Ráðherra segir leigumarkaðinn „óstöðugan og óáreiðanlegan“

Nokkrir ráðherrar og þingmenn segja leigu­markaðinn á Íslandi óöruggan. „Miskunnar­laus“ segir einn. „Ónýtur“ segir annar. Forsætis­ráðherra keypti íbúð því hún þurfti að flytja reglulega meðan hún var leigjandi og matvæla­ráðherra segir leigu­markaðinn óstöðugan og óáreið­an­legan. Nokkrir keyptu íbúð til að tryggja öryggi fjöl­skyldunnar.

Stundin sendi öllum þing­mönnum og ráðherrum spurningar um húsnæðismál þeirra í tengslum við umfjöllun blaðsins um leigu­markaðinn á Íslandi. Alls svöruðu 28 þingmenn úr öllum flokkum og allir nema einn eiga íbúð. Fimm af tólf ráðherrum í ríkis­stjórn svöruðu, þrír ráðherrar Vinstri grænna og tveir ráðherrar Framsóknar­flokksins. Enginn ráðherra Sjálfstæðis­flokksins svaraði spurningum Stundarinnar.

Flestir þingmenn höfðu verið leigjendur áður en þeir keyptu íbúð. Margir þeirra sögðust hafa ákveðið að kaupa íbúð til að skapa sér og fjöl­skyldunni öryggi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neyð á leigumarkaði

ViðtalNeyð á leigumarkaði

Týndi árum á leigu­markaði

Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Samtaka leigjenda, upplifir sig fastan á leigu­markaði. Hann hefur í tvígang reynt að festa kaup á íbúð frá því að hann byrjaði að leigja eftir skilnað en hefur ekki tekist það. Baráttan, höfnunin og upplifun sem hann lýsir sem áfalli segir hann hafa haft mikil og lang­varandi áhrif á andlega heilsu hans og atgervi. Hann segir árin sem farið hafa í baráttuna ekki koma aftur og þess vegna séu þau í raun týnd.
FréttirNeyð á leigumarkaði

Missti leigu­íbúðina við brunann

Sögu Nazari dreymir um að eignast íbúð en er að eigin sögn föst á óöruggum leigu­markaði þar sem leiguverð sé óbærilega hátt og lífsgæði leigjenda mun lakari en flestra íbúða­eigenda, aðeins ungt fólk sem eigi efnaða foreldra geti keypt íbúð. Saga er nú í endur­hæfingu, meðal annars vegna áfalls sem hún varð fyrir í september í fyrra en þá kviknaði í íbúð sem hún leigði.

13 mín. lestur

FréttirNeyð á leigumarkaði

Stjórn­völd hafa hlúð að tekjuháum og milli­stétt á kostnað leigjenda

Fólk á leigu­markaði er valda­laust gagnvart leigusala varðandi leiguverð og hve lengi það fær að búa á sama stað. Ef ástand húsnæðis er slæmt tregast leigjendur oft við að kvarta af ótta við að missa húsnæðið. Þetta kemur fram í nýlegri rannsókn þar sem rætt er við tæplega 30 leigjendur. Höfundar hennar segja stjórn­völd bera vissa ábyrgð á því að hópur fólks sé fastur á leigu­markaði gegn vilja sínum.

15 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár