Stjórnarformaður stærsta hluthafa Arnarlax spáir endalokum sjókvíaeldis á næsta áratug

Atle Eide, stjórn­ar­for­maður stærsta hags­mun­að­il­ans í íslensku lax­eldi Salmar sem á Arnarlax, segir að sjó­kvía­eldi í opnum sjó­kvíum muni leggj­ast af í heim­inum á næstu 10 árum. Samtímis boðar Kjartan Ólafsson, stjórn­ar­for­maður Arnarlax, tutt­ugu­földun á sjó­kvía­eldi á Íslandi og vill 500 þús­und tonna fram­leiðslu.

Stjórnarformaður stærsta hluthafa Arnarlax spáir endalokum sjókvíaeldis á næsta áratug
Sjó­kvía­eldi hætt eftir 10 ár Atle Eide, stjórn­ar­for­maður Salmar sem er stærsti hlut­hafi Arnarlax, segir í við­tali að sjó­kvía­eldi verði ekki stundað eftir 10 ár. Samtímis vilja íslensk lax­eld­is­fyr­ir­tæki stór­auka sjó­kvía­eldi.

Stjórn­ar­for­maður Salmar, stærsta hlut­hafa íslenska lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax sem er stærsti hags­muna­að­il­inn í sjókkvía­eldi á eld­is­laxi við Íslands­strendur, spáir því að á næstu 10 árum muni sjó­kvía­eldi hætta að verða notað sem fram­leiðslu­að­ferð í heim­inum. Þetta kemur fram í við­tali við stjórn­ar­for­mann Salmar, Atle Eide, sem birt var í sjáv­ar­út­vegs­blað­inu Intra­fish í síð­ustu viku.

Atli er fyrr­ver­andi for­stjóri lax­eld­is­ris­ans Mowi og hefur hann 30 ára reynslu af störfum í lax­eld­is­iðn­að­inum. 

Engar sjókvíar eftir 10 ár

Í við­tal­inu segir Atle, sem er Norð­maður, að ný tækni­þróun og krafa um sjálf­bæra fram­leiðslu muni binda enda á fram­leiðslu á eld­is­laxi í sjó­kvíum. „Við munum lík­lega ekki sjá hefð­bundnar, alveg opnar sjó­kvíar neins staðar árið 2030,“ segir Atli Eide í við­tal­inu við Intra­fish. 

Með nýrri tækni á Atle við land­eldi á fiski og eða aflandseldi í risa­stórum mann­virkjum lengst úti á haf­sjó þar sem umhverf­is­á­hrif eru minni en í sjó­kvía­eld­inu. 

„Fiskeldi í sjó hefur vaxið mikið síð­ustu ár, þjóð­inni til heilla“

Samtímis þá áforma íslensk lax­eld­is­fyr­ir­tæki, meðal ann­ars með Salmar sem stærsta hlut­hafa Arnarlax i broddi fylk­ingar sem stærsta hags­mun­að­il­ann í íslensku lax­eldi, og hags­muna­sam­tök þeirra, Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS), að reyna að þrýsta á um stór­aukna fram­leiðslu á eld­is­laxi í sjó­kvíum við Íslands­strendur.

Þrýst á meira lax­eldi í sjó­kvíumSamtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, sem Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, stýrir þrýsta á um meira sjó­kvía­eldi á Íslandi.

Í frétt á heima­síðu sinni í síð­asta mán­uði sagði SFS til dæmis um 10 þús­und sjó­kvía­eldi í Seyð­is­firði: „Fiskeldi í sjó hefur vaxið mikið síð­ustu ár, þjóð­inni til heilla. Fiskeldi Aust­fjarða hf. áformar allt að 10 þús­und tonna fram­leiðslu á laxi í Seyð­is­firði. Eins og gefur að skilja eru sumir fylgj­andi þeim áformum en aðrir leggj­ast gegn þeim. En hvað þýða 10 þús­und tonn fyrir Seyð­is­fjörð?“

Stjórnarformaður Arnarlax vill 500 þúsund tonna framleiðslu

Í grein í Morg­un­blað­inu í lok mars  árið 2020 sagði Kjartan Ólafsson stjórn­ar­for­maður og einn af hlut­höfum Arnarlax, að Ísland geti fram­leitt allt að 500 þús­und tonn af eld­is­laxi. Þetta er langtum meira en þau 140 þús­und tonn sem Haf­rann­sókna­stofnun hefur mælt með að sé raun­hæf fram­leiðsla hér á landi miðað við burð­ar­þol þeirra fjarða sem stofn­unin hefur kannað. 

„Með 500.000 tonna árs­fram­leiðslu á lax­fiski mætti marg­falda útflutn­ings­verð­mæti sjáv­ar­af­urða“
Kjartan Ólafsson

Í grein­inni sagði Kjartan: „Með 500.000 tonna árs­fram­leiðslu á lax­fiski mætti marg­falda útflutn­ings­verð­mæti sjáv­ar­af­urða og fylgja þar með far­sælli veg­ferð vina­þjóða okkar [Noregs og Færeyja].“ 

Samkvæmt Kjartani liggur ein mögu­leg leið Íslands út úr þeim efna­hags­legu erf­ið­leikum sem COVID-19 far­ald­ur­inn ber með sér í því að „rækta bláu akrana sem finn­ast í efna­hags­lög­sögu lands­ins“. Það er að segja að stunda sjó­kvía­eldi í fjörðum Íslands, „bláu ökrunum“. 

Til þess að þetta megi verða þurfa stjórn­mála­menn og stjórn­völd hins vegar að ganga í takt með lax­eld­is­fyr­ir­tækj­unum eins og Kjartan sagði í nið­ur­lagi sínu í grein­inni: „Því fel­ast mikil tæki­færi fyrir Íslend­inga í að rækta fisk á bláu ökrunum okkar með stór­auk­inni áherslu á fisk­eldi. Skýr stefna og mark­miða­setn­ing yfir­valda er nauð­syn­leg til að byggja ofan á þekk­ingu okkar og reynslu í sölu og fram­leiðslu sjáv­ar­af­urða og tryggja þannig stöðu okkar sem leið­andi sjáv­ar­út­vegs­þjóð í heim­inum til fram­tíðar.“

Staðan er því sú að sam­tímis og stjórn­ar­for­maður stærsta hags­mun­að­il­ans í íslensku lax­eldi, Salmar AS sem er ráð­andi hlut­hafi í Arn­ar­laxi, bendir á að sjó­kvía­eldi sé að verða úreld fram­leiðslu­að­ferð þá berst Arnarlax fyrir því að sjó­kvía­eldi á Íslandi verði stór­aukið. 

Vill 500 þús­und tonna eldiKjartan Ólafsson, stjórn­ar­for­maður Arnarlax, hefur talað fyrir 500 þús­und tonna sjó­kvía­eldi á Íslandi.

Eide: Kröfur samfélagsins hafa breyst

Í við­tal­inu við Intra­fish í síð­ustu viku sagði Atli Eide að kröfur sam­fé­lags­ins hefðu breyst svo mikið og að tækniþroun sam­tím­ans hefði gert það að verkum að eðl­is­breyt­ing í lax­eld­is­iðn­að­inum gæti jafn­vel verið fjár­hags­lega hag­kvæm og arð­bær­ari til lengri tíma litið en að stunda sjóa­kvía­eldi. „Kröfur sam­fé­lags­ins hafa breyst svo mikið og tækni­þró­unin mun gera það arð­bært að breyt­ast,“ segir Atli Eide í við­tal­inu.  

Þesis rök Atla Eide fyrir enda­lokum sjó­kvía­eldis byggja því ekki ein­göngu á því að þessi fram­leiðslu­að­ferð muni hætta að vera notuð vegna þess að hún er ekki sjálf­bær og umhverf­is­væn heldur einnig að lax­eld­is­fyr­ir­tækin muni hætta að nota hana af fjár­hags­legum ástæðum. Í gegnum tíð­ina hafa rökin gegn sjó­kvía­eldi einkum byggt á umhverf­is­legum rökum en ekki fjár­hags­legum. 

Blaða­maður Intra­fish segir svo að þessi spá Atla Eide sé afar merki­leg í ljósi þess hver hann er: „Þetta er stór­merki­leg spá frá fyrr­ver­andi for­stjóra stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tækis í heimi.“

Sama dag og við­talið við Eide var birt í síð­ustu viku var greint frá því að hann myndi hætta sem stjórn­ar­for­maður Salmar. Atle hættir þann 8. júní.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár