Mynd: YOUSSEF MASSOUD / AFP

„Ég er enn á lífi“

Palest­ínu­mað­ur­inn Yousef Mousa lýsir ástand­inu á Gaza eftir að hafa upp­lifað ell­efu daga blóð­bað af hendi Ísra­els­hers. Hann lýsir því hvernig hann hefur í gegnum líf sitt lifað tíu stríð af og hvaða áhrif þau hafa haft á hann og íbúa Gaza.

„Ég er enn á lífi,“ segir Yousef Mousa aðspurður um það hvernig hann hafi það. Yousef er sex­tíu og sex ára Palest­ínu­maður búsettur á Gaza-strönd­inni. Hann er krabba­meins­læknir sem kom­inn er á eft­ir­laun. Meðfram störfum sínum sem læknir var Yousef lengi fram­kvæmda­stjóri palest­ínskra hjálp­ar­sam­taka og fyrir það einn af helstu yfir­mönnum Flótta­manna­að­stoðar Sam­ein­uðu þjóð­anna á svæð­inu. 

Dr. Yousef MousaÁ Gaza-strönd­inni býr Yousef Mousa sem segir að þeir ell­efu dagar sem sprengjum rigndi á svæðið séu þeir erf­ið­ustu sem hann hefur upp­lifað

Fyrir tæpum tveimur vikum síðan rigndi sprengjum úr her­þotum Ísraela yfir heimabæ hans. „Það eru tæp­lega tvær vikur liðnar frá hörm­ung­unum, stríð­inu sem varð meira en tvö hund­ruð manns að bana, allt óbreyttir borg­arar. Rúmlega sjö­tíu þeirra voru börn, yfir þrjá­tíu konur,“ segir hann og útskýrir svo hvernig í sumum til­vikum hafi heilu fjöl­skyld­urnar verið drepnar og síðar fjar­lægðar úr þjóð­skrá. …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár