Sackler-fjölskyldan selur morfínlyf á Íslandi í gegnum sjóð í Lúxemborg

Eigendur Purdue Pharma, Richard og Jonathan Sackler, hafa um árabil átt danskt félag sem selur morfínlyf eins og Oxycontin á Íslandi. Söluaðili lyfja alþjóð­legs félags þeirra, Mundipharma, segir að ekkert markaðs­starf sé stundað á lyfjum þeirra hér á landi.

Lyf frá Mundipharma
Lyf frá Mund­ip­harma Eigendur Purdue Pharma selja mor­fín­lyf á Íslandi í gegnum félög í Lúx­em­borg og Danmörku. Eitt af þessum lyfjum heitir Oxynorm Dispersa sem kona sést hér hand­leika á svið­settri mynd. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Bandaríska Sackler-fjöl­skyldan selur morfínlyf á Íslandi, meðal annars tegund OxyContin-verkja­lyfsins, í gegnum fyrirtæki sitt, Mundipharma. Þetta fyrirtæki er í eigu sjóðs í lágskatta­ríkinu Lúxemborg og er sjóðurinn í endanlegri eigu Sackler-fjöl­skyldunnar. Sjóðurinn í Lúxemborg á danskt félag, Mundipharma A/S, sem selur morfínlyf til Íslands og Danmerkur. Lyfja­fyrirtækið sem selur lyf Mundipharma á Íslandi heitir Icepharma ehf. 


Fjallað er um Sackler-fjöl­skylduna, ópíóðafaraldurinn í Banda­ríkjunum og hlutdeild íslenska lyfja­fyrir­tækisins Actavis á ópíóðamarkaðnum í Banda­ríkjunum í nýjasta tölublaði Stundarinnar.

Í meira en 20 ár

Lyfin sem þetta fyrirtæki Sackler-fjöl­skyldunnar selur á Íslandi í gegnum Icepharma eru meðal annars morfín­lyfin Oxycontin, OxyContin Depot, OxyNorm Dispersa og Targin.

Forstjóri Icepharma, Hörður Þórhallsson, segir að Icepharma hafi verið söluaðili lyfja Mundipharma í meira en 20 ár. „Icepharma hefur verið með samning við Mundipharma og Norpharma en ekki Purdue Pharma. Purdue Pharma hefur samkvæmt okkar bestu vitneskju ekki verið markaðs­leyfishafi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stórveldi sársaukans

ViðskiptiStórveldi sársaukans

Lífeyris­sjóður harmar ábyrgð sína á ópíóða­far­aldri

Lífeyris­sjóðirnir sem fjárfestu í Actavis þegar fyrir­tækið var stórtækt á ópíóða­mark­að­inum í Banda­ríkjunum segjast ekki hafa vitað um skaðsemi og villandi markaðs­setningu morfín­lyfjanna. Íslenskir lífeyris­sjóðir högnuðust um 27 milljarða þegar þeir seldu fjár­festingar­félagi Björgólfs Thors Björgólfs­sonar hlutabréf í Actavis árið 2007, eftir að fyrir­tækið var farið að selja morfínlyf í stórum stíl.
FréttirStórveldi sársaukans

Actavis borgar 30 milljarða króna bætur í Texas vegna ópíóða­far­ald­ursins

Íslenska lyfja­fyrirtækið Actavis seldi hvergi fleiri ópíóðatöflur en í Texas-fylki á árunum 2006 til 2014. Um var að ræða rúmlega þrjá milljarða taflna. Í byrjun febrúar var greint frá því að fyrir­tækið hefði sæst á að greiða skaða­bætur í ríkinu út af fram­leiðslu og sölu sinni á ópíóðum í fylkinu. Eigandi Actavis-félaganna í dag, Teva, viðurkennir hins vegar ekki sekt sína þrátt fyrir skaða­bæturnar.
FréttirStórveldi sársaukans

Fékk 490 töflur frá heimilis­lækni á tveimur mánuðum: „Hún hættir aldrei á þessu OxyContin“

Sjötug kona á Akureyri kynntist OxyContin þegar maðurinn hennar var krabbameins­sjúklingur fyrir að verða 20 árum. Konan hefur þannig langvinna, króníska verki sem hæpið er að ávísa morfín­lyfjum fyrir samkvæmt læknum sem Stundin hefur rætt við. Dóttir konunnar segir að mamma sín muni aldrei hætta á OxyContin því fráhvörfin séu „viðbjóður“.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár