Actavis borgar 30 milljarða króna bætur í Texas vegna ópíóðafaraldursins

Íslenska lyfja­fyrirtækið Actavis seldi hvergi fleiri ópíóðatöflur en í Texas-fylki á árunum 2006 til 2014. Um var að ræða rúmlega þrjá milljarða taflna. Í byrjun febrúar var greint frá því að fyrir­tækið hefði sæst á að greiða skaða­bætur í ríkinu út af fram­leiðslu og sölu sinni á ópíóðum í fylkinu. Eigandi Actavis-félaganna í dag, Teva, viðurkennir hins vegar ekki sekt sína þrátt fyrir skaða­bæturnar.

Stórveldi í Bandaríkjunum
Stór­veldi í Banda­ríkj­unum Kortið sýnir hlut­deild íslenska lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Actavis á mor­fín­lyfja­mark­aðnum í Banda­ríkj­unum á árunum 2006 til 2014. Íslenska fyr­ir­tækið var stór­veldi á þessum mark­aði.

Þann 7. febrúar síðastliðinn var greint frá því að fyrir­tækið sem á endanum eignaðist Actavis, ísraelska lyfja­fyrirtækið Teva, hefði komist að samkomu­lagi við Texas-ríki um að greiða 225 milljóna dollara skaða­bætur, rúmlega 30 milljarða íslenskra króna, vegna ábyrgðar fyrir­tækisins á ópíóðafaraldrinum þar í fylkinu. Tekið skal fram að Teva stundaði líka sjálft fram­leiðslu og sölu á morfín­lyfjum í Banda­ríkjunum þannig að sektirnar sem fyrir­tækið greiðir snúast ekki bara um Actavis. 

Umfjöllunin um skaða­bóta­greiðslu Teva er hluti af umfjöllun Stundarinnar um ópíóðafaraldurinn sem skekið hefur Banda­ríkin, og Ísland líka að vissu leyti, síðastiðin 20 ár. Íslenska lyfja­fyrirtækið Actavis var annar stærsti seljandi morfín­skyldra verkja­lyfja í Banda­ríkjunum á árunum 2006 til 2014 þegar samheita­lyfja­fyrirtæki byrjuðu að framleiða samheitalyf Oxycontins, morfín­lyfs lyfja­fyrir­tækisins Purdue Pharma.

Actavis seldi lang­mestÍslenska lyfja­fyr­ir­tækið Actavis seldi lang­mest af ópíóðum í Texas-fylki á árunum 2006 til 2014.

Viðurkenna ekki sekt 

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Það er ekki að spyrja að Islenskum athafnamönnum.Engin groði of smar eða of okreinn.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stórveldi sársaukans

ViðskiptiStórveldi sársaukans

Lífeyris­sjóður harmar ábyrgð sína á ópíóða­far­aldri

Lífeyris­sjóðirnir sem fjárfestu í Actavis þegar fyrir­tækið var stórtækt á ópíóða­mark­að­inum í Banda­ríkjunum segjast ekki hafa vitað um skaðsemi og villandi markaðs­setningu morfín­lyfjanna. Íslenskir lífeyris­sjóðir högnuðust um 27 milljarða þegar þeir seldu fjár­festingar­félagi Björgólfs Thors Björgólfs­sonar hlutabréf í Actavis árið 2007, eftir að fyrir­tækið var farið að selja morfínlyf í stórum stíl.
FréttirStórveldi sársaukans

Fékk 490 töflur frá heimilis­lækni á tveimur mánuðum: „Hún hættir aldrei á þessu OxyContin“

Sjötug kona á Akureyri kynntist OxyContin þegar maðurinn hennar var krabbameins­sjúklingur fyrir að verða 20 árum. Konan hefur þannig langvinna, króníska verki sem hæpið er að ávísa morfín­lyfjum fyrir samkvæmt læknum sem Stundin hefur rætt við. Dóttir konunnar segir að mamma sín muni aldrei hætta á OxyContin því fráhvörfin séu „viðbjóður“.

Mest lesið undanfarið ár