­unni og af sýn­ingu. En ferlið þar sem sýn­ingin er sett upp er oft­ast nær undir hulu. „Þetta móment að finna þína leið og umbreyta hvítum kassa í eitt­hvað per­sónu­legt“, segir Claire Paugnam að lokum.

Sýn­ing­unni lýkur 5. júní 2022, þann sama dag er lista­manna­spjall kl 15:00, kaffi og meððí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár