Vonbrigði og ruglingur vegna fjölgunar smita

Hjördís Guð­munds­dóttir, sam­skipta­stjóri almanna­varna, segir von­brigði all­staðar varð­andi fjölgun á Covid-19 smitum í sam­fé­lag­inu, bæði hjá þeim smit­ist og hjá starfs­fólki almanna­varna. Sömu­leiðis segir hún fólk almennt ruglað varð­andi smitrakn­ingu og hvernig það eigi að hegða sér í þessu ástandi.

Vonbrigði og ruglingur vegna fjölgunar smita
Bóluefni gegn Covid ekki hund­rað pró­sent Hjördís Guð­munds­dóttir, sam­skipta­stjóri almanna­varna, segir fólk upp­lifa að bólu­efni gegn Covid-19 sé hund­rað pró­sent vörn gegn veirunni eins og bólu­efni við misl­ingum en staðan sé ekki þannig. Mynd: Heiða Helgadóttir

Alls smit­uð­ust 38 ein­stak­lingar með Covid-19 inn­an­lands í gær og af þeim voru 9 í sótt­kví við grein­ingu.

Hjördís Guð­munds­dóttir, sam­skipta­stjóri almanna­varna, segir þetta mikið stökk í fjölgun smita miðað við síð­ustu daga og við það finni bæði starfs­menn almanna­varna og sam­fé­lagið allt fyrir miklum von­brigðum. „Auðvitað eru von­brigðin alls staðar og líka hjá okkur.“ Sjálf á Hjördís til að mynda að vera í sum­ar­frí en þurfti að snúa aftur til vinnu vegna stöð­unnar ásamt fjölda ann­arra sem starfa í rakn­ing­arteymi almanna­varna. 

Ef litið er á tölu­legar upp­lýs­ingar á vefnum covid.is má sjá að stökk í fjölgun smita á ekki aðeins við síð­ustu daga heldur það sem af er ári en fjöldi smit­aðra hefur ekki verið hærri á árinu. Fjöldi smit­aðra náði síð­ast hápunkti þann 18. apríl síð­ast­lið­inn þegar 27 manns greindust  með Covid- 19 og þar af voru 7 þeirra í sótt­kví. 

Meira sjokk að smitast núna

Aðspurð um það hvort að tölur fyrir gær­dag­inn hafi komið Hjördísi á óvart segir hún ekki svo vera. „Þetta eru aðal­lega bara leið­in­legar tölur,“ segir hún og heldur áfram. „Ég held að þetta sé þannig að allir voru að vona að þetta færi ekki þangað en miðað við síð­ustu daga var þetta við­búið.“

Hins vegar segir hún að fyrir þá sem smit­ist sé þetta að koma tölu­vert á óvart. „Það er aðeins meira sjokk að grein­ast núna. Fólk hélt að þetta væri búið. Þórólfur hefur sagt hingað til að bólu­setn­ingin sé ekki hund­rað pró­sent og það hefur vissu­lega verið í umræð­unni frá því að bólu­efnið kom til sög­unnar. Okkur líður samt eins og það sé hund­rað pró­sent. Eins og til dæmis bólu­efni við misl­ingum, það er 99 pró­sent virkni í því, í bólu­efnum við Covid er það ekki þannig en okkur leið kannski þannig.“

„Þetta er allt orðið svo rugl­andi“

Fólk upp­lifi því ákveðin von­brigði við það til dæmis að þurfa að fara í sótt­kví. „Fólk er mikið að spyrja af hverju það þarf að fara í sótt­kví ef það er bólu­sett. Það er alveg ljóst að þetta orð, for­dæm­is­laust, gildir enn þá þessa dag­ana. Þetta er enn þá nýtt, þetta eru ekki misl­ingar eða eitt­hvað sem við þekkjum öll. Þetta er ný veira.“

Að sögn Hjör­dísar lýsa von­brigðin sér líka í því að fólk geti ekki lifað við Covid ástand mikið lengur og hugsi með sér að best sé að smit­ast. „En hvað með við­kvæmu hópana? Þórólfur og þrí­eykið horfir alltaf til við­kvæm­ustu hópana í þjóð­fé­lag­inu. Ætlum við að láta veiruna fara inn á hjúkr­un­ar­heim­ilin?“ spyr hún þá. 

Rakningin ruglandi 

Smitrakn­ing almanna­varna hefur að sögn Hjör­dísar gengið erf­ið­lega fyrir sig síð­ustu daga vegna þess að fólk hafi komið víða við. „Eðlilega, það eru engar tak­mark­anir. Því meiri tak­mark­anir sem eru í gildi því auð­veld­ara er að girða af smit og girða rakn­ing­una af og þar með hóp þeirra sem þurfa að fara í sótt­kví. En í dag er það þannig að þegar ein­hver kemur inn með ein­kenni eða stað­fest smit og hann eða hún er spurð hvar hefur þú verið síð­ustu tíu daga er erfitt að rekja það. Það er hásumar og gaman að lifa en ekki tutt­ugu manna sam­komu­tak­mark­anir. Það er það sem gerir þetta flókið og erfitt fólk er út um allt og eðli­lega.“

„Við erum svo­lítið að biðla til almennrar skyn­semi hjá fólki“ 

Það sem gerir rakn­ing­una en meira rugl­andi eins og staðan er í dag er að þeir sem eru bólu­settir þurfa síður að fara í sótt­kví. Í hverju til­felli fyrir sig þurfi að fara fram mat á því hversu mikið ein­stak­ling­ur­inn var útsettur fyrir veirunni upp á það hvort hann þurfi að fara í sótt­kví. „Segjum eins og í skól­unum, þegar smit komu upp þar, þá fór kannski heill árgangur í sótt­kví eða á vinnu­staðnum. Núna er hvert til­vik metið, miðað við hversu nálægt smit­inu ein­stak­ling­ur­inn var því ef hann er bólu­settur er hann með ein­hverja vörn. En ef ein­stak­ling­ur­inn var mjög nálægt og í návígi við veiruna gerir bólu­setn­ingin lítið fyrir hann,“ segir hún og heldur áfram:

„Þetta er allt orðið svo rugl­andi. Ef ein­stak­lingur var í kringum smit­aða mann­eskju áður en almenn­ingur var bólu­settur var eng­inn spurn­ing um að hann færi í sótt­kví en nú er þetta orðið flókn­ara og ég skil fólk vel að það sé orðið ruglað.“

Þá seg­ist hún einnig skilja vel ef fólk viti ekki hvernig það eigi að hegða sér núna þegar smitum fari fjölg­andi en engar reglur, tak­mark­anir eða til­mæli séu til staðar. „Ég held að á end­anum þurfir þú alltaf að meta þetta út frá sjálfum þér. Áttu aldr­aða for­eldra? Ertu nálægt ein­hverjum í við­kvæmum hóp? Hefur þú áhuga á því að fara á bar­inn og fara svo að heim­sækja ein­hvern í slíkri stöðu? Þetta hlýtur alltaf að þurfa að enda hjá okkur sjálfum. Hvað við viljum gera á meðan það eru ekki tak­mark­anir. Við erum svo­lítið að biðla til almennrar skyn­semi hjá fólki en við sem sam­fé­lag erum kannski orðin svo leið á þessu og þá nær þetta ekk­ert inn og maður skilur það vel.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
6
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár