Sextíu jöklar horfnir nú þegar og fleiri bíða sömu örlaga

Íslenskir jöklar hafa horfið einn af öðrum frá alda­mót­unum 1900, á sama tíma­bili og veru­leg hlýnun hefur orðið á lofts­lag­inu við Ísland. „Snæ­fells­jökul getum við horft á hverfa fyrir aug­unum á okkur á næstu ára­tugum,“ segir Guðfinna Aðal­geirs­dóttir jökla­sér­fræð­ingur.

1890
1945
1998
2019

Sjáðu hvað jöklarnir hafa minnkað

Ef þú skrunar niður geturðu séð hvernig jöklarnir hafa minnkað. Íslenskir vísindamenn hafa kortlagt hvernig lega og stærð íslenskra jökla hefur verið á ólíkum tímabilum frá lokum 19. aldar. Nýjustu gögnin eru frá 2019 en þá höfðu íslenskir jöklar minnkað verulega.


„Snæ­fells­jökul getum við horft á hverfa fyrir aug­unum á okkur á næstu ára­tugum,“ segir Guðfinna Aðal­geirs­dóttir, jökla­sér­fræð­ingur og pró­fessor við Háskóla Íslands. „Við getum ekki sagt nákvæm­lega hvenær hann hverfur, það fer eftir hve losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda verður mikil á næstu ára­tugum. Það er í raun­inni lyk­il­at­riði. Það eru nú þegar miklar breyt­ingar að eiga sér stað. Við sjáum þær. Alls staðar á land­inu eru jökl­arnir að hopa.“

Við höfum þegar séð íslenska jökla hverfa, það er ekki bara fram­tíð­ar­músík eða spá­dómar. Haustið 2014 var jök­ull­inn Oktil að mynda afskráður sem slíkur þegar hann var hættur að skríða undan eigin þunga. Minn­ing­ar­stund sem haldin var um jökul­inn árið 2019 vakti heims­at­hygli en þá söfn­uð­ust vís­inda­menn og kvik­mynda­gerð­ar­fólk saman á fjall­inu þar sem jök­ull­inn hafði áður setið. Flutt voru minn­ing­ar­orð og skjöldur reistur með áletr­un­inni: „Þetta minn­is­merki er til vitnis um að við vitum hvað er að ger­ast og hvað þarf …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • galciers_in_iceland_2500_years_ago
    https://agbjarn.blog.is/album/Oflokkad/image/601654/
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár