Enginn fer í stríð

Mót­mæli gegn ham­fara­hlýn­un hafa ekki skil­að rót­tæk­um breyt­ing­um af hálfu stjórn­valda og at­vinnu­lífs­ins. Hvenær æs­ast leik­ar?

„Ofbeldi? Þetta er ekki ofbeldi, þetta eru bara skemmdarverk.“ Þetta segir Halla, aðalpersóna myndarinnar Kona fer í stríð, í túlkun Halldóru Geirharðsdóttur. Hún ræðir við tvíburasystur sína, sem einnig er leikin af Halldóru, um skemmdarverk sem Halla hefur unnið á háspennulínum við álverið í Straumsvík, en systirin veit ekki að þar hafi hún verið að verki.

„Þetta eru öfgar og öfgar ala af sér öfgar,“ svarar systirin. „Sá sem bregður sverði mun fyrir sverði falla.“

„En ég meina, það hefur enginn slasast, annar en landið okkar og jörðin,“ svarar Halla.

„Þetta er samt auðvitað ekki leiðin til að leysa þessi mál, sko,“ segir systirin, sem er jógakennari og nýaldarhugsuður.

„Heldur hvað, sitja í einhverju klaustri og íhuga? Hverju breytir það?“

„Það breytir allavega mér og þar með vonandi öllum heiminum,“ segir systirin.

Myndin, í leikstjórn Benedikts Erlingssonar eftir handriti hans og Ólafs Egilssonar, fékk góðar viðtökur þegar hún kom …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Hitabylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur
Umhverfið

Hita­bylgj­ur ekki „fá­gæt­ir at­burð­ir“ leng­ur

„Það er mjög lík­legt að ár­ið í ár verði eitt heit­asta ár­ið á öld­inni og næsta ár líka,“ seg­ir Hall­dór Björns­son, haf- og veð­ur­fræð­ing­ur á Veð­ur­stofu Ís­lands. Sól­þyrst­ir Ís­lend­ing­ar þurfa að huga að því að skipu­leggja sum­ar­frí sín út frá hita­bylgj­um. Yf­ir­stand­andi hita­bylgju í Evr­ópu má tengja við AMOC-velti­hringrás­ina seg­ir vís­inda­mað­ur­inn Stef­an Rahm­storf.
Alvarlegustu áhættuþættir heimsins tengjast umhverfismálum
Viðtal

Al­var­leg­ustu áhættu­þætt­ir heims­ins tengj­ast um­hverf­is­mál­um

Fimm af tíu al­var­leg­ustu áhættu­þátt­um næstu tíu ár­in tengj­ast um­hverf­is­mál­um seg­ir í skýrslu Al­þjóða­efna­hags­ráðs­ins um al­þjóð­lega áhættu­þætti. „Ég held að mann­skepn­an eigi svo­lít­ið erfitt með að horfa langt fram í tím­ann, en það er eitt­hvað sem við þurf­um að gera,“ seg­ir Haf­dís Hanna Æg­is­dótt­ir, for­stöðu­mað­ur Sjálf­bærni­stofn­un­ar Há­skóla Ís­lands.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár