Þau náðu kjöri

Listi yfir þá fram­bjóð­endur sem hlutu kjör til Alþingis. Tals­verðar breyt­ingar urðu upp úr klukkan 18 þegar end­ur­taln­ingu lauk í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, sem hafði áhrif á úthlutun jöfn­un­ar­sæta innan hvers flokks.

Þau náðu kjöri
Stærstur Bjarni Bene­dikts­son fer sem áður fyrir stærsta stjórn­mála­flokki lands­ins. Mynd: Heiða Helgadóttir

Nið­ur­stöður kosn­ing­anna liggja fyrir og um leið hvaða fram­bjóð­endur náðu kjöri. Hér að neðan fylgir listi yfir þing­flokk­ana.

Listinn var upp­færður eftir end­ur­taln­ingu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi sem hafði veru­leg áhrif á úthlutun jöfn­un­ar­sæta. Engin breyt­ing varð hins vegar á þing­styrk flokk­anna. Við end­ur­taln­ing­una fækk­aði konum og eru ekki lengur í meiri­hluta. Þá datt Lenya Rún Taha Karim einnig út en hún hefði verið yngsti þing­maður lýð­veld­is­sög­unnar. 

Flokkur fólksins

Undir for­ystu Ingu Sæland náði flokk­ur­inn mun betri kosn­ingu en kann­anir höfðu gefið vís­bend­ingu um. Þing­flokk­ur­inn fer úr tveimur í sex.

  • Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir
  • Eyjólfur Ármanns­son
  • Guð­mundur Ingi Krist­ins­son
  • Inga Sæland
  • Jakob Frímann Magn­ús­son
  • Tómas A. Tómasson

Framsóknarflokkurinn

Ótví­ræður sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna og sá flokkur sem bætir lang­mestu við sig. Flokk­ur­inn stækkar um fimm. 

  • Ágúst Bjarni Garð­ars­son
  • Ásmundur Einar Daðason
  • Hafdís Hrönn Haf­steins­dóttir
  • Halla Signý Krist­jáns­dóttir
  • Ingi­björg Ólöf Isaksen
  • Jóhann Friðrik Frið­riks­son
  • Lilja Dögg Alfreðs­dóttir
  • Lilja Rannveig Sig­ur­geirs­dóttir
  • Líneik Anna Sæv­ars­dóttir
  • Sigurður Ingi Jóhanns­son
  • Stefán Vagn Stef­áns­son
  • Willum Þór Þórsson
  • Þórarinn Ingi Pét­urs­son

Miðflokkurinn

Flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar fer úr því að vera stærsti stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn í að vera fámenn­asti flokk­ur­inn á þingi með þrjá menn. Áður en end­ur­taln­ing fór fram í Norð­vest­ur­kjör­dæmi var Karl Gauti Hjalta­son inni en Bergþór Ólason kom í hans stað að henni lok­inni. 

  • Bergþór Ólason
  • Birgir Þór­ar­ins­son
  • Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son

Píratar

Þing­flokkur Pírata stendur í stað en flokk­ur­inn fékk sex þing­menn kjörna, líkt og í síð­ustu kosn­ingum. Fyrir end­ur­taln­ingu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi var Lenya Rún Taha Karim inni og var þá sögð yngsti þing­maður lýð­veld­is­sög­unnar. Hún datt út í upp­færðum tölum og vék fyrir gísla Rafnari Ólafs­syni.

  • Andrés Ingi Jónsson
  • Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir
  • Björn Leví Gunn­ars­son
  • Gísli Rafn Ólafsson
  • Halldóra Mogensen
  • Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir

Samfylking

Jafn­að­ar­manna­flokkur Íslands tapar einu þing­sæti í kosn­ing­unum og fær sex á nýju þingi. Flokk­ur­inn hafði skorað tals­vert hærra í skoð­ana­könn­unum og má telja lík­legt að þar á bæ séu margir svekktir. Áður en atkvæði í Norð­vest­ur­kjör­dæmi voru talin að nýju var Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir inni. Jóhann Páll Jóhanns­son kom í hennar stað eftir end­ur­taln­ing­una. 

  • Helga Vala Helga­dóttir
  • Jóhann Páll Jóhanns­son
  • Kristrún Mjöll Frosta­dóttir
  • Logi Már Ein­ars­son
  • Oddný Guðbjörg Harð­ar­dóttir
  • Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir

Sjálfstæðisflokkur

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn heldur stöðu sinni sem stærsti flokk­ur­inn í íslenskum stjórn­málum. Hann tapar þó fylgi frá síð­ustu kosn­ingum en heldur þing­manna­fjöld­anu með 16. 

  • Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir
  • Ásmundur Frið­riks­son
  • Berglind Ósk Guð­munds­dóttir
  • Birgir Ármanns­son
  • Bjarni Bene­dikts­son
  • Bryndís Har­alds­dóttir
  • Diljá Mist Ein­ars­dóttir
  • Guð­laugur Þór Þórð­ar­son
  • Guðrún Haf­steins­dóttir
  • Haraldur Bene­dikts­son
  • Hildur Sverr­is­dóttir
  • Jón Gunn­ars­son
  • Njáll Trausti Frið­berts­son
  • Óli Björn Kárason
  • Vil­hjálmur Árnason
  • Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir

Viðreisn

Nið­ur­stöður kosn­ing­anna færa Viðreisn einn auka mann á þing en flokk­ur­inn fær fimm þing­menn. 

  • Guð­mundur Gunn­ars­son
  • Hanna Katrín Frið­riks­son
  • Sigmar Guð­munds­son
  • Þorbjörg S. Gunn­laugs­dóttir
  • Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir

Vinstri græn

Flokkur for­sæt­is­ráð­herra tap­aði miklu fylgi og þremur mönnum í kosn­ing­unum. Fer úr ell­efu í átta. Hólm­fríður Árna­dóttir féll út eftir að end­ur­taln­ingu lauk í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og Orri Páll Jóhanns­son kom inn í hennar stað. 

  • Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir
  • Bjarni Jónsson
  • Guð­mundur Ingi Guð­brands­son
  • Jódís Skúla­dóttir
  • Katrín Jak­obs­dóttir
  • Orri Páll Jóhanns­son
  • Steinunn Þóra Árna­dóttir
  • Svandís Svav­ars­dóttir

Uppfært klukkan 18.32

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2021

Inga Sæland vill ekki bregðast við ásökunum á hendur frambjóðanda Flokks fólksins
FréttirAlþingiskosningar 2021

Inga Sæland vill ekki bregð­ast við ásök­unum á hendur fram­bjóð­anda Flokks fólks­ins

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, seg­ist ekki vilja bregð­ast við tölvu­pósti þar sem fram­bjóð­andi flokks­ins er sak­aður um að hafa brotið ítrekað á konum í gegnum tíð­ina. Hún seg­ist ekki vita um hvað málið snýst og ætli því ekki að aðhaf­ast. Hún seg­ist þó hafa fengið ábend­ingu um sama mál nokkrum dögum fyrir kosn­ingar. Mis­mun­andi er eftir flokkum hvaða leiðir eru í boði til þess að koma á fram­færi ábend­ingu eða kvörtun um með­limi flokks­ins. Flokkur fólks­ins er til að mynda ekki með slíkar boð­leiðir.
Meðlimur í kjörstjórn kærir vegna „gruns um kosningasvik“ í Suðvesturkjördæmi
Fréttir

Meðlimur í kjör­stjórn kærir vegna „gruns um kosn­inga­svik“ í Suð­vest­ur­kjör­dæmi

Geir Guð­munds­son, með­limur í kjör­stjórn Kópavogs, hefur lagt fram kæru til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna fram­kvæmd kosn­inga í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann vill að lög­regla rann­saki kjör­gögn áður en þeim er eytt, vegna full­yrð­inga umboðs­manns Sós­í­alista­flokks­ins um mis­mun­andi stærð kjör­seðla.
Þrír starfsmenn Hótels Borgarness tóku myndir í tómum talningasal
Fréttir

Þrír starfs­menn Hótels Borg­ar­ness tóku myndir í tómum taln­inga­sal

Starfs­menn Hótel Borg­ar­nes höfðu óheftan aðgang að óinn­sigl­uðum atkvæðum í auðum sal hót­els­ins meðan yfir­kjör­stjórn var ekki á staðnum eftir að fyrstu taln­ingu lauk. Lög­reglan getur ekki stað­fest hvort að starfs­menn­irnir hafi farið að svæð­inu sem kjör­gögnin voru geymd vegna þess að starfs­menn­irnir hverfa úr sjón­ar­sviði eft­ir­lits­mynda­véla. Þrír starfs­menn tóku myndir af salnum og þá atkvæðum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár