Lífeyrissjóður setti hálfan milljarð í Alvotech sem efast um rekstrarhæfi sitt

Líf­tækni­fyr­ir­tækið Alvotech, sem stýrt er af Róbert Wessman, efast um mögu­leik­ann á eigin rekstr­ar­hæfi til fram­tíðar að öllu óbreyttu. Fyr­ir­tækið seg­ist eiga rekstr­arfé út mars. Þetta kemur fram í fjár­festa­kynn­ingu Alvotech sem birt er á heima­síðu banda­ríska fjár­mála­eft­ir­lits­ins. 700 starfs­menn eru hjá Alvotech, flestir á Íslandi.

Lífeyrissjóður setti hálfan milljarð í Alvotech sem efast um rekstrarhæfi sitt
Áhættu­þættir í rekstri Alvotech Líf­tækni­fyr­ir­tækið Alvotech hefur staðið í hluta­fjár­aukn­ingum og birt fjár­festa­kynn­ingar opin­ber­lega þar áhættu­þættir í rekstr­inum eru settir fram. Róbert Wessman er stofn­andi Alvotech og einn af hlut­höf­unum.

Líf­tækni­fyr­ir­tækið Alvotech, sem er meðal ann­ars í eigu fjár­fest­is­ins Róberts Wessman, efast um rekstr­ar­hæfi sitt til fram­tíðar ef félagið nær sér ekki í nýja fjár­mögnun. Þetta kemur fram í fjár­festa­kynn­ingu Alvotech sem aðgengi­leg er á heima­síðu banda­ríska fjár­mála­eft­ir­lits­ins (SEC).

Alvotech stendur nú í end­ur­fjár­mögn­un­ar­ferli, meðal ann­ars í Banda­ríkj­unum, og er það þess vegna sem fjár­festa­kynn­ingin er birt opin­ber­lega á heima­síðu fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

700 starfs­menn eru hjá Alvotech, flestir á Íslandi, en einnig í Banda­ríkj­unum og Sviss. 

„Tals­verður vafi er til staðar um rekstr­ar­hæfi félags­ins til fram­tíðar.“

Í fjár­festa­kynn­ing­unni er gerður fyr­ir­vari um fjár­hags­stöðu Alvotech í yfir­liti yfir áhættu­þætti í rekstr­inum. Þessi fyr­ir­vari er aft­ast í fjár­festa­kynn­ing­unni og segir í honum orð­rétt: „Núver­andi lausa­fjár­staða Alvotech, auk yfir­vof­andi  50 millj­óna doll­ara fjár­fest­ingar frá Alvogen, er nægj­an­leg til að fjár­magna rekst­ur­inn út fyrsta árs­fjórð­ung 2022 án frek­ari fjár­mögn­unar. Tals­verður vafi er til staðar um rekstr­ar­hæfi félags­ins til fram­tíðar.“

Sömu fyr­ir­varar um rekst­ar­hæfi Alvotech …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    SEC er mjög viðkvæmt fyrir vafaatriðum í fjárfestakynningum... kannski rétt að vekja athygli þeirra á þessum óljósu vafaatriðum í kynningunni þar sem það er ósjaldan sem fjárfestakynningar sleppa gegnum netið í fyrstu atrennu nema vakin sé athygli á slíku. Hefðbundnu vinnubrögðin þeirra eru að vísa þessu til frekari greiningar ... ósjaldan með alvarlegum afleiðingum fyrir viðkomandi fyrirtæki..?
    0
    • Hlynur Jörundsson skrifaði
      Það er góð reynsla af þessari aðferðarfræði.

      Olli Magma verulegum óþægindum og smá kostnaði í Kanada. Svo þegar þú lýstir eftir leyniskjalinu um verðmætamat HS Orku þá neyddist ég til að búa til uppljóstrara hjá Magma ( Kruus) og vingast við stjórnina til að fá skjalið. ..... og aðrar upplýsingar.

      Og frekar auðvelt að veita Weissman viðeigandi refsingu fyrir hans modus operandi... ef það er það sem ykkur hjá Stundinni langar til.

      Og Aðalsteinn á hrós skilið fyrir að koma málum til dómara þegar lögreglustjórninn á Akureyri fer í leiki. En rétt að benda á að þó svo að í ljós komi að lögin hennar Katrínar séu ekki alger þykjustulög..... mun niðurstaðan ekki hafa neinar neikvæðar afleiðingar fyrir starfsmenn lögreglunnar sem sveigja og teygja lögin eftir sínum kokkabókum. Á sama tíma og fjöldi byrlunarmála og hefndarklámi er hent ofan í skúffu.

      Ef þið raunverulega viljið bæta þjóðfélagið... hættið þá að láta draga ykkur í dramaleikina.... og farið að ganga harkalega á spillt kerfið.... jafnvel þó það séu "ykkar menn". Því það er kerfið sem skiftir máli... ekki Weissman, Samherji eða aðrar afleiðingar.

      Ó... SEC hefur alltaf áhuga á kastalaeignum og slíkum eignum fyrirtækjaeigenda á fyrirtækjum á markaði... kallað true due diligence.
      0
  • Ólafur Þorkell Pálsson skrifaði
    Galið. 2007?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Róbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Alvotech tapaði 332 milljónum krónum á dag á fyrsta ársfjórðungi
GreiningRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Alvotech tap­aði 332 millj­ónum krónum á dag á fyrsta árs­fjórð­ungi

Fjöl­margir fjár­festar, meðal ann­ars íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, hafa veðjað stórt á að Alvotech muni með tíð og tíma verða mylj­andi pen­inga­vél. Hökt hefur verið á því ferli og á síð­ustu 27 mán­uðum hefur félagið tapað um 180 millj­örðum króna. Stjórn­endur Alvotech eru hins vegar brattir og spá því að tekjur félags­ins muni allt að fimm­fald­ast milli ára.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúlletta Róberts og vitn­is­burðir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mikið álag“

Starfs­menn Alvotech lýsa vinnu­á­lag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leitað til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yfir­vinnu og fleiri málum. Vinnu­að­stæð­urnar hafa verið svona út af því að Alvotech hefur unnið að því að fá mark­aðs­leyfi fyrir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­unum. Fyr­ir­tækið hefur veðjað öllu á þetta lyf en sala á því hefur dreg­ist saman og sam­heita­lyfjum þess hefur alls ekki gengið eins vel í Banda­ríkj­unum og reiknað var með.
Lífeyrissjóður greiddi atkvæði gegn kaupréttum stjórnar Alvotech
FréttirRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Líf­eyr­is­sjóður greiddi atkvæði gegn kaup­réttum stjórnar Alvotech

Lyfja­þró­un­ar­fyr­ir­tækið Alvotech hefur veitt fjórum óháðum stjórn­ar­mönnum kaup­rétti í félag­inu. Stjórn félags­ins fékk heim­ild til að veita öllum stjórn­ar­mönnum slíka kaup­rétti en þeir stjórn­ar­menn sem eru tengdir Alvotech, meðal ann­ars Róbert Wessmann og Árni Harð­ar­son hafa afsalað sér þessum kaup­réttum. Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Stapi greiddi atkvæði gegn kaup­rétt­ar­kerf­inu.
Háskólinn hjálpaði Róberti að eignast verksmiðjuna fyrir ekkert
SkýringRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Háskól­inn hjálp­aði Róberti að eign­ast verk­smiðj­una fyrir ekk­ert

Við­skiptin með lóð­ina í Vatns­mýri þar sem lyfja­verk­smiðja Alvotech reis vöktu til­tölu­lega litla athygli fyrir ára­tug síðan. Í við­skipt­unum voru Reykja­vík­ur­borg og Háskóli Íslands hins vegar að afhenda Róberti Wessman afnot af gæðum í opin­berri eigu á silf­ur­fati, sem hann hefur síðan notað til að hagn­ast ævin­týra­lega á í gegnum lyfja­þró­un­ar­fyr­ir­tækið Alvotech.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár