Norskur eigandi íslenska leigufélagsins Heimstaden hagnaðist um 126 milljarða

Norskur eig­andi íslenska leigu­fé­lags­ins Heim­sta­den ehf., sem áður hét Heima­vellir, jók hagnað sinn um 55 pró­sent á milli áranna 2019 og 2020. Fyr­ir­tækið sem á íslenska leigu­fé­lagið á nú 116 þús­und íbúðir í nokkrum löndum Evrópu, meðal ann­ars rúm­lega 1.600 á Íslandi.

Norskur eigandi íslenska leigufélagsins Heimstaden hagnaðist um 126 milljarða
Segist vera sós­í­alde­mókrati Ivar Tollef­sen. hefur verið gagn­rýndur fyrir að vinna gegn hags­munum leigj­enda í þeim löndum þar sem fyr­ir­tæki hans starfar. Tollef­sen seg­ist hins vegar sjálfur vera sós­í­alde­mókrati sem vilji bjóða fólki upp á gott leigu­hús­næði.

Stærsti hlut­hafi íslenska leigu­fé­lags­ins Heim­sta­den ehf., sem einnig er sam­nefnt leigu­fé­lag í mörgum löndum í Evrópu, hagn­að­ist um 8,8 millj­arða norskra króna í fyrra eða sem svarar tul tæp­lega 126 millj­arða íslenskra króna. Heim­sta­den ehf. á 1.637 íbúðir á Íslandi, aðal­lega á höfu­borg­ar­svæð­inu. Íslenska leigu­fé­lagið var með rúma 3 millj­arða króna í leigu­tekjur í fyrra og hagn­að­ist um rúman 1 millj­arð króna sam­kvæmt árs­reikn­ingi félags­ins. 

Heim­sta­den ehf. hét áður Heima­vellir og er stærsta leigu­fé­lag lands­ins en norska félagið Fred­riks­borg AS gerði öðrum hlut­höfum Heima­valla yfir­tökutil­boð í félagið í fyrra­sumar og eign­að­ist félagið að fulllu fyrir um 17 millj­arða króna. Í kjöl­farið var nafni Heima­valla breytt í Heim­sta­den og var fyr­ir­tækið afskráð af íslenska hluta­bréfa­mark­aðnum. 

„Markmið okkar er að ein­falda og bæta líf við­skipta­vina okkar með því að bjóða upp á vina­leg heim­ili“
Patrick Hall

Fjallað er um hagnað Fred­riks­borg AS í norskum fjöl­miðlum í dag. Árs­reikn­ingur félags­ins fyrir árið 2020 varð opin­ber í gær­kvöld. Hagnaður félags­ins jókst um 55 pró­sent á milli áranna 2019 og 2020. 

8 milljarða hagnaður

Fred­riks­borg AS seldi svo sænska móð­ur­fé­lagi Heim­sta­den-sam­stæð­unnar allt hlutafé í íslenska félag­inu Heim­sta­den ehf. fyrr í sumar fyrir 25 millj­arða króna. Mis­mun­ur­inn á kaup- og sölu­verði Fred­riks­borg AS á Heima­völlum var því 8 millj­arðar króna. Hagnast félagið því vel á við­skiptum með íslenska leigu­fé­lagið. 

Fred­riks­borg AS er eftir sem áður stærsti óbeini hlut­hafi íslenska leigu­fé­lags­ins í gegnum Heim­sta­den-sam­stæð­una sem rekur sam­bæri­leg leigu­fé­lög í Noregi, Svíþóð, Danmörku, Hollandi, Póllandi og Tékk­landi. Félagið gerir mikið út á sam­fé­lags­lega ábyrgð og hefur for­stjóri félags­ins, Patrick Hall, meðal ann­ars sagt: „Markmið okkar er að ein­falda og bæta líf við­skipta­vina okkar með því að bjóða upp á vina­leg heim­ili.“

Félagið á 116 þúsund íbúðir

Eigandi Frediks­borg AS og þar með stærsti hlut­hafi Heim­sta­den AS er norski fjár­festir­inn og ævin­týra­mað­ur­inn Ivar Tollef­sen sem oft­sinnis hefur verið í kast­ljósi fjöl­miðla í Noregi fyrir hvers konar afrek á sviði úti­vistar.  Hann hefur meðal ann­ars skíðað yfir Grænland og klifið hæstu tinda í fimm heims­álfum á ein­ungis fimm vikum. Tollef­sen á í dag 86 pró­senta hlut í Heim­sta­den-sam­stæð­unni í gegnum félagið Fred­riks­borg. Í fyrra var hann í 805. sæti á lista Forbes yfir rík­ustu menn í heimi. 

Alþjóð­lega leigu­fé­lagið Heim­sta­den, sem íslenska dótt­ur­fé­lagið er hluti af, á nú sam­tals 116 þús­und íbúðir í áður­nefndum löndum. Íbúð­irnar á Norð­ur­löndum er um 50 þús­und og í Tékk­landi á félagið 40 þús­und íbúðir. Rekst­ur­inn á Íslandi er því aðeins lít­ill hluti af heild­ar­rekstri Heim­sta­den-sam­stæð­unnar eða rúm­lega eitt pró­sent sé horft á heild­ar­um­fang leigu­í­búð­anna sem Heim­sta­den á. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Leigumarkaðurinn

Telja mikið eignarhald hagnaðardrifinna leigufélaga skýra skarpar verðhækkanir á Suðurnesjum
FréttirLeigumarkaðurinn

Telja mikið eign­ar­hald hagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga skýra skarpar verð­hækk­anir á Suð­ur­nesjum

Leigu­verð heldur áfram að hækka víð­ast hvar á land­inu sam­kvæmt nýjasta mán­að­ar­riti Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unnar. Athygli vekur að verð fyrir leigu­í­búðir á Suð­ur­nesjum hefur hækkað óvenju hratt á síð­ustu sex mán­uðum. Telja skýrslu­höf­undar að það megi rekja til óvenju hás hlut­falls leigu­í­búða í eigu ein­stak­linga og hagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga.
Óheyrilegar verðhækkanir á leigumarkaði: „Þeir eru eins og óðir hanar í mannaskít“
NeytendurLeigumarkaðurinn

Óheyri­legar verð­hækk­anir á leigu­mark­aði: „Þeir eru eins og óðir hanar í manna­skít“

Aug­lýs­ing sem birt­ist á fast­eigna­vefnum Igloo hefur vakið mikla athygli og umræðu. Þar er fjög­urra her­bergja íbúð í Reykja­vík aug­lýst til leigu fyrir 550.000 krónur á mán­uði. Guð­mundur Hrafn Arn­gríms­son, for­maður Leigj­enda­sam­tak­anna, segir stöð­una vera grafal­var­lega. Hann segir mörg heim­ili á leigu­mark­aði búi í dag við grimmi­lega og kerf­is­bundna fjár­kúgun.
Staða fjölskyldna á leigumarkaði hríðversnar milli ára
FréttirLeigumarkaðurinn

Staða fjöl­skyldna á leigu­mark­aði hríð­versnar milli ára

Samkvæmt nið­ur­stöðum leigukönn­unar Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar versn­aði samn­ingstaða leigj­enda gagn­vart leigu­sölum umtals­vert milli áranna 2022 og 2023. Könnunin bendir einnig þess að bæði hafi leigu­verð hækkað og fram­boð á hús­næði við hæfi dreg­ist saman milli ára. Þróunin leggst þyngst á fjöl­skyldur sem bjuggu við þrengri kost árið 2023 í sam­an­burði við árið 2022.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár