Saga Úkraínu er bæði lengri og merkari en saga Rússlands!

Saga Úkraínu er bæði lengri og merkari en saga Rússlands!
Tripillja — 30 þús­und manna borg fyrir 6.000 árum! Svo und­ar­lega sem blasir við virð­ist bæj­ar­stæðið hafa verið yfir­gefið og jafn­vel brennt reglu­lega á 60-80 ára fresti, án þess að ummerki séu um stríð eða vopna­vald. Enginn kann skýr­ingu á þessu ennþá. En lengi byggð­ist borgin alltaf upp aftur.

Ófrið­væn­legt er nú kringum Úkraínu. Ástæð­urnar virð­ast ýmsar — en hverf­ast flestar ann­ars vegar um þörf Rússa örugg landa­mæri í vestri, eftir bitra reynslu af inn­rásum úr þeirri átt, og hins vegar um þörf Úkraínu (og nágranna­ríkja) til að vera örugg fyrir ásókn Rússa.

Síðustu ald­irnar hafa Rússar senni­lega farið tals­vert oftar með her á hendur á nágranna­ríkjum (þar á meðal Úkraínu) en þeir hafa sjálfir sætt inn­rásum, án þess ástæða sé til að met­ast um þær hörm­ungar allar.

Þá er heldur engin ástæða til að horfa fram­hjá því að leið­togi Rússa vill beina athygl­inni frá vax­andi vanda­málum inn­an­lands með því að magna upp óvin utan­lands.

Það er gam­al­reynd brella harð­stjóra og virð­ist nær alltaf virka.

Annars ætla ég ekki í þessum pistli að rekja það sem nú er á seyði, heldur hitt sem á undan er gengið. Sem sé sögu Úkraínu.

Svarta moldin

Menn hafa búið í Úkraínu frá örófi alda og Neand­er­dals­menn þar á undan og eflaust fleiri mann­teg­undir. Enda var þar gott til búsetu, veð­ur­far milt og hlýtt í suðri og gnægð veiði­dýra í skógum. Nyrðri hluti þess land­svæðis sem við köllum nú Úkraínu nær norður í lauf­skóg­ana miklu sem forðum teygðu sig eftir öllu hinu tempraða belti Evrópu og að Úral­fjöllum.

Í syðri hlut­anum fer að bera á gresjum og þar er hin svo­kall­aða „svarta mold“ sem þykir einkar frjósöm og gerði Úkraínu eft­ir­sótta mjög til korn­ræktar — þegar þar að kom.

Íbúar í Tripillju voru lista­menn.

Fyrir um 7.000 árum fór einmitt að rísa á svæð­inu — allt frá vest­ur­hluta núver­andi Úkraínu og inn í Rúmeníu — merki­leg menn­ing sem fræði­menn hafa nefnt hinu hljóm­fagra nafni Cucuteni–Trypillia. Þar var stund­aður sjálf­bær land­bún­aður og efna­hagur virð­ist hafa verið með mestu ágætum, verk­menntun var á háu stigi og allt í blóma.

Af ýmsum ástæðum átt­uðu menn sig mjög seint á mik­il­vægi Cucuteni–Trypillia menn­ing­ar­innar en hún sýnir að hin hefð­bundna mynd af upp­hafi menn­ingar sem risið hafi ein­göngu við hin miklu fljót í Egifta­landi, Mesópótamíu (Írak), Indlandi og Kína, sú mynd er alröng.

Þótt sú menn­ing­ar­ríki við fljótin hafi vissu­lega tekið ein­dregna for­ystu á ákveðnu tíma­bili sög­unnar.

Stórborgir sinna tíma

Nema hvað, fyrir 6.000 fóru fólkið sem mynd­aði Cucuteni–Trypillia menn­ing­una að reisa stórar og miklar borgir sem eru eig­in­lega fyrst að kom­ast upp á yfir­borðið (í bæði eig­in­legri og óeig­in­legri merk­ingu) allra síð­ustu ára­tug­ina.

Tripillja heitir nú fámennt syfju­legt smá­þorp í Úkraínu, 40 kíló­metrum sunnan við Kíev eða Kænugarð. 

En fyrir 6.000 árum var þar iðandi borg þar sem bjuggu allt að 30.000 sálir.

Sem er næsta ótrú­leg stærð fyrir þann tíma.

Því miður er alltof fátt vitað um þessa borg og aðrar á svæð­inu (því þær voru margar) en hérna má lesa grein sem ég skrif­aði um borg­ina fyrir nokkrum árum. Greinin heitir: „Fundu Úkra­ínu­menn upp lýð­ræðið?“ Merki­legt þykir nefni­lega að engin merki hafa fund­ist um yfir­stétt eða ein­ræði af neinu tagi í Tripilja.

Ótal mörgum heill­andi spurn­ingum er enn ósvarað um Cucuteni–Trypillia menn­ing­una. Fólkið virð­ist til dæmis hafa fundið upp hjólið en að því er virð­ist ein­göngu notað það í barna­leik­föng eins og Majar í Ameríku all­löngu seinna.

Og af hverju brenndi fólkið borgir sínar á 60-80 ára fresti, en byggði þær síðan aftur nákvæm­lega eins?!

Heil menning gufar upp

Fyrir 5.000 árum hvarf þessi menn­ing af sjón­ar­svið­inu. Deilt er um ástæður þess en þær voru lík­lega af ýmsu tagi. Talið er að hlýnað hafi veru­lega á svæð­inu ansi snögg­lega og hefð­bund­inn land­bún­aður og lifn­að­ar­hættir Cucuteni–Trypillia fólks rösk­uð­ust. Í kjöl­far þess að gresjur breidd­ust mjög út leit­uðu hirð­ingjar úr austri inn á svæðið, her­skáir nokkuð og ein­beittir eins og hirð­ingja er gjarnan háttur.

Tripillju­menn hirtu um sínar kýr og mót­uðu þær í leir.

Þeir vilja eign­ast ný lönd til að beita hjörðum sínum, ekki sitja kyrrir og rækta garð­inn sinn eins og jarð­yrkju­bændur.

Með hæfi­legum ein­föld­unum má segja að þarna hafi verið á ferð hópir eða þjóðir sem höfðu búið í aust­ur­hluta hinnar núver­andi Úkraínu (Donetsk-hér­að­inu) um skeið og má kalla Kúrgana; oft líka kenndir við Yamnaya menn­ingu. Þetta fólk hóf heil­mikla útrás í margar áttir fyrir 5.000 til 4.000 árum.

Þótt það sé ekki óum­deilt telja margir fræði­menn að þessir til­teknu Úkra­ínu­menn (!) hafi verið for­mæður og for­feður þeirra svo­nefndu Indó-Evr­ópu­manna sem mynd­uðu að lyktum merk menn­ing­ar­ríki á Indlandi og í Íran, auk þess sem áhrif þeirra urðu alls­ráð­andi í Evrópu.

Dak­íu­menn svo­nefndir sett­ust að í Rúmeníu en for­mæður Kelta, Grikkja, Rómverja, Germana og ótal fleiri þjóða héldu lengra í vest­ur­átt.

Um þetta leyti tömdu menn hesta í fyrsta sinn og gerð­ist það ein­hvers staðar (eða víða) á svæð­inu frá Úkraínu austur að norð­ur­hluta Kasakastan.

Hinir mestu hestamenn Úkraínu

Nú má (enn með hæfi­legum ein­föld­unum) segja að í Úkraínu og syðstu hér­uðum hins núver­andi Rúss­lands (norður af Svarta­hafi) hafi tekið við valda­tíð Skýþa. Þeir og frændur þeirra Sarma­tíu­menn voru frægir hesta­menn og þró­uðu lík­lega ístöð í núver­andi mynd sem gerði ridd­ara þeirra trausta í sessi og ótta­lega óvini fyrir nágranna.

Veldi Skýþa um 170 fyrir Krist.

Skýþar réðu ríkjum (án þess þó vel að merkja að mynda öflug ríki) á slétt­unum í nokkur hund­ruð ár fyrir og eftir Krists burð og gerðu reglu­lega inn­rásir á Balkanskaga og inn í Mið­aust­ur­lönd, þótt sú kenn­ing sé líka til að þeir hafi þvert á móti verið einkar frið­söm þjóð og kannski svarið sig meira í ætt við for­mæður sínar frá tímum Cucuteni–Trypillia heldur en Kúrgana.

Nema hvað — svo liðu ald­irnar, fólk bjó áfram á slétt­unum norðan við Svarta­haf og lifði þar sínu lífi en einnig átti leið um fjöldi þjóða sem komu flestar hrað­byri að austan, en þó ekki allar.

Um árið 400 eftir upp­haf tíma­tals vors, þá varð árekstur í Úkraínu sem varð svo frægur í kvæðum og þjóð­sögum að margt af því efni lifir enn góðu lífi.

Ein­faldasta mynd þeirra sögu er svona:

Á fjórðu öld hafði ger­mönsk þjóð sem Gotar kall­að­ist mætt til Úkraínu og sest þar að og drottn­aði yfir heima­mönnum. Gotar voru sagðir komnir frá Gotlandi í Eystra­salti og engin sér­stök ástæða er til að trúa því ekki. 

Nema hvað þá mætir úr austri her­ská þjóð komin alla leið úr Mið-Asíu.

Húnar.

Að hefna þess með Eddukvæðum ...

Hér er ástæðu­laust að rekja eina ferð­ina enn her­ferðir Húna á fimmtu öld þegar þeir rudd­ust á end­anum langt inn í Gallíu (Frakk­land), virt­ust lík­legir til að standa yfir höf­uðsvörðum Róma­veldis og áttu líka inn­hlaup suður til Mið­aust­ur­landa.

Jörm­un­rekur Gota­kóngur beið afhroð gegn Húnum

En áður sú saga öll hófst fyrir alvöru, þá herj­uðu Húnar á Gota sem gerst höfðu herra­þjóð á hinu forna yfir­ráða­svæði Cucuteni–Trypillia menn­ing­ar­innar.

Skemmst er frá því að segja að Gotar fóru hrak­farir miklar.

Þeim var sópað hast­ar­lega að heiman og flúðu í ofboði suður á Balkanskaga og síðan lengra vestur.

Þar gengu þeir í lið með öðrum þjóðum og náðu þannig að hefna sín á Húnum en um leið urðu til við varð­eldana og kjöt­katl­ana á kvöldin sögur og kvæði um bar­átt­una við óvin­inn úr austri.

Þar er komin rót ýmissa af þeim hetju­kvæðum sem farið var að kalla Eddu­kvæði þegar þau höfðu ferð­ast (og umbreyst) á mörgum öldum alla leið vestur á Íslands­strendur þar sem þau voru loks skrifuð niður.

Bændur hasla sér völl

Nema hvað — Húnar guf­uðu upp eins og jörðin hefði gleypt þá vestur í Evrópu og sneru aldrei aftur á úkra­ínsku slétt­urnar. 

En þar var líka heil­mikil umferð, því þjóðir eins og Alanar, Avarar, Búlgarar (sem lengi bjuggu við Svarta­hafið aust­an­vert), Kasarar, Ung­verjar, Pet­sjnekar og fleiri streymdu hjá á leið­inni vestur. 

En jafn­framt því sem slíkar sögur voru orðnar býsna kunn­ug­legar á svörtu mold­inni og hæð­ar­drög­unum, þá var líka annað að ger­ast sem hefði ekki endi­lega alltaf náð á for­síður frétta­blað­anna (ef ein­hver hefðu verið um 500-700 e.Kr.) en átti þó eftir að verða afar afdrifa­ríkt — og reyndar miklu afdrifa­rík­ara en mörg heim­sóknin úr austri.

Því úr vestri, innan úr Mið-Evrópu, var nýtt fólk farið að slá niður hælum sínum á hinum úkra­ínsku sléttum og reyndar farið að feta sig lengra norður inn í lauf­skóga­beltið þar sem hafði verið harla strjál­byggt miðað við Úkraínu og önnur svæði norður af Svarta­hafi.

En nú var þetta nýja fólk ræki­lega farið að hasla sér völl. Hinir nýkomnu gerð­ust digrir bændur og hirtu í svip­inn minna um að að fara um með miklum hern­aði. En gam­al­grónir íbúar sem fyrir voru lentu undir ægis­hjálmi þessa nýja fólks og fóru fyrr en varði að tala þeirra tungu.

Þetta voru Slavar.

Hverjir bjuggu þá í Moskvu?

Ástæðu­laust er að rekja í smá­at­riðum hvaða slav­neskir ætt­bálkir sett­ust að hvar, enda margt á huldu þar um, en um það bil árið 600 (í síð­asta lagi) stofn­aði einn þess­ara slav­nesku ætt­bálka kaup­stað á bugðu við fljótið Dnépr — af hreinni til­viljun ekki nema 40 kíló­metrum frá þeim stað þar sem hafði verið iðandi 30.000 borg mörg þús­und árum fyrr.

Tripillja.

Þessi nýi kaup­staður fékk seinna nafnið Kíev eða Kænu­garður.

Á sama tíma bjuggu finn­skætt­aðir veiði­menn í skóg­unum langt í norðri við annað mikið fljót, Volgu. Þeir voru fámennir og þar sem heitir nú Moskva, þar var engin byggð.

Frá fram­haldi sögu Úkra­ínu­manna svo hérna!

En um þetta leyti var staðan svona:

Þótt aðvíf­andi inn­rás­ar­þjóðir ættu leið um Úkraínu, sem nú heitir,þá voru íbú­arnir orðnir Slavar þegar þarna var komð sögu (milli 700-850 eða um svipað leyti og Ísland byggð­ist).

´

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Þórarinsson skrifaði
    Það sem hr. Illugi virðist ekki skilja, ekki frekar en aðrir ,,frjálsir" fjölmiðlamenn ,,siðaðra" vesturvelda... er tjáð sig hafa um þessi mál, er hvernig þetta allt horfir fyrir Rússaveldi:

    https://www.counterpunch. org/2022/01/19/ready-for-another-game-of-russian-roulette/
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár