Plássum fjölgað Leik­skóla­plássum hefur fjölgað mark­visst á kjör­tíma­bil­inu og er fyr­ir­séð að laus pláss verði í vetur fyrir börn sem verða tólf mán­aða eftir að inn­ritun klár­ast í sept­em­ber. Þannig munu ein­hver börn sem verða tólf mán­aða á meðan skóla­ár­inu stendur kom­ast inn fljót­lega eftir afmæl­is­dag­inn. Mynd: Unsplash

Börnin sem er ekki pláss fyrir í borginni

Hundruð barna í Reykja­vík hafa ekki víst aðgengi að dag­for­eldrum eða leik­skóla­plássi. Stór­felld upp­bygg­ing hefur átt sér stað en það hefur ekki leyst vand­ann. Flest fram­boð leggja áherslu á að leysa leik­skóla­mál borg­ar­innar án þess að fyrir liggi hvað eigi að gera öðru­vísi en núver­andi meiri­hluti. Vanda­málið er bæði hús­næðis- og mönn­un­ar­vandi.

„Við eign­uð­umst barn á kol­röngum tíma árs­ins en það að ég sé að segja það upp­hátt yfir höfuð er fárán­legt,“ segir Hólm­fríður Rut Ein­ars­dóttir sem eign­að­ist barn í des­em­ber. Þegar hún og sam­býl­is­maður hennar, Daði Pet­ers­son, voru að klára fæð­ing­ar­or­lofið stóðu þau frammi fyrir algjöru ráða­leysi um dag­vistun fyrir son sinn. Nær engin pláss hjá dag­for­eldrum laus og margra mán­aða bið þar til leik­skóla­plássum yrði næst úthlutað.

„Raun­veru­legt val okkar var að setja barnið okkar sjö mán­aða í dag­vistun eða eins og hálfs árs, rúm­lega. Við fengum til­boð um pláss en þá hefði hann þurft að fara þangað sjö mán­aða, sem við vorum ekki til­búin til að gera, og þá var okkur boðið að borga til að halda pláss­inu. Við vorum ekki til í það, að borga fjóra mán­uði sem við vorum ekki að nýta. Það var raun­veru­lega bara val­mögu­leik­inn sem við höfðum og við skiljum það alveg út …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár