Varar fólk við dimmum íbúðum í nýjum hverfum

Ekkert hámark er á þéttingu byggðar nærri Borgar­línu. Ásta Loga­dóttir, einn helsti sérfræðingur í ljósvist á Íslandi, reynir að fá sólarljós og dagsbirtu bundna inn í byggingar­reglu­gerðina. Hún segir það hafa verið sett í hendurnar á almenningi að gæta þess að kaupa ekki fasteignir án heilsu­samlegs magns af dagsbirtu.

Greinir ljós og skugga
Greinir ljós og skugga Eftir að hafa starfað í Danmörku varð Ásta Loga­dóttir verk­fræð­ingur þess áskynja að Íslend­ingar hafa inn­byggt hömlu­leysi í byggð­ar­þétt­ingu í reglu­gerðir. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Íbúar í nýrri, þéttri byggð í Reykjavík og Kópavogi geta margir átt von á því að mun meira myrkur verði á heimili þeirra en almennt hefur þekkst á Íslandi hingað til. 

Verk­fræðingurinn Ásta Loga­dóttir, einn helsti sérfræðingur landsins í svokallaðri ljósvist, sem lýsir því hvernig dagsbirta og sólarljós berst að byggingum og inn í þær, hefur áhyggjur af heilsufars­legum áhrifum þéttingar byggðar, þótt hún telji þéttingu byggðar mikilvæga „ef hún er gerð á réttan hátt“.

Ásta hefur beitt sér fyrir því að byggingar­reglugerð verði uppfærð til að taka mið af ljósvist, fremur en eingöngu hljóðvist, eins og nú er. Hún segir að eftir þéttingu byggðar hafi ábyrgðin verið sett yfir á almenning að velja sér húsnæði sem vinnur ekki gegn heilsunni.

Munur á Íslandi og Danmörku

„Reglu­verkið okkar passar engan veginn upp á gæðin hvað varðar dagsljós,“ segir Ásta. Áhyggjur hennar af íslensku skipulagi uxu með …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sveinn Ingólfsson skrifaði
    Hörmulegt að svona hrikaleg mistök geti átt sér stað. Algerlega óhæft fólk sem stjórnar þessum málum hjá sveitarfélögunum. Í raun og veru er verið að misþyrma tilvonandi íbúum þessarra fjölbýlishúsa ef þá einhverjir neyðast til að flytja inn í þau vegna þess að þeir hafa ekki annarra kosta völ. Í raun og veru er þetta mannvonska þó stjórnmálafólkið geri sér ekki grein fyrir því.
    1
  • Jóhannes Ragnarsson skrifaði
    Þarna er fjallað um einhver helstu afreksverk krataeðilsfrömuðanna Dags bé og Hjalla nokkurs, sem kenndur er við holur, einkum holur á götum borgarinnar sem ku vera í milljonatali úr um allan bæ.
    -2
  • Elísabet Jónsdóttir skrifaði
    held að við verðum að fara að skoða þessi mál mun betur
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár