Taka verður hótanir Pútíns um notkun kjarnavopna alvarlega

Slælegri fram­gangur rúss­neska hers­ins í Úkraínu en við var búist og bit þving­un­ar­að­gerða er að hrekja ráða­menn Rúss­lands út í horn að mati Veru Knúts­dóttur öryggis- og varn­ar­mála­sér­fræð­ings. „Pútín er að spila rúss­nesku rúl­lettu.“

Taka verður hótanir Pútíns um notkun kjarnavopna alvarlega
Telur Pútín kom­inn út í horn Gangur stríðs­ins og efna­hags­þving­anir hafa að mati Veru Knúts­dóttur þrengt þannig að Pútín Rúss­lands­for­seta að hann sjái ekki annað fært en að hóta notkun kjarna­vopna. Mynd: Alexey NIKOLSKY / SPUTNIK / AFP

Taka verður hót­anir Pútíns Rúss­lands­for­seta um hugs­an­lega beit­ingu kjarna­vopna alvar­lega, segir Vera Knúts­dóttir öryggis- og varn­ar­mála­sér­fræð­ingur. Margt bendir til að gangur stríðs­ins í Úkraínu og þær efna­hags­legu, menn­ing­ar­legu og póli­tísku þving­anir sem alþjóða­sam­fé­lagið beitir Rússa nú séu búnar að hrekja ráða­menn í Rúss­landi út í horn. Í því ljósi aukast líkur á að kjarna­vopnum verði beitt sam­kvæmt kenn­ingum þar um.

„Pútín er eins og fjár­hættu­spil­ari. Hann tekur gríð­ar­legar áhættur í því sem hann gerir og það hefur gengið upp fyrir hann, hingað til. Við sjáum það á stríð­inu við Georgíu árið 2008, við sjáum það á inn­limun Krím­skag­ans árið 2014, við sjáum það á árásum sem gerðar hafa verið á ein­stak­linga á erlendri grundu. En núna virð­ist fjár­hættu­spilið ekki ganga upp, í það minnsta ekki ennþá,“ segir Vera.

Fjár­hættu­spil sem ekki gengur uppPútín hefur alla tíð tekið miklar áhættur að sögn Veru en nú virð­ist spilið ekki vera að ganga.

Spurð hvað beri að lesa í yfir­lýs­ingar Pútíns um að búið sé að setja þær sveitir rúss­neska hers­ins sem fara með kjarna­vopn í við­bragðs­stöðu, og eins yfir­lýs­ingar Seirgei Lavrov utan­rík­is­ráð­herra sem var­aði við því að ef þriðja heims­styrj­öldin bryt­ist út yrði um ger­eyð­ing­ar­stríð háð með kjarna­vopnum að ræðar, segir Vera að taka verði því alvar­lega þegar hót­anir þar um séu settar fram, þó vit­an­lega verði að hafa á því ákveð­inn fyr­ir­vara. „Mér finnst þetta benda til að Rússar séu komnir í þá stöðu að þeir sjái ekki aðra leið færa en að hóta notkun þess­ara vopna. Efna­hags­þving­an­irnar gegn Rússum eru svo víð­tækar að þær eru þegar farnar að þrengja að. Ég held líka að þarna skipti máli hvernig hern­að­ur­inn gengur, og hann gengur alls ekki eins og við var búist í Moskvu. Þessar yfir­lýs­ingar benda því til að ráða­menn í Rúss­landi séu komnir út í horn. Þess vegna er þetta síð­asta hálm­stráið. Af þeim sökum eru NATO ríkin líka treg til að fara í beinar hern­að­ar­að­gerðir til að aðstoða Úkra­ínu­menn, það vill eng­inn fara í beint stríð við Rússa af þessum sökum.“

Pútín gæti misst stuðning olígarkanna

Vera veltir því jafn­framt fyrir sér varð­andi hugs­an­lega beit­ingu kjarna­vopna hvort Pútín hafi stuðn­ing við slíka ákvörðun í æðstu lögum rúss­nesks stjórn­kerfis og í hernum. Notkun kjarns­vopna er ekki með þeim hætti að einn maður geti ræst kjarna­odda eða tekið slíkar ákvarð­anir. Hún bendir á að Sergei Sjoígú varn­ar­mála­ráð­herra Rúss­lands hafi ekki mikið verið í fréttum og mögu­legt sá að hann eða aðrir gætu virkað sem hem­ill gegn Pútín, ætli hann sér virki­lega að beita kjarna­vopnum. Þá sé einnig spurn­ing hvort her­menn á úkra­ínskri grund myndu fram­fylgja slíkum skip­unum.

„Það verður að taka ógn­inni alvar­lega, ef það er ekki gert er verið að bjóða hætt­unni heim“

Það má líka velta fyrir sér hvort Pútín sé að missa, eða muni missa, stuðn­ing efna­manna í Rúss­landi, ólíg­ar­kanna, en hann hefur auð­vitað setið við völd í þeirra skjóli. Í Rúss­landi Pútíns hafa þeir getað fyllt banka­reikn­inga sína en nú þegar að við­skipta­þving­anir eru jafn harð­drægar eins og raun ber vitni hefur það áhrif á þessa menn. „Það gæti farið að fjara undan þeim stuðn­ingi eftir því sem efna­hags­þving­anir bíta meira. Hvað verða olíg­ar­k­arnir til­búnir til að kóa með honum lengi í þeim aðstæðum? Ég hugsa að það þurfi jafn­vel ekki mikið til að hann verði svik­inn af slíkum inn­an­búð­ar­mönnum,“ segir Vera.

En hversu lík­legt er þá í raun og veru að Pútín hygg­ist, og vilji, beita kjarna­vopnum?

„Það er millj­arða króna spurn­ingin. Það er mjög erfitt að segja en það er aldrei hægt að úti­loka að kjarna­vopn verði notuð á meðan þau eru til staðar. Að Pútín muni taka ákvörðun um að nota þau, það getur alveg gerst. Hann tekur gríð­ar­lega áhættu, Pútín er að spila rúss­nesku rúl­lettu. Ég held að það sé ekki hægt að svara þessu öðru­vísi en með því að segja kannski. En það verður að taka ógn­inni alvar­lega, ef það er ekki gert er verið að bjóða hætt­unni heim. Þar með er ég ekki að segja að Vest­ur­lönd eigi að láta af efna­hags­þving­unum eða hætta að styðja Úkra­ínu­menn með her­gögnum og annarri aðstoð, það verður að halda áfram.“

Ísland ætti að fullgilda kjarnorkuafvopnunarsamninginn

Ef til kæmi að kjarna­vopnum yrði beitt eru mestar líkur til þess að það yrði gert í hern­að­ar­skyni í Úkraínu. Rússar búa yfir taktískum kjarna­vopnum sem beita má á tak­mark­aðan hátt í hern­aði sem slíkum. „Spurning er hvort Pútín átti sig á að það myndi þýða enda­lok valda­tíðar hans. Raunar telja margir að stríðs­rekst­ur­inn sjálfur sé upp­hafið að þeim enda­lokum.“

En hvað ger­ist þá, hvaða við­bragða er að vænta til dæmis frá NATO ríkj­unum?

„Það er spurn­ingin. Úkraína er auð­vitað ekki NATO-ríki. Stefna Banda­ríkj­anna segir til um kjarna­vopn geti verið notuð sem svar við árás á banda­ríska jörð eða árás á banda­menn. Þá er spurn­ing hvernig Banda­ríkin skil­greini Úkraínu, hvort þau skil­greini landið sem banda­lags­ríki. Myndi það þá þýða að Banda­ríkin væru til­búin að svara í sömu mynt? Við vitum að það myndi þýða alls­herjar kjarn­orku­stríð og það vill eng­inn. Ég tel ólík­legt að það yrði svarað í sömu mynt en það er mjög erfitt að segja til um það.“

En er ekki einn vand­inn sá að ef Pútín myndi beita þessum vopnum og því yrði látið ósvarað, þá myndi ógnin um beit­ingu kjarna­vopna aukast og vofa yfir til fram­tíðar?

„Ef að þannig færi myndi maður von­ast til að það myndi sýna þeim þjóðum sem búa yfir kjarna­vopnum fram á að það borgi sig hrein­lega ekki. Fæl­ing­ar­mátt­ur­inn er kannski í raun of mik­ill. Kjarna­vopn koma ekki í veg fyrir stríðs­á­tök eins og þau áttu að gera, stríð verða þrátt fyrir að ríki heims haldi á gríð­ar­legum birgðum kjarna­vopna. Besta leiðin væri sú að menn myndu átta sig á því. Auðvitað gæti svarið verið að NATO-ríkin myndu fara í bein stríðs­á­tök við Rússa, vegna þess að þeir teldu ólík­legt að Rússar myndu beita kjarna­vopnum gegn þeim í ljósi þess hvaða afleið­ingar það myndi hafa, alls­herjar kjarn­orku­stríð. Fyrir Pútín snýst allt um að halda völdum og hann myndi tæp­ast vilj­andi grípa til aðgerða sem myndu valda því að hann missti völd.“

Ísland er ekki aðili að kjarn­orku­af­vopn­un­ar­samn­ingi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Vera segir að hennar mat sé að Ísland ætti að full­gilda samn­ing­inn sem allra fyrst. „Ég held að þjóðir séu örugg­ari standi þær utan kjarn­orku­vernd­ar­hlífa, í stóra sam­heng­inu. Þetta er úrelt kalda­stríðspóli­tík.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár