Samfélagið sem samþykkti að leita ekki eftir samþykki

Bækurnar Vanessa mín myrka og Samþykki byggja báðar á reynslu höf­unda, beint eða óbeint, og fjalla um hvernig barn­a­níð hefur verið róm­an­tíserað af bók­mennta­heim­inum og hug­myndir um grá svæði hafa ruglað ungar stúlkur sem telja sér trú um að þær séu í ást­ar­sam­bandi við eldri menn sem mis­nota þær.

Samfélagið sem samþykkti að leita ekki eftir samþykki

Vinkona mín er búin að lesa rétt rúm­lega hund­rað blað­síður í skáld­sög­unni Vanessa mín myrka eftir Kate Elizabeth Russel þegar ég spyr hvað henni finn­ist. Ég er sjálf nýbúin að leggja bók­ina frá mér, kláraði hana loks­ins, eða rétt­ara sagt, hún kláraði mig. Vinkona mín hugsar sig um stund­ar­korn, hreyfir var­irnar eins og til að mynda setn­ingu en hættir við. „Ókei, má ég segja þér eitt?“ spyr hún mig svo. „Já,“ segi ég strax og af svipnum að dæma er henni létt.

Hún útskýrir fyrir mér að hún skammist sín og að skömmin sé til­komin vegna þess að á fyrstu 115 blað­síðum bók­ar­innar hafi henni fund­ist sam­band Vanessu, fimmtán ára aðal­sögu­hetj­unnar, og herra Strane, 42 ára gömlum kenn­ar­anum hennar, spenn­andi og mesta skömmin felist í því að sjá Strane á köflum með augum fimmtán ára Vanessu.

 „Á einum tíma­punkti fannst mér meira að segja sumar lýs­ingar kynæsandi,“ segir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár