Orkan klárast á endanum

Orkuþörf vegna orku­skipta í sam­göngum gæti verið allt að 15 terawattsstundir. Það slagar hátt upp í alla orku sem fram­leidd er á Íslandi í dag. Þó enn sé tals­vert af óbeisl­aðri orku í land­inu má áætla að við séum nú þegar búin að virkja upp undir 45 pró­sent hennar.

Orkan klárast á endanum

Orku­kostir sem undir eru í þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar myndu sam­an­lagt hafa upp­sett afl upp á rétt rúm­lega 4.000 megawött. Orku­fram­leiðsla allra virkj­ana sem geta verið í rekstri á Íslandi í dag hafa afl upp á 3.127, sam­kvæmt gögnum frá Orku­stofnun. Það tekur þó til vara­afls og fleiri þátta sem ekki eru í virkri notkun. Nær lagi er að tala um að upp­sett afl virkj­ana sé um tæp­lega 3.000 megawött.

Miðað við þær for­sendur hafa Íslend­ingar þegar virkjað um 40 pró­sent af þeirri orku sem raun­hæft er að virkja í land­inu, eins og staðan er í dag, án sér­staks til­lits til umhverf­is­þátta. Þessar tölur byggja þó á fræði­legri getu virkj­an­anna og kost­anna til orku­fram­leiðslu en ekki því sem raun­veru­lega kemur til með að fást á ári. 

Ekki takmarkalaus orka

Orku­fram­leiðsla und­an­farin ár hefur verið á bil­inu 19-20 terawattsstundir á ári. Þeir kostir sem eru undir í þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar hafa áætl­aða …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár