Benedikt segir Þorgerði fara með ósannindi og rjúfa trúnað

Benedikt Jóhann­es­son, fyr­ir­ver­andi for­maður Við­reisnar, segir núver­andi for­mann, Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, fara með rangt mál og rjúfa trúnað um það sem þeim hafi farið á milli í einka­sam­tölum.

Benedikt segir Þorgerði fara með ósannindi og rjúfa trúnað
Segir Þorgerði fara með ósann­indi Benedikt segir Þorgerði ekki segja satt frá sam­skiptum þeirra. Mynd: Facebook / Viðreisn

Benedikt Jóhann­es­son, stofn­andi Við­reisnar, segir Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur fara með rangt mál um að hann hafi hafnað boði um að setj­ast í 2. sæti á fram­boðs­lista flokks­ins í Reykja­vík. Þá segir hann Þorgerði rjúfa trúnað um einka­sam­töl þeirra í milli.

Benedikt greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni. Ástæðan er frétt mbl.is frá því fyrr í dag en þar er haft eftir Þorgerði að Benedikt hafi verið boðið 2. sæti á lista Við­reisnar í öðru hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu. Það hafi verið gert eftir að honum hafi verið boðið heið­urs­sætið á lista Við­reisnar í Reykja­vík. „Áður en upp­still­ing­ar­nefnd­in skil­aði inn lista var rætt við Bene­dikt og hon­um boðið annað sæti í öðru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu sem hann þáði ekki,“ seg­ir Þor­gerður í sam­tali við mbl.is.

„Því fór sem fór“

Þetta segir Benedikt að sé ósatt hjá Þorgerði. Hann hafi sann­ar­lega fall­ist á beiðni Þor­gerðar um að setj­ast í 2. sæti á lista í öðru hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæmanna. Athygli vekur að Benedikt segir að Þor­gerður hafi beðið hann um að setj­ast í umrætt sæti en Þor­gerður sjálf er odd­viti flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi og situr því trauðla í upp­still­ing­ar­nefnd flokks­ins í Reykja­vík.

„Þor­gerður óskaði eftir því á mánu­dags­morgun að ég tæki 2. sæti á lista flokks­ins í Reykja­vík norður. Ég féllst á þá beiðni, en taldi nauð­syn­legt að þeir sem hefðu komið fram við mig með óvið­ur­kvæmi­legum hætti í þessu máli bæðu mig afsök­unar,“ skrifar Benedikt og vísar þar til þess að honum hafi verið boðið heið­urs­sæti á lista flokks­ins, neðsta sætið. Slík afsök­un­ar­beiðni færi ein­ungis til þess að ljúka „leið­inda­málum“ af sinni hálfu og leggja grunn að góðu sam­starfi, og myndi hann ekki gera þær afsak­anir opin­berar. „Þor­gerður svar­aði eftir umhugsun að slík per­sónu­leg afsök­un­ar­beiðni væri ekki í boði. Því fór sem fór.“

Þá segir Benedikt að hann hafi átt ýmis sam­töl við Þorgerði en þau verið sam­mála um að öll þeirra sam­skipti væru trún­að­ar­mál. „Ástæða þess að ég tala nú um þessi mál er að Þor­gerður kýs að ræða þau opin­ber­lega.“

Benedikt var helsti hvata­maður að stofnun Við­reisnar og for­maður flokks­ins frá stofnun vorið 2016 til 2017. Hann sat á þingi fyrir flokk­inn á árunum 2016 til 2017 og var fjár­mála- og efn­ar­hags­ráð­herra árið 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár