Hagur Samherja vænkast eftir óvæntan hagnað

Síldar­vinnslan hefur hækkað í virði um 62,5 milljarða króna á átta mánuðum og hlutdeild Samherja, stærsta eigandans, nemur rúmlega 20 milljörðum króna. Í gær tilkynnti Síldar­vinnslan um afkomu umfram væntingar vegna kvóta­aukningar.

Þorsteinn Már Baldvinsson
Þor­steinn Már Bald­vins­son Stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar og for­stjóri Samherja keypti sjálfur hlut fyrir 60 millj­ónir króna í Síld­ar­vinnsl­unni við skrán­ingu á markað síð­asta vor.

Síldar­vinnslan tilkynnti í gær um hagnað umfram væntingar í fyrra, samtals allt að 11,1 milljörðum króna, vel umfram væntingar um 9,3 milljarða króna.

Ástæðan fyrir betra gengi Síldar­vinnslunnar en gert var ráð fyrir er að stærstum hluta að aukinn kvóti var gefinn út á síld og að loðnu­kvóti var gefinn út í haust, sem ekki var inni í áætlunum félagsins. 

Hlutabréfa­verð í Síldar­vinnslunni hefur hækkað um meira en helming síðastliðið ár. Síldar­vinnslan er að þriðjungi í eigu Samherja og er forstjóri Samherja, Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnar­formaður félagsins. 

Umdeild tengsl sjávarútvegsfélaga

Tengsl Samherja og Síldar­vinnslunnar hafa verið umdeild að því leyti að Samherji hefur þannig með óbeinum hætti haft yfir að ráða meira en 12% af kvóta á Íslands­miðum, eða umfram svokallað kvótaþak sem á að tryggja dreifða eign á fiskveiði­auðlindinni. Kristján Þór Júlíusson, þá sjávar­útvegs­ráðherra og fyrr­verandi stjórnar­formaður Samherja, kynnti drög að frumvarpi árið 2020 sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Kvótakerfið sem leit dagsins ljós 1984 var nauðsyn, en framsalið 1990
    algjört glapræði.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár