Þöggunarsamningur ræddur í máli Vítalíu og þremenninganna

Um tíma var til umræðu að ljúka máli Vítalíu Lazarevu og þremenn­ing­anna Ara Edwald, Hreggviðs Jónssonar og Þórðar Más Jóhann­es­sonar með svokölluðum þöggunar­samningi. Rætt var um fjárhæðir sem greiða átti mánaðar­lega yfir nokkurra ára tímabil. Einn þremenn­ing­anna vill ekki ræða málið þegar eftir því er leitað.

Þöggunarsamningur var til umræðu
Þögg­un­ar­samn­ingur var til umræðu Þögg­un­ar­samn­ingur var til umræðu í máli Vítalíu Lazarevu og þre­menn­ing­ana Ara Edwald, Þórðar Más Jóhann­es­sonar og Hregg­viðar Jóns­sonar.

Viðræður áttu sér stað á milli lögmanns Vítalíu Lazarevu og lögmanns á vegum þremenninganna Ara Edwald, Hreggviðs Jónssonar og Þórðar Más Jóhannessonar um að ljúka málinu á milli þeirra með svokölluðum þöggunar­samningi. Þetta herma heimildir Stundarinnar.

Vítalía steig fram í þætti Eddu Falak, Eigin Konum, í upphafi árs. Þar lýsti hún atburðum sem áttu sér stað í sumar­bústaðar­ferð með þremenningunum og einka­þjálfaranum Arnari Grant, sem hún átti í einhvers konar sambandi við á þeim tíma. „Fólk er held ég ekki að átta sig á því hversu stórt þetta var. Margir til dæmis halda að þetta hafi „bara“ verið eitthvert þukl. Þetta fór alveg yfir öll mörk,“ sagði Vitalía Lazareva.

Viðtalið vakti mikla athygli og leiddi til þess að þremenningarnir létu af störfum á ýmsum vettvangi í viðskipta­lífinu. Ari lét af störfum sem framkvæmda­stjóri hjá dóttur­félagi Mjólkur­samsölunnar, Þórður Már hætti sem stjórnar­formaður Festar, eiganda N1 og Krónunnar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Greinilega erfitt að keyra beinskiptan bílinn :-) :-) :-)
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár