Þórður Már hættir sem stjórnarformaður vegna ásakana

Þórður Már Jóhannesson lætur af störfum sem stjórnar­formaður almennings­hluta­félagsins Festar. Þetta er niður­staða stjórnar­fundar sem var að ljúka.

Þórður Már Jóhannesson lætur af störfum sem stjórnar­formaður almennings­hluta­félagsins Festar. Þetta er niður­staða stjórna­fundar sem var að ljúka. Þórður Már er einn fjögurra manna sem Vítalía Lazareva hefur sagt að hafi brotið á sér í sumar­bústaða­ferð í desember árið 2020. Hún greindi frá þessu í viðtali í þættinum Eigin konur í gær en nafn­greindi mennina ekki þar.

Stjórn Festar sendi tilkynningu um niður­stöðu sína til Kaup­hallarinnar rétt fyrir klukkan 17 í dag.

Sá þriðji sem hættir

Þórður Már er þriðji maðurinn sem ýmist hættir eða fer í leyfi frá störfum sínum vegna málsins í dag. Hreggviður Jónsson, aðal­eigandi og stjórnar­formaður Veritas, sem á og stýrir nokkrum fyrir­tækjum í heilbrigðis­geiranum, og Ari Edwald, framkvæmda­stjóri Ísey útflutnings, sem er systur­félag Mjólkur­samsölunnar, hafa báðir látið af störfum eða farið í tíma­bundið leyfi ásakana Vítalíu.

Það var Stundin sem greindi frá tíma­bundnu leyfi Ara, sem ekki hefur náðst í, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár