Viðskipti Vinnslustöðvarinnar og Moshenskys: „Ég veit bara ekkert um það“

Sigurgeir Brynjar Krist­geirsson segir að einu viðskipti Vinnslu­stöðvarinnar í Eyjum við Alexander Moshensky séu með fisk frá Íslandi. Hann hafnar öllum sögu­sögnum um lánveitingar frá Hvítrússanum til Vinnslu­stöðvarinnar og tengdra félaga og segir að hann njóti engra sérkjara í viðskiptunum. Engin vitneskja hafi legið fyrir um skatta­skjóls­viðskipti félaga Moshenskys.

Engin vitneskja um skattaskjól
Engin vit­neskja um skatta­skjól Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son, eða Binni í Vinnslu­stöð­inni eins og hann er yfir­leitt kall­aður, seg­ist ekki hafa vitað neitt um notkun Alex­and­ers Mos­hen­kys á skatta­skjólum eins og Tortólu og Seychelles-eyjum í við­skiptum útgerð­ar­innar við hann. Mynd: mbl / Óskar Pétur Friðriksson

Framkvæmda­stjóri Vinnslu­stöðvarinnar í Vestmanna­eyjum, Sigurgeir Brynjar Krist­geirsson, segir að fyrir­tækið hafi enga vitneskju um aflands- og skatta­skjóls­viðskipti hvítrússneska kaup­sýslu­mannsins Alexanders Moshensky. Hann segir að fyrir­tækið tengist þeim ekki með nokkrum hætti. Sigurgeir, sem yfirleitt er kallaður Binni í Vinnslu­stöðinni, segir að eina samband Vinnslu­stöðvarinnar við fyrirtæki Moshenkys sé að selja þeim uppsjávarfisk.

Þegar blaða­maður Stundarinnar segir Binna að eignar­haldið á fyrirtækja­neti Moshenskys, sem Vinnslu­stöðin hefur verið að selja fiskinn til, endi í skatta­skjólinu Seychelles í Indlands­hafi, segir Binni að hann hafi ekki vitað það. „Ég veit bara ekkert um það og hef ekkert verið að velta því fyrir mér.“

Stundin hefur fjallað um Íslands­tengsl Moshenskys síðustu misserin. Hann hefur meðal annars átt í viðskiptum við Vinnslu­stöðina síðastliðin 20 ár. „Hann kom fyrst hérna til Vestmanna­eyja árið 2003 og hefur átt í miklum viðskiptum við Ísland í langan tíma. Það er ekkert leyndarmál og hefur aldrei verið, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ólígarkinn okkar

FréttirÓlígarkinn okkar

Pólverjar æfir vegna ólígarkans okkar

Áhrifa­miklir pólskir stjórn­málamenn brugðust í vikunni harkalega við fréttum af því að ólígarki frá Belarús, sem ítrekað hefur verið reynt að beita viðskipta­þvingunum, vegna tengsla hans við einræðis­stjórnina í Minsk, hefði komið sér fyrir í Varsjá. Um er að ræða íslenska kjör­ræðis­manninn í Belarús, sem fer allra sinna ferða í skjóli verndar sem sendi­fulltrúi Belarús. Óásættanlegt er að hann sé fulltrúi Íslands, segir sérfræðingur.

9 mín. lestur

AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Úkraínskt orku­fyrirtæki flutt af nafni ólígarka í skúffu­félag í Smáí­búða­hverfinu

Íslenskur banka­maður, Karl Konráðsson, er sagður hafa keypt helmings­hlut í úkraínsku orku­fyrirtæki nýverið af Aleksander Moshensky, kjör­ræðismanni Íslands og ólígarka í Belarús. Áður hafði Karl eignast breskt félag Moshenskys fyrir slikk. Þá og nú átti Moshensky á hættu að sæta viðskipta­þvingunum, vegna tengsla sinna við stjórn­völd í Belarús.
RannsóknÓlígarkinn okkar

Tugir milljarða í skatta­skjól í gegnum Smáí­búða­hverfið

Kjör­ræðismaður Íslands í Belarús hefur á undan­förnum árum flutt tugi milljarða króna til dular­fulls aflands­fé­lags á Seychelles-eyjum með aðstoð félags sem stýrt er úr heimahúsi Reykjavík. Um er að ræða ávinning af fisk­viðskiptum og sérkenni­legum lánveitingum til fyrir­tækja kjör­ræðis­mannsins í Austur-Evrópu, sem allt bendir til að séu gerð til að koma hagnaði undan sköttum.

9 mín. lestur

FréttirÓlígarkinn okkar

Gagnrýndi stjórn­völd fyrir hræsni í málefnum Belarús

Þórhildur Sunna Ævars­dóttir þingkona Pírata sakaði íslensk stjórn­völd og utan­ríkis­ráðherra um hræsni, í umræðum um baráttu lýðræðis­sinna í Belarús á Evrópu­ráðsþinginu í gær. Íslensk stjórn­völd gætu ekki látið sér nægja að sitja fyrir á myndum og segjast styðja stjórn­andstöðu landsins, á sama tíma og þeir hefðu náinn samverka­mann einræðis­stjórnarinnar í embætti kjör­ræðismanns.
AfhjúpunÓlígarkinn okkar

Ólígarkinn okkar fasta­gestur í einka­þotum einræðis­herrans

Alexander Moshensky, kjör­ræðismaður Íslands í Hvíta-Rússlandi, hefur flogið hátt í þrjátíu sinnum með einka­þotum einræðis­stjórnar Lukashenko á síðastliðnum áratug, samkvæmt gögnum sem lekið var nýlega. Eingöngu fjöl­skylda og nánustu bandamenn Aleksanders Lukashenko nota þoturnar. Bæði þoturnar og flestir farþega hennar hafa verið sett í ferðabann um Evrópu og Norður-Ameríku.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár