Faðir fjármálaráðherra á meðal þeirra sem fengu að kaupa í Íslandsbanka

Listinn yfir kaup­endur í Íslands­banka var birtur rétt í þessu þrátt fyrir and­stöðu Banka­sýslu rík­is­ins. Þekkt nöfn eru tengd félögum á list­anum, sem komu að bank­anum fyrir hrun. Meðal ann­ars Þor­steinn Már Bald­vins­son, Jón Ásgeir Jóhann­es­son, Guðbjörg Matth­í­as­dóttir og Benedikt Sveins­son, faðir fjár­mála­ráð­herra. Listinn er birtur hér í heild.

Faðir fjármálaráðherra á meðal þeirra sem fengu að kaupa í Íslandsbanka
Áberandi kaup­endur Á meðal þeirra sem voru valdir til að kaupa í Íslands­banka eru aðilar sem leiddu bank­ann fyrir efna­hags­hrunið.

Listinn yfir fjár­festa sem fengu boð um að kaupa í útboði rík­is­ins á hluta­bréfum í Íslands­banka var birtur rétt í þessu á vef fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins. Stærstu kaup­end­urnir eru líf­eyr­is­sjóðir, en á list­anum eru nöfn fjár­festa sem hafa verið umtal­aðir í umræðu um efna­hags­hrunið og tengd­ust umdeildum við­skiptum í bank­anum fyrir hrun.

Birt­ingin á sér stað sama dag og stjórn­ar­for­maður Banka­sýsl­unnar, návinur Bjarna Bene­dikts­sonar, Lárus Blöndal, sagði í sam­tali við Dagmál hjá Morg­un­blað­inu að hann teldi ekki heim­ild fyrir því að birta list­ann og lagði til að birt­ing upp­lýs­inga um kaup­endur yrði hluti af skil­yrðum í næstu atrennu einka­væð­ingar. 

Í yfir­lýs­ingu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins segir að ekki hafi verið fall­ist á and­stöðu og rök­semdir Banka­sýsl­unnar. „Að mati ráðu­neyt­is­ins falla upp­lýs­ingar um við­skipti á milli rík­is­sjóðs og fjár­festa ekki undir banka­leynd og með hlið­sjón af mik­il­vægi þess að gagn­sæi ríki um ráð­stöfun opin­berra hags­muna hefur ráð­herra ákveðið að birta yfir­litið.“

Í þess­ari lotu sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka bauðst almenn­ingi ekki að kaupa, heldur voru svo­kall­aðir fag­fjár­festar, sem upp­fylltu til­tekin skil­yrði, hand­valdir og hringt í þá eftir lokun mark­aða og þeim boðið að taka þátt. 

Meðal beinna og óbeinna kaup­enda í gegnum félög eru Jón Ásgeir Jóhann­es­son, stærsti eig­andi í Glitni fyrir efna­hags­hrunið, Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður bank­ans fyrir hrun, útgerð­ar­fé­lagið Jakob Valgeir ehf. og Benedikt Sveins­son, faðir Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra, sem var líkt og Bjarni sjálfur, stór­tækur í við­skiptum við og með bank­ann fyrir efna­hags­hrunið og náði að forða bæði hlutafé og verð­bréfum skömmu fyrir fall bank­ans 2008.

Þor­steinn Már Bald­vins­son, sem var stjórn­ar­for­maður bank­ans í hrun­inu, kaupir fyrir 296 millj­ónir króna í gegnum Eign­ar­halds­fé­lagið Stein, sem hann á til jafns við fyrr­ver­andi eig­in­konu sína, Helgu Stein­unni Guð­munds­dóttur.

Rétt eins og fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður bank­ans, er stærsti eig­andi hans fyrir hrun að bæta við sig hlut. Jón Ásgeir Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi aðal­eig­andi Baugs, fer fyrir eign­ar­halds­fé­lag­inu Streng, sem á lið­lega helm­ing í Skel fjár­fest­inga­fé­lagi hf, áður Skelj­ungi, sem fékk að kaupa fyrir 450 millj­ónir króna.

Faðir Bjarna, Benedikt Sveins­son, er sá 118. stærsti meðal kaup­enda í lot­unni. Hann kaupir í gegnum félag sitt Haf­silfur ehf. sam­tals fyrir 55 millj­ónir króna, 0,1% fáan­legra hluta í útboð­inu. Benedikt á 100% hlut í Haf­silfri. 

Þá á Jón Sig­urðs­son fjár­festir, sem var for­stjóri FL Group fyrir hrun, sem síðar hétu Stoðir hf, end­ur­komu með 175,5 milljón króna kaupum í gegnum Stoðir.

Karl Wernersson, áður kenndur við Milestone, einn helsta eig­anda bank­ans fyrir hrun, teng­ist kaupum með því að Lyf og heilsa kaupa fyrir 225 millj­ónir. Karl kom félag­inu í hendur sonar síns í umdeildri fjár­hags­leg­ari end­ur­skipu­lagn­ingu árið 2017.

Einnig má nefna tvö félög í eigu Þórðar Más Jóhann­es­sonar, fjár­festis og fyrr­ver­andi for­stjóra Straums fjár­fest­ing­ar­banka og Gnúps, sem keyptu í útboð­inu fyrir rúm­lega 100 millj­ónir króna. Þau félög heita Brekka retail ehf. og Fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Brekka ehf. Þórður Már varð lands­þekktur fyrir skömmu vegna aðkomu sinnar að máli Vitalíu Lazarevu sem leiddi til þess að hann hætti sem stjórn­ar­for­maður smá­sölu­fyr­ir­tæk­is­ins Festar, eig­anda Krón­unnar meðal ann­ars. 

Jakob Valgeir með tæpan milljarð

Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, sem er aðal­eig­andi Morg­un­blaðs­ins og einn umsvifa­mesti útgerð­ar­eig­andi lands­ins, fær úthlutað einna stærstum hluta ein­stakra kaup­enda, eða 468 millj­ónum króna í gegnum eign­ar­halds­fé­lagið Kristinn ehf. 

Enn stærri er þó hlutur Jakobs Valgeirs ehf, sem fær að kaupa fyrir 936 millj­ónir króna. Jakob Valgeir er í eigu eig­in­konu sam­nefnds útgerð­ar­manns og bræðra hans. Jakob Valgeir Flosason fékk 20 millj­arða króna lán til að kaupa í Glitni fyrir hrun, í máli sem var rann­sakað sem umboðs­svik og mark­aðs­mis­notkun. For­stjóri bank­ans, Lárus Welding, var dæmdur í fimm ára skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir við­skiptin.

Meðal ann­arra ein­stak­linga í kaup­enda­hópnum eru Bogi Þór Sig­urodds­son og Linda Björk Ólafs­dóttir, eig­endur heild­versl­un­ar­innar Johan Rönning, sem kaupa í gegnum félagið sitt Bóksal ehf. fyrir 1,17 millj­arð króna.

Valdimar Grímsson, fyrr­ver­andi hand­knatt­leiks­lands­liðs­maður, kaupir fyrir 225 millj­ónir króna. Halldór Krist­manns­son, fyrr­ver­andi hægri hönd Róberts Wessman, eig­anda Alvogen, kaupir fyrir 69 millj­ónir króna.

Stærstu kaup­end­urnir eru þó líf­eyr­is­sjóð­irnir Gildi, LSR, Brú og Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna. 

11% hækkun á hlutunum

Alls var boð­inn út 22,5% hlutur rík­is­ins, að verð­mæti 52,7 millj­arðar króna, 22. mars síð­ast­lið­inn, eftir lokun mark­aða. Veittur var afsláttur af kaup­unum. Hringt var í fjár­festa og þeim boðið að kaupa. Hlutir í Íslands­banka voru seldir á 117 krónur, en gengi dags­ins hafði verið 122 krónur, eða 4,3% hærra en sölu­verð Banka­sýsl­unnar. Gengið náði mest 130 krónum í dag og hefur hlutur þeirra sem fengu að kaupa því hækkað um 11%. Þannig hefur hlutur Bene­dikts Sveins­sonar hækkað um 6 millj­ónir króna í virði frá 22. mars. Einn þeirra ein­stak­linga sem fékk hvað stærstan hlut, útgerðin Jakob Valgeir ehf, hefur hagn­ast um 102 millj­ónir króna með kaup­unum.

Sátt um söluferlið

Í til­kynn­ingu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins í dag er fer­ill söl­unnar rak­inn. „Þann 18. mars sl. ákvað ráð­herra, að fengnum umsögnum efna­hags- og við­skipta­nefndar og fjár­laga­nefndar Alþingis, auk umsagnar Seðla­banka Íslands, að hefja fram­hald sölu­með­ferðar á hlutum í bank­anum í sam­ræmi við til­lögu Banka­sýslu rík­is­ins. Meiri­hlutar beggja þing­nefnda mæltu með því að haf­ist yrði handa við fram­hald sölu. Þá taldi Seðla­bank­inn í umsögn sinni að jafn­ræði bjóð­enda yrði tryggt og var salan talin hafa tak­mörkuð áhrif á gjald­eyr­is­markað, gjald­eyr­is­forða bank­ans og laust fé í umferð.“

Kaupendalistinn í heild

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (9)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Nei. Bjarni er ekki vondi karlinn af því pabbi hans fjárfestir skynsamlega. Hugsið út í það... haldið þið virkilega faðir hans hafi slegið á þráðinn og sagt "Bjarni minn ég ætla koma þér í rosalegan bobba"?

    Og Þorsteinn Már er ekki vondi karlinn í þessu dæmi heldur... alþingismenn allir eru það aftur á móti.

    Snúið ykkur að kerfinu sem gersamlega ábyrgðarlaust fór í lokaða sölu þar sem spákaupmenn... þetta eru ekki alvöru fagfjárfestar... orðið er bara orðskrýpi til að slá ryk í augun á ykkur. Og út frá þeirri apaskylgreiningu eru þetta réttmætir fjárfestar. En sem kjölfestu eða ábyrgir aðilar þá þarf að skoða hvernig þeir eru bundnir í kaupsamningum.

    Og þeir eru óbundnir ekki satt ? Geta selt á morgun með glimrandi hagnaði.

    Enn einn gjafagerningur frá leiðtogum stjórnmálaflokka til velunnarra sinna og verður aldrei borið saman við erlenda söluskilmála... að minnsta kosti ekki af rannsóknarblaðamönnum sem þurfa að fá duglegt spark í rassinn því umfjöllunin er öll á manninn... fáein skifti um boltann ... en aldrei lagst af fullum þunga á reglugerða og regluverksaðilana... sem bera 100 % ábyrgðina.

    Ef ég væri með sambærilegan lista yfir íslendinga og viðskifti þeirra erlendis við banka og fyrirtækjaskrá Panama sem ég gaf skattrannsóknarstjóra á meðan hún var lokuð ... þá myndi ég einfaldlega ekki treysta ykkur samlöndum mínum fyrir þeim upplýsingum af því þið fokkið allri hreingerningu upp. Það eru öngvar rannsóknir nema málarmynda og engin viðurlög og frelsararnir eru ekki fyrr komnir í feitu sætin en þeir eru þagnaðir... ekki satt Björn ... Þórður ???
    2
    • Omar Sigurjónsson skrifaði
      Svo kaus þjòðin aftur 3 af fjórflokkunum og það er kannski òskilanlegast af öllu.
      0
  • Steinþór Grímsson skrifaði
    Var einhver hissa?
    3
  • Sveinn Hansson skrifaði
    Og ekkert vaselín notað.
    6
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Ísland er YNDISLEGT land !!!!!!

    Ég hef aldrei séð á eftir því að flytja þaðan :-)
    5
  • Það er bara svona, bankaræningjunum hleypt aftur að borðinu eins og ekkert hafi gerst árið 2008, hvað segir hið háa Alþingi við þessu!
    10
  • Þór Saari skrifaði
    Það er nákvæmlega svona sem gerspillt pólitísk yfirstétt hagar sér. Gaukar eigum almennings, í þessu tilfelli Íslandsbanka, til vina og vandamanna fjármálaráðherra og yfirstéttarinnar í Sjálfstæðisflokknum og beitir fyrir sig "bankaleynd," hugtaki sem er ekki til í lögum. Spilltir og siðlausir formennn Framsóknarflokks og Vinstir-grænna horfa á með velþóknun og kjósendur þeirra sannfæra sjálf sig um að þetta sé bara all gott fyrirkomulag.
    19
    • Hlynur Jörundsson skrifaði
      Þetta snýst allt um hvatana Þór minn.... og meðan sýndarreglur og lög eru athugasemdarlaust sett sem ganga þvert á hvatana og veita ekki neina hvata til að fylgja reglunum ... eða réttar sagt upprunarlega tilgangnum.... verður engin breyting. Píratar og Viðreisn vissu auðvitað alveg hvað til stóð... ekki vera svona trúgjarn að halda það sé eðlismunur á flokkum.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár