Ólíkar áherslur oddvita varðandi leigumarkað: „Eigum við að eltast endalaust við leigusala?“

Fram­bjóð­endur í odd­vita­kapp­ræðum Stund­ar­innar höfðu ólíkar áherslur varð­andi ákall um aðgerðir til að bæta leigu­mark­að­inn. Sumir sögðu hinn almenna markað hafa brugð­ist og að borgin þurfi að stíga inn í á meðan aðrir vildu ekki slík afskipti af mark­aði. Sitjandi borg­ar­stjóri sem sagði að nú þegar væri leigu­þak á óhagn­að­ar­drifnu leigu­fé­lög­unum.

Ólíkar áherslur oddvita varðandi leigumarkað: „Eigum við að eltast endalaust við leigusala?“
Ólík sýn á stöðu leigj­enda Oddvitar flokk­anna sem bjóða fram til borg­ar­stjórnar í Reykja­vík höfðu ólíka sýn á stöðu leigj­enda í kapp­ræðum Stund­ar­innar síð­ast­liðin mið­viku­dag. Þeir virt­ust sam­mála um að staða leigj­enda væri ekki góð en greindi í stórum dráttum á um hvort hið opin­bera ætti eða þyrfti að hlut­ast til um það, umfram það að skipu­leggja og leggja til rými undir fast­eignir. Mynd: Stundin / Jón Ingi

Í kapp­ræðum Stund­ar­innar komu fram ólíkar áherslur odd­vita þeirra flokka sem eru nú í meiri-og minni­hluta borg­ar­stjórnar, sér­stak­lega er varðar beina íhlutun inn á leigu­mark­að­inn, það hvort borgin ætti að vera „ger­andi“ á almennum leigu­mark­aði eins og Líf Magneu­dóttir, odd­viti Vinstri­hreyf­ing­ar­innar-græns fram­boðs, orð­aði það.

„Þessi mark­aður hefur fengið séns og hann hefur brugð­ist þannig að við þurfum að stíga inn,“ sagði hún og Ómar Jónsson, odd­viti Mið­flokks­ins, tók í sama streng og bætti við að hinn frjálsi mark­aður og borgin hefðu „brugð­ist“ íbúum borg­ar­innar og að þegar „ófremd­ar­á­stand“ ríkti á frjálsum mark­aði hefðu bæði ríki og sveit­ar­fé­lög stjórn­tæki til þess að koma inn á hann. „Vegna þess að þau eiga fyrst og fremst að vera að verja hags­muni íbú­anna, ekki ann­arra eins og til dæmis fjár­magns­eig­anda sem hafa verið að safna til sín eignum.“  

Stuttu áður hafði Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, odd­viti Við­reisnar í borg­inni, lýst því yfir að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Það átti aldrei að leggja niður Byggingarfélag verkamanna, á meðan það var og hét réðu allir við kostnaðinn og eignuðust svo íbúðirnar.
    0
  • Óskar Guðmundsson skrifaði
    Ath verður að fyrstu tvö skrefin í markaðsvæðingu húsnæðis eru stigin af Reykjavíkurborg og felast í uppboði lóða og innheimtu á tvöföldu innviðagjaldi.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2022

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár