Formenn VR og Hagsmunasamtaka heimilanna: Bankarnir eru blóðsuga á samfélaginu

Ragnar Þór Ing­ólfs­son og Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir segja gríð­ar­legan hagnað bank­anna tek­inn úr vasa almenn­ings og íslenskt fjár­mála­kerfi sé risa­stór baggi á sam­fé­lag­inu. Skrúfa þurfi fyrir sjálftöku bank­anna úr vösum lands­manna.

Formenn VR og Hagsmunasamtaka heimilanna: Bankarnir eru blóðsuga á samfélaginu
Segja bank­ana ganga í vasa almenn­ings Þau Ragnar Þór og Ást­hildur segja tölur sýna að fjár­mála­kerfið líti á fólkið í land­inu sem fóður eða auð­lind sem hægt sé að ganga í að vild.

Íslenskt fjár­mála­kerfi er risa­stór baggi á sam­fé­lag­inu, blóð­suga sem sýgur úr því allt líf. Gríð­ar­legur hagn­aður bank­anna er tek­inn úr vasa lands­manna og þeir gjörn­ingar eru á fullri ábyrgð stjórn­valda. Kjós­endur sem hafa fengið sig fullsadda á því að hafa bank­ana á fóðrum verða því að beina atkvæði sínu að öðrum stjórn­mála­flokkum en hafa farið með valdataumana hér á landi síð­ustu ára­tugi.

Þetta skrifa Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, og Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir, for­maður Hags­muna­sam­taka heim­il­anna og odd­viti Flokks fólks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, í aðsendri grein á Vísi. Þau Ragnar Þór og Ást­hildur vanda stjórn­völdum og banka­kerf­inu ekki kveðj­urnar í grein­inni, líkt og rakið er hér að framan. Benda þau á að hagn­aður bank­anna á fyrri hluta þessa árs nemi sam­an­lagt 37 millj­örðum króna. Það sé fárán­lega há tala, ekki síst í því ástandi sem í dag ríki í heim­inum.

„Þessar tölur sýna fram á að litið er á okkur, fólkið í land­inu, sem ein­hvers­konar fóður eða „auð­lind“ sem þeir geta gengið í að vild“

Grein­ar­höf­undar segja nauð­syn­legt að átta sig á að umræddur hagn­aður verði ekki til úr engu heldur sé tek­inn af fólk­inu, heim­il­unum og fyr­ir­tækj­unum í land­inu. Þannig hafi stýri­vextir lækkað veru­lega á síð­ustu miss­erum en á sama tíma hafi sú lækkun skilað sér seint og illa út í sam­fé­lagið. Þegar stýri­vextir hafi síðan verið hækk­aðir hafi bank­arnir hins vegar verið fljótir að hækka vexti sína. Verði hagn­aður bank­anna við­líka á seinni hluta árs­ins jafn­gildi það því að hver ein­stak­lingur í land­inu leggi 200 þús­und krónur í púkkið til banka­kerf­is­ins. „Þessar tölur sýna fram á að litið er á okkur, fólkið í land­inu, sem ein­hvers­konar fóður eða „auð­lind“ sem þeir geta gengið í að vild.“

Peningar sem samfélagið þarf sárlega á að halda

Í grein­inni er bent á að verði hagn­aður bank­anna álíka á seinni hluta árs­ins muni þeir hagn­ast um 70 millj­arðar króna. Fyrir þá fjár­muni mætti til að mynda byggja heilt hátækni­sjúkra­hús eða fjár­magna rekstur allra dvalar- og hjúkr­un­ar­rýma á land­inu og eiga samt 14 millj­arða króna til að bæta í. Grein­ar­höf­undar segj­ast gera sér grein fyrir að dæmið sé ekki svo ein­falt en nauð­syn­legt sé að sýna fram á hversu gríð­ar­legir fjár­munir séu fastir inni í banka­kerf­inu, „þegar sam­fé­lagið þarf svo sár­lega á þeim að halda“.

Þá er rakið að á þeim tólf árum sem liðin séu frá því að banka­kerfið var end­ur­reist, með atbeina stjórn­valda, eftir efna­hags­hrunið, hafi hagn­aður þeirra verið 900 millj­arðar króna. Á þeirri upp­hæð hafi rík­is­sjóður fengið 145 millj­arða í skatta en 725 millj­arðar séu hreinn hagn­aður. „Hvernig væri þjóð­fé­lagið ef þessu væri snúið við? Ef fjár­fest­arnir hefðu fengið 145 millj­arða, sem er flottur hagn­aður, en við, þjóðin, 725 millj­arð­ana? Það má leiða að því líkum að þá væri staðan betri í fjársveltum grunn­stoðum sam­fé­lags­ins, eins og í heil­brigð­is­málum og mennta­kerf­inu, svo ekki sé minnst á aðbúnað aldr­aðra, svo örfá dæmi sé tekin.“

„Fjár­mála­kerfið er ekki lífæð sam­fé­lags­ins, heldur risa­stór baggi á því. Blóðsuga sem sýgur úr því allt líf og allan kraft til að næra sig sjálft“

Þau Ragnar Þór og Ást­hildur segja að nú sé nóg komið. „Fjár­mála­kerfið er ekki lífæð sam­fé­lags­ins, heldur risa­stór baggi á því. Blóðsuga sem sýgur úr því allt líf og allan kraft til að næra sig sjálft.“ Stjórn­völd beri alla ábyrgð á þessu fram­ferði bank­anna. Hins vegar sé ljóst að fæstir flokkar á Alþingi hafi döngun í sér til að fara gegn bönk­unum og kjós­endur sem hafi fengið nóg af fram­gangi þeirra verði því að beina atkvæðum sínum annað.

„Væri það ekki stór­kost­legt ef næsta rík­is­stjórn myndi stöðva óheftan aðgang bank­anna að „auð­lind­inni“ heim­ilin? Eða létu þá að minnsta kosti greiða fullt verð fyrir sem næmi 90% af hagn­aði þeirra á ári hverju svo hægt væri að nýta hann til sam­fé­lags­legra verk­efna.“

 

 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár