Mynd: AFP

Talíbanar komnir til að vera

Talí­banar hafa aftur sölsað undir sig öll völd í Afganistan, 20 árum eftir að inn­rás­ar­lið Banda­ríkj­anna setti stjórn þeirra af. Frétta­rit­arar segja allt með kyrrum kjörum í höf­uð­borg­inni Kabúl, þrátt fyrir upp­lausn­ar­á­stand á flug­vell­inum skammt frá þar sem fjöldi fólks reynir af örvænt­ingu að kom­ast úr landi. Leið­togar Talíbana lofa hóf­sam­ari stjórn en áður og segj­ast ekki ætla að skipta sér af menntun kvenna eða trú­ar­iðkun minni­hluta­hópa en ríkar ástæður eru til að efast um heil­indi þeirra.

Það tók aðeins nokkrar vikur frá brott­hvarfi erlenda her­liðs­ins frá Afganistan þar til víga­sveitir Talíbana höfðu umkringt allar helstu borgir lands­ins. Frá­far­andi stjórn var gjör­spillt og hötuð af miklum meiri­hluta lands­manna, auk þess sem stjórn­ar­her­inn var illa skipu­lagður og hafði engan bar­áttu­anda. Víðast hvar lögðu her­menn niður vopn frekar en að hætta lífi sínu til reyna að verj­ast stór­sókn Talíbana.

Í gær féll síð­asta vígi stjórn­ar­innar, höf­uð­borgin Kabúl, og for­set­inn flúði land. Frétta­rit­ari breska rík­is­út­varps­ins BBC sagði í morgun að almennir borg­arar virt­ust rólegir þrátt fyrir nýj­ustu vend­ingar og sjá mætti nokkrar konur á götum úti, að vísu með and­lits­grímur vegna Covid en ekki í búrkum. 

Þess má geta að nokkrir helstu leið­togar Talíbana eru sagðir hafa smit­ast af Covid und­an­farið en sjúk­dóm­ur­inn geisar í Afganistan eins og flestum öðrum löndum. Innan við eitt pró­sent þjóð­ar­innar hefur fengið bólu­setn­ingu, enda heil­brigð­is­kerfið í lama­sessi. Það gæti hafa dregið enn frekar úr vilja stjórn­ar­hers­ins til að veita mót­spyrnu.

Lofa öllu fögru

Suhail Shaheen, tals­maður Talíbana, segir í við­tali við BBC að ekki standi til að ná fram neinum hefndum gegn þeim Afgönum sem hafi starfað með frá­far­andi rík­is­stjórn eða her­setu­lið­inu. Margir minn­ast þess þó að þegar Talí­banar voru síð­ast við völd beittu þeir grimmi­legum aðferðum á borð við opin­berar aftökur til að við­halda túlkun sinni á íslömskum sjaría-lögum og kúga konur og minni­hluta­hópa.

Mikil óvissa ríkir því um fram­haldið. Þrátt fyrir fögur fyr­ir­heit Talíbana nú er hug­mynda­fræði þeirra gegn­sýrð af bók­stafstrúa svo­kall­aðra Wahabista, sem aðhyll­ast ströng­ustu túlk­unum á sjaría-lögum. Hins vegar byggðu þeir nýlega land­vinn­inga sína ekki síst á að sann­færa aðra hópa um að ganga til liðs við sig, meira að segja sjía-múslima sem almennt eru álitnir rétt­dræpir af Wahabistum. Það þykir benda til þess að Talí­banar hafi lært af reynsl­unni og vilji forð­ast að styggja sam­landa sína með aft­ur­hvarfi til mið­alda líkt og þeir gerðu fyrir tveimur ára­tugum.

Herlið þeirra telur að minnsta kosti 50 þús­und manns en afganski stjórn­ar­her­inn var sagður búa yfir 300 þús­und her­mönnum fyrir örfáum vikum. Þrátt fyrir það guf­uðu heilu her­deild­irnar upp þegar menn flúðu og skildu vopn sín eftir fyrir Talíbana til að hirða. Lítill bar­áttu­andi var meðal her­manna sem kvört­uðu undan óstjórn innan hers­ins og fundu vel að þeir nutu ekki stuðn­ings almenn­ings. 

Þar að auki er talið að stór hluti skráðra her­manna hafi aldrei verið til, þeir séu bara nöfn á blaði sem her­for­ingjar hafi falsað til að fá hærri fjár­veit­ingar og stinga svo launum þess­ara ímynd­uðu her­manna í eigin vasa. Afganski her­inn vissi því aldrei hversu margir her­menn þeirra voru raun­veru­lega.

Minnihlutahópar í kastljósinu

Hreyfing Talíbana hefði vart lifað svo lengi ef hún nyti ekki ein­hver stuðn­ings meðal almenn­ings en erfitt er að segja hversu mik­ill eða ein­lægur sá stuðn­ingur er. Sjá mátti nokkurn hópur manna (ekki kvenna) fagna komu víga­sveit­anna í höf­uð­borg­inni í gær. Flestir virð­ast þó ein­fald­lega þreyttir á ára­tuga­löngum átökum og von­ast til að með falli stjórn­ar­innar megi binda enda á átökin sem hafa kostað meira en 250 þús­und manns­líf síð­ustu tvo ára­tugi. 

Þar á undan hafði borg­ara­stríð og inn­rás Sov­ét­ríkj­anna lagt öll inn­viði lands­ins í rúst og her­setu­liði vest­ur­veld­anna gekk bölv­an­lega að byggja þau upp aftur, ekki síst vegna spill­ingar. Þess í stað reistu ráða­menn sé hallir og eyddu opin­beru fé í lúx­us­bíla og önnur stöðu­tákn sem koma þeim nú að litlu gagni enda flestir land­flótta.

Stjórnin í Kabúl hafði reitt sig á stuðn­ing ótal stríðs­herra um allt landið til að halda í stjórn­ar­taumana en þeir gengu margir á hönd Talíbana síð­ustu daga og vikur þegar ljóst hvar hvert stefndi. Sérstaka athygli vekur að víga­menn sem til­heyra þjóð­ar­broti Hazara, sem eru í minni­hluta og aðhyll­ast sjía-íslam, gengu til liðs við fjand­menn sína í Talí­bönum og fengu í stað­inn lof­orð um sjálfs­stjórn í þeim tveimur héröðum þar sem þeir eru fjöl­menn­astir. 

Mikið veltur á því hvort staðið verður við það lof­orð, það mun gefa sterka vís­bend­ingu um hvort Talí­banar geti myndað breiða stjórn og frið­þægt þá lands­menn sem ótt­ast aft­ur­hvarf til ógn­ar­stjórn­ar­innar fyrir 20 árum.

Rússar og Kínverjar vilja hjálpa

Upp­haf­lega voru sveitir Talíbana nær ein­göngu skip­aðar Pastúnum, sem er stærsta þjóð­ar­brotið í Afganistan. Þeir eru lík­lega um helm­ingur lands­manna en að minnsta kosti sjö önnur þjóð­ar­brot mynda afgönsku þjóð­ina og Talí­banar hafa síð­ustu ár lagt áherslu á að afla sér fylgis meðal þeirra.

Hug­mynda­fræði hreyf­ing­ar­innar hefur að sama skapi tekið breyt­ingum á meðan á her­setu Banda­ríkj­anna stóð. Bók­stafstrúin á Íslam er orðin meira sam­ofin þjóð­ern­is­hyggju og andúð á íhlutun erlendra afla í land­inu, sem er nokkuð sem hefur mælst vel fyrir meðal almenn­ings.

Það má heldur ekki van­meta áhrif erlendra stór­ríkja á afstöðu Talíbana í dag en þeir fundu fyrir her­mætti vest­ur­veld­anna og vilja forð­ast erlenda íhlutun nú þegar þeir eru aftur komnir til valda. Þeir eru undir mik­illi pressu og smá­sjá alþjóða­sam­fé­lags­ins sem mun gera kröfu um að þeir hegði sér ekki með sama hætti og t.d. ISIS gerði í Sýrlandi og Írak. Við­leitni þeirra til að skapa sér trú­verð­ug­leika á alþjóða­vett­vangi virð­ist þegar hafa borið nokkurn árangur.

Talskona kín­verska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins segir til að mynda að Kín­verjar fagni öllum tæki­færum til að eiga frið­sam­leg sam­skipti við hina nýju ráða­menn í Afganistan. “Talí­banar hafa ítrekað tjáð vilja sinn til að mynda góð tengsl við Kína og von­ast eftir þát­töku Kínverja í að end­ur­byggja inn­viði lands­ins, við fögnum þeirri afstöðu,” segir í yfir­lýs­ingu Kínverja.

Rússar segja að Talí­banar hafi tryggt öryggi sendi­ráðs þeirra í Kabúl og það verði áfram opið. Rúss­neski sendi­herr­ann í Afganistan muni í fyrra­málið ganga á fund leið­toga Talíbana til að ræða hvernig koma megi á sam­starfi í náinni fram­tíð. Rússar ætla þó ekki að við­ur­kenna stjórn Talíbana form­lega fyrr en að höfðu sam­ráði við önnur ríki. Þeirra afstaða sé að mynda beri bráða­birgða­stjórn í fullri sátt með full­trúum Talíbana og ann­arra hags­muna­að­ila í Afganistan.

Rík­is­stjórn Írans virð­ist sömu­leiðis bjart­sýn og segir frétt­irnar frá Kabúl gefa von um að hægt verði að koma á var­an­legum friði í Afganistan. Hóf­legrar bjart­sýni gætir einnig í yfir­lýs­ingum ríkja á borð við Indland og Pakistan, sem eru þó sjaldan sam­mála um nokkurn hlut. Ind­verjar segj­ast ætla að ráð­færa sig við Kínverja um fram­haldið og utan­rík­is­ráðu­neyti Pakist­ans býðst til þess að hjálpa til við sátta­við­ræður og myndun bráða­birgða­stjórnar í Kabúl.

Staða kvenna í uppnámi

Það má segja að fíll­inn í her­berg­inu sé staða kvenna undir stjórn Talíbana. Flestir muna þegar þeir bönn­uðu stúlkum að mennta sig og gerðu konur að föngum á eigin heim­ilum. Þeim var bannað að láta sjá sig opin­ber­lega nema í búrku og fylgd karl­manns, auk þess sem þær gátu auð­vitað ekki sótt vinnu eða fram­halds­menntun.

Leið­togar Talíbana í dag segj­ast hafa breytt afstöðu sinni að því leyti að mennta­kerfið verði látið óáreitt en það verður að telj­ast nokkuð loðin yfir­lýs­ing. Fréttir af vett­vangi benda til þess að víga­menn Talíbana hafi þegar byrjað að reka konur heim til sín og bannað þeim að mæta til vinnu eftir að þeir byrj­uðu að ná borgum lands­ins á sitt vald síð­ustu vikur.

Al Jazeera ræddi við konu að nafni Noor Khatera sem hefur verið gjald­keri í banka í Kandahar í nokkur ár. Hún segir að sér hafi verið vísað heim af vopn­uðum mönnum og sagt að karl­maður yrði að taka við starf­inu. „Það er mjög skrýtið að fá allt í einu ekki lengur að fara í vinn­una en þetta er staðan sem við erum í núna,“ segir Khatera í sam­tali við frétta­rit­ara. „Mér tókst að læra ensku upp á eigin spýtur og einnig að nota tölvu en nú verð ég að reyna að finna ein­hvern annan vinnu­stað þar sem konur geta starfað.“

Tals­maður Talíbana neit­aði að svara spurn­ingum al Jazeera um ein­stök atvik sem þessi en sendi þess í stað frá sér mjög almenna yfir­lýs­ingu sem lofar alls ekki góðu með fram­haldið: „Þegar við höfum komið á íslömskum stjórn­ar­háttum mun staða kvenna vera ákvörðuð eftir þeim lögum sem gilda og ef Guð lofar mun það ekki skapa nein vanda­mál.“

Ef eitt­hvað getur haldið aftur af verstu hvötum Talíbana er það lík­lega þrýst­ingur alþjóða­sam­fé­lags­ins en sem fyrr segir vilja þeir forð­ast íhlutun erlendra afla í land­inu. Hvort það getur farið saman við hinn forn­eskju­legan hugs­un­ar­hátt og kven­fyr­ir­litn­ingu sem ein­kennir hreyf­ing­una mun tím­inn leiða í ljós en á meðan býr helm­ingur þjóð­ar­innar við algjöra óvissu um fram­tíð sína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár