Hvað vill Framsókn eiginlega í borginni og hverjir eru sammála?

Fram­sóknarfólk með Einar Þorsteinsson í broddi fylkingar þarf á endanum að beygja annað hvort til hægri eða vinstri, ætli flokkurinn sér í meirihluta. Málefnin ráða för, segir hann, en hvaða afstöðu hefur flokkurinn og hvar er samhljómur?

Flest gæti gengið vel á komandi kjör­tímabili og eru samstaða um mörg lykilmál, samkvæmt svörum fram­bjóðenda flokkanna í Kosninga­prófi Stundarinnar. Átaka­línurnar eru þó til staðar og hverfast um húsnæðis­uppbyggingu, þéttingar­stefnuna og samgöngur.

Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar­flokksins, ætlar sér að tala við alla oddvitana áður en ákvörðun verður tekin um formlegar meirihluta­viðræður. Hann hefur margsagt að málefnin ráði för. Flokkurinn hans er þó í ökumanns­sætinu og þarf á endanum að taka af skarið og beygja annaðhvort til hægri eða vinstri. En hver er afstaða Einars og Framsóknar­félaga hans í stóru átaka­málunum í borginni og hverjir eru sammála þeim?

Svörin má sjá í Kosninga­prófi Stundarinnar sem fulltrúar flokkanna þreyttu í aðdrag­anda kosninga. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár