Kristján fer líklega til hvalveiða í sumar: ,,Það er engin birgðastaða hjá okkur“

Hvalur hf. er með annað skip sitt, Hval 9 í slipp í Reykja­vík um þessar mundir. Stöðv­ar­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins í Hval­firði segir ekk­ert ákveðið hvenær haldið verði til veiða.

Kristján fer líklega til hvalveiða í sumar: ,,Það er engin birgðastaða hjá okkur“
Hvalur á land Hvalur hf. stefnir að því að veiða hvali, lang­reyði í sumar í fyrsta skipti frá árinu 2018. Kristján Loftsson sést hér með Einari K. Guð­finn­syni, fyrr­ver­andi þing­manni og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, við lang­reyði í Hval­firði. Mynd: mbl/ÞÖK

Hvalur hf. mun að öllum lík­indum veiða hvali í sumar í fyrsta skipti frá árinu 2018. Annað af hval­veiði­skipum félags­ins, Hvalur 9, er nú í slipp í Reykja­vík­ur­höfn. Stöðv­ar­stjóri hval­stöðvar fyr­ir­tæk­is­ins í Hval­firði, Gunn­laugur Gunn­laugs­son, segir óljóst hvenær verði farið í fyrsta túr­inn. „Það hefur ekk­ert verið ákveðið neitt hvenær við förum. Þetta er allt í skoðun bara. Það er ýmis­legt í deigl­unni,“ segir Gunn­laugur. 

Hval­veiðar Íslend­inga, eða nánar til­tekið hval­veiðar Hvals hf., hafa vakið tals­verða athygli í gegnum tíð­ina þar sem veið­arnar virð­ast ekki vera arð­bærar út frá árs­reikn­ingum fyr­ir­tæk­is­ins. Kostn­að­ur­inn við veið­arnar er meiri en hagn­að­ur­inn af þeim.

„Það þarf að hafa hann í standi ef til kemur“
Gunn­laugur Gunn­laugs­son, stöðv­ar­stjóri í Hval­firði

Þá hefur verið and­staða við þessar veiðar Íslend­inga verið nokkur hér á landi sem og  í alþjóða­sam­fé­lag­inu. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur meðal ann­ars lýst yfir efa­semdum um veið­arnar í við­tali við Stundina: „Ég hef haft miklar efa­semdir um að veiðar á lang­reyðum við Íslands­strendur geti talist sjálf­bærar út frá umhverfis-, sam­fé­lags­legum og efna­hags­legum sjón­ar­miðum. Þá hef ég einnig efa­semdir um að veiði­að­ferð­irnar upp­fylli þær kröfur sem við gerum um vel­ferð dýra.“ Árið 2014 gagn­rýndi Barack Obama, þáver­andi for­seti Banda­ríkj­anna, til dæmis Ísland fyrir þessar veiðar.

Eina fyr­ir­tækið sem ennþá stundar hval­veiðar á Íslandi er Hvalur hf. Þrátt fyrir þessa and­stöðu og fjár­hags­legt tap af hval­veið­unum þá hefur for­stjóri Hvals hf., Kristján Loftsson, viljað halda veið­unum áfram.  Kristján verður 80 ára gam­all á næsta ári. 

Skipið í slippnumHvalur 9 er nú slipp í Reykja­vík­ur­höfn og er ráð­gert að veiða hval í sumar segir stöðv­ar­stjóri Hvals hf. í Hval­firði.

Ekkert veitt út af Covid

Aðspurður um hvort Hvalur 9 sé ekki í slipp til að gera skipið sjó­fært fyrir sum­arið segir Gunn­laugur. „Það þarf að hafa hann í standi ef til kemur. Annars er það bara Kristján sem veit þetta allt,“ segir Gunn­laugur. 

Gunn­laugur segir að það sem mæli með því að fara núna sé að Covid-far­ald­ur­inn sé að mestu yfir­stað­inn öfugt við í fyrra og hitteð­fyrra þegar skip Hvals hf. héldu ekki til veiða. „Það var nátt­úru­lega Covid í fyrra og árið þar á undan og ekk­ert hægt að gera.“ Aðspurður um birgða­stöð­una í hval­kjöt­inu segir Gunn­laugur. ,,Það er engin birgða­staða hjá okkur, það er lítið sem ekk­ert kjöt til," segir hann en hval­kjöt fyr­ir­tæk­is­ins er selt til Japan sem eru ein af fáum þjóðum í heim­inum þar sem hval­kjöt þykir herra­manns­matur. 

Stundin hefur gert árang­urs­lausar til­raunir til að ná tali af Krist­jáni Lofts­syni til að spyrja hann út í málið. 

Sextán ára saga 

Hvalur hf. hóf aftur hval­veiðar árið 2006 eftir 20 ára langt hval­veiði­bann. Þegar fyrsta lang­reyð­urin kom til hafnar 2006 voru teknar myndir af Krist­jáni Lofts­syni og Einari Kristni Guð­finns­syni, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, þar sem þeir stóðu glaðir yfir dýr­inu. Kristján sást snerta skrokk hvals­ins á nokkrum myndum og haft eftir honum að þetta væri stór stund: „Þetta er stund sem ég hef beðið eftir lengi.“ 

Síðan þá hefur Hvalur stundum veitt lang­reyði og stundum ekki. Árið 2016 ráð­gerði Kristján til dæmis að hætta veið­unum alveg vegna þess hversu þungt í vöfum emb­ætt­is­manna­kerfið í Japan væri. Allar hvala­af­urðir Hvals eru seldar þangað. Kristján fór ekk­ert að veiða sum­arið 2016 vegna þessa. „Við höf­um bara verið í við­halds­störf­um og verðum áfram fram í júní. Svo hætt­um við þessu bara, ef ekk­ert breyt­ist hjá þeim í Jap­an. Emb­ætt­is­manna­kerfið í Jap­an er bara þannig að þeir þora ekki að breyta neinu. Stjórn­mála­menn ráða nær engu í Jap­an, því það er emb­ætt­is­manna­kerfið sem stjórn­ar land­inu,“ sagði Kristjan þá. 

Hvalur hf. hefur heim­ild til að veiða hvali nú í sumar og á næsta ári og getur nýtt sér þá heim­ild ef vilji stendur til. Eftir sum­arið 2023 þurfa stjórn­völd svo að ákveða hvort hval­veiðar verði heim­ildar áfram eða ekki. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Við, þessi þjóð, erum með skært kastljós heimsins á okkur þegar kemur að þessum forna sið að veiða og drepa hvali. Fyrr á tímum var þessi siður skiljanlegur en alls ekki nú þegar við ættum öll að vita betur. Öllum hugsandi og ærlegum Íslendingum ætti að vera fullljóst að þessi siður er okkur, nú á tímum, til skammar og minnkunar, sér í lagi þegar haft er í huga hversu alvarleg staða lífhvolfsins alls er eftir margra alda misþyrmingu mannsins.

    Þessum forna sið, sem án nokkur minnsta efa má nú kalla algjöran ósið og í raun siðlausan glæp gegn móður Náttúru, verður að kasta endanlega fyrir róða í eitt skipti fyrir öll. Hættum þessum viðbjóðslegu drápum á hvölum. Ef við gerum það ekki þá erum við að fremja glæpi sem munu fylgja sögu þjóðarinnar, allt til enda, okkur til ævarandi skammar.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár