Svona verður myndlistarsýning til

„Ég setti upp níu metra háa geimsku­tlu í Kypseli og kall­aði verkið Lift off. En verkið teng­ist sýn­ing­unni Destination Mars og er geimsku­tlan einnig til sýnis í Ásmund­ar­sal en í nýjum bún­ingi. Til þess að gera vegg­verkið Lift Off almenni­lega ákvað ég að fresta því að opna Destination Mars.“

Svona verður myndlistarsýning til

Nú stendur yfir einka­sýn­ing Söru Riel í Ásmund­ar­sal við Freyju­götu. Destination Mars kall­ast sýn­ingin og eins og tit­ill­inn gefur til kynna er hún inn­blásin af geim­ferðum, frá hinum ýmsu sjón­ar­miðum, til dæmis vís­indum og dul­speki. Geim­ferðir, Hill­billy hugsar til ódrep­andi for­vitni og löngun manns­ins til að kanna hið óþekkta, hinn gamla draum að fara til Mars – eða hitta alla­vega Marsbúa einu sinni, tvisvar, áður en þetta klár­ast allt saman. Sýningin er líka á umhverf­is­vernd­ar­grund­velli, því eins og Sara bendir á þá er þessi æin­týra­þrá okkar í áranna rás ekki umhverf­is­vænt sport. Ljós­myndir sem sýna jörð­ina frá fyrstu ferð manns­ins í geim­inn og aðrar myndir eftir því sem geim­ferðum fjölg­aði, sýna hvernig geim­rusl safn­ast saman á spor­baugi jarðar.

Verkin eru úti og inni þegar kemur að bygg­ing­unni, og fer langt upp í geim og inn í heila áhorf­anda. Sara Riel tekur yfir Ásmund­ar­sal með mál­verkum, teikn­ingum, texta­verkum, grafík, vegg­verkum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár