Kynnist sjálfum sér Einar Skúlason ferð­að­ist í vetur einn í 11 vikur um nokkur lönd í Suður-Ameríku og segir að þetta hafi verið frá­bært tæki­færi sig til þess að horfa í spegil. Mynd: Heiða Helgadóttir

Frumbyggjar regnskógarins og háhýsi heimsborgarinnar

Hann lét gamlan draum ræt­ast. Ferð­að­ist í vetur í 11 vikur um nokkur lönd Suður-Ameríku. Heim­sótti meðal ann­ars týndu borg­ina, La Ciudad Perdida, í regn­skógum Kólumbíu, dvaldi í nokkra daga við Ama­son­fljótið og svo heim­sótti hann lit­ríka bæi og borgir og virti fyrir sér háhýsin í Buenos Aires þar sem hann var á jóla­dag eins og Palli sem var einn í heim­inum. Aðal­málið var þó eig­in­lega fjall­göngur. Einar Skúlason, sem rekið hefur göngu­klúbb­inn Vesen og ver­gang í ára­tug, talar hér meðal ann­ars um þennan draum sem rætt­ist, frum­byggja regn­skóg­ar­ins, bæina og borg­irnar og auð­vitað talar hann um fjöllin. Hann talar líka um göngu­klúbb­inn sinn og Ísland; íslenska nátt­úru sem á hjarta hans.

Einar Skúlason er maður sem ungur fékk ást á nátt­úr­unni íslensku og það er þessi nátt­úra sem á hug hans og hjarta. Hann hefur í ára­tug leitt þús­undir manna um landið sitt, vetur, sumar, vor og haust, og einnig víða um heim. „Vesen og ver­gangur“ heitir göngu­klúbb­ur­inn hans. Styrkri hönd leiðir hann vana og óvana um fjöll, firn­indi og fjörur og þótt hraunnibburnar geti stungið þá er fólk samt öruggt undir hans leið­sögn.

Hann, sem bláum augum horfir til fjalla sem fjar­lægðin gerir blá, varð fimm­tugur í fyrra­haust; fer­tugur var hann þegar hann stofn­aði Vesen og ver­gang. Og hann ákvað að láta gamlan draum ræt­ast á þessum tíma­mótum í fyrra; fara til Suður-Ameríku. „Svo spilar inn í að ég á þrjá syni sem eru nú upp­komnir og þurfa minna á mér að halda í dag og í mínum huga hefði þetta ekki verið raun­hæft fyrir fimm eða tíu árum; …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár