„Pyngja Pútíns“ sett á ís og farið á eftir vinum forsetans

Evrópa og Banda­ríkin ætla að beita efna­hags­þving­unum frekar en skot­vopnum gegn inn­rás Rúss­lands í Úkraínu. Erfitt er hins vegar að frysta eignir Vla­dimirs Pútíns sjálfs, sem taldar eru nema hund­ruðum millj­arða króna því eng­inn virð­ist vita hvar þær eru. Þess í stað er farið á eftir vinum hans; líka þeim besta, Sergei Roldugin.

„Pyngja Pútíns“ sett á ís og farið á eftir vinum forsetans
Bestu vinir Sergei Roldugin og Vladimir Pútín eru taldir bestu vinir. Selló­leik­ar­inn er guð­faðir eldri dóttur for­set­ans og hefur á und­an­förnum árum auðg­ast ævin­týra­lega mikið, að því er að virð­ist án fyr­ir­hafnar. Mynd: Stundin / JIS

Efna­hags­þving­anir er vopnið sem Vest­ur­lönd hafa ákveðið að beita gagn­vart Rúss­landi vegna inn­rás­ar­innar í Úkraínu. Íslend­ingar eru þar á meðal en þær þving­un­ar­að­gerðir sem gripið hefur verið til hér eru þær sömu og Evr­ópu­sam­bandið ákvað. Sjónum er ekki bara beint að bönkum og fyr­ir­tækjum heldur líka ein­stak­lingum og hafa nú eignir nokk­urra valda­mik­illa millj­arða­mær­inga með náin tengsl við Vladimir Pútín Rúss­lands­for­seta, sem hingað til hafa sloppið við refsi­að­gerðir Vest­ur­landa, verið frystar. 

Pútín sjálfur er ekki á lista Evr­ópu­sam­bands­ins þó hann sé á lista Breta yfir ein­stak­linga sem beittir eru þving­unum. Til að frysta eignir þarf að finna þær og átta sig á hverjar þær eru. Í til­viki Pútíns væri lítið til að frysta, í það minnsta sam­kvæmt opin­berum gögnum. Pútín seg­ist ekki eigna­maður og opin­ber skrán­ing hans gefur til kynna að hann eigi þrjá bíla, 77 fer­metra íbúð, 18 fer­metra bíl­skúr og tjald­vagn. Und­an­farin ár hefur hins vegar hver afhjúp­unin …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár