Mynd: Heiða Helgadóttir

„Við vorum mæðgur - ekki vinkonur“

Elísabet Jök­uls­dóttir um týpu­á­lag, dag­bók móður sinnar og bók­ina sem hún skrif­aði um þær. Bók sem væri lýst sem bók um mæðgur í útlöndum. Á Íslandi verður hún alltaf bókin um Jóhönnu og Elísa­betu.

Það er apr­ílsól­ar­hiti í Hvera­gerði þegar við hitt­umst í mat­sal Heilsu­hæl­is­ins við Elísabet Jök­uls­dóttir. Það er fiskur í mat­inn. Elísabet er í heilsu­bót­ar­inn­lögn í Hvera­gerði, stein­snar frá heim­ili sínu í bænum reyndar. Og eins og við komumst að er Elísabet langt í frá ein um að hafa flutt í bæinn á síð­ustu árum. Við borðið okkar situr fast­eigna­sali í Hvera­gerði sem fræðir okkur um það. 

Ég veit ekki hvort það sé ósvífið af mér að setja það fram svona, en það hentar frá­sögn­inni: Elísabet Jök­uls­dóttir hefur á und­an­förnum árum hlotið verð­skuld­aða við­ur­kenn­ingu; Bók­mennta­verð­laun, Fjöru­verð­laun, til­nefn­ingu til Bók­mennta­verð­launa Norð­ur­landa­ráðs og til­heyr­andi boð á Bessa­staði, en á sama tíma hefur heilsu hennar hrakað svo mjög að lífi hennar stendur ógn af því. Hvers vegna? Jú, vegna þess að hún fékk ekki við­ur­kenn­ingu á því sem hún fann þó best sjálf; að eitt­hvað væri að.

Elísabet er með nýrna­bilun á loka­stigi. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigríður Einarsdóttir skrifaði
    Er ekki hægt að bjarga þessari æðislegu konu.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár