Óendanleiki hringrásar, HönnunarMaí og skiptimarkaðir

Tón­leik­ar, við­burð­ir og sýn­ing­ar 23. apríl til 13. maí.

Óendanleiki hringrásar, HönnunarMaí og skiptimarkaðir

Margt er á döf­inni í menn­ing­ar­líf­inu næstu vikur. Athugið að tíma­setn­ingar gætu breyst með stuttum fyr­ir­vara vegna sótt­varn­ar­að­gerða og að áhorf­endur þurfa að virða fjölda­tak­mark­anir og grímu­skyldu.

HönnunarMars hefst

Hvar? Víðs vegar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu
Hvenær? 19.–23. maí
Aðgangs­eyrir: Fer eftir við­burði.

Hin tólf ára hátíð, Hönn­un­ar­Mars, fer fram nokkrum mán­uðum eftir mars­mánuð vegna Covid-19 far­ald­urs­ins. Þessi upp­skeru­há­tíð hönn­unar fagnar því sem er nýtt og spenn­andi í hönn­un­ar­heim­inum þar sem sjá má óvæntar nálg­anir og líf­leg sköp­un­ar­verk. Hátíðin verður opnuð 1.–9. maí með far­and­sýn­ing­unni Öllum hnútum kunnug sem stoppar við í Hafn­ar­hús­inu. Sýningin er þver­fag­legt verk­efni sem skoðar tákn­ræna vídd reip­is­ins í nor­rænni sam­tíma­menn­ingu. Hönnuðir að þess­ari fyrstu röð verka eru Bryn­hildur Páls­dóttir, Þuríður Rós Sig­ur­þórs­dóttir og Theresa Himmer. Fleiri sýn­ingar, fyr­ir­lestrar og við­burðir verða kynntir þegar nær dregur, en sem fyrr segir byrjar sjálf hátíðin 19. maí ef sótt­varnir leyfa.

Ung-Yrkja og Sinfó

Hvar? Harpa
Hvenær? 23. apríl kl. 12.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Ung-Yrkja er verk­efni sem er sér­stak­lega lagað að ungum tón­skáldum. Í ár voru valin til þátt­töku tón­skáldin Ingi­björg Elsa Turchi, Katrín Helga Ólafs­dóttir (K.óla) og Hjalti Nordal, en þau hafa starfað með Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands síð­ast­liðið ár. Nú frum­flytur hljóm­sveitin afrakstur vinnu þeirra fyrir áhorf­endum.

Tumi Árnason & Magnús Trygvason Eliassen

Hvar? Mengi
Hvenær? 24. apríl kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Sax­ó­fón­leik­ar­inn Tumi Árnason og trommar­inn Magnús Trygva­son Eliassen blása og slá til tón­leika þar sem verður flutt nýtt efni af kom­andi plötu kolleg­anna í bland við þjóð­þekkta slag­ara úr smiðju tvíeyk­is­ins. Magnús og Tumi gáfu út plöt­una Allt er ómælið árið 2019, en á næst­unni er vænt­an­leg önnur breið­skífa frá tvíeyk­inu.

Barnamenningarhátíð: Listrænt ákall til náttúrunnar

Hvar? Hafn­ar­hús
Hvenær? Til 25. apríl 
Aðgangs­eyrir: 1.880 kr.

Þessi sam­sýn­ing er afrakstur sam­starfs barna við lista- og vís­inda­fólk og kenn­ara í leik­skólum og grunn­skólum í Reykja­vík. Alls 42 lista­menn túlka verk 800 barna úr fimmtán skólum. Afrakst­ur­inn byggir á þver­fag­legri nálgun þar sem nem­endur fjalla um mál­efni nátt­úr­unnar á skap­andi og nýstár­legan hátt með aðferðum list- og verk­greina.

Skiptimarkaður

Hvar? Munasafn Reykja­víkur og Loft
Hvenær? 28. apríl & 29.-30. maí
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Skipti­mark­aðir ættu að vera öllum vel kunn­ugir lands­mönnum, en þeir stuðla að því að minnka neyslu og auka nota­gildi, en tveir fara fram í apríl. Mið­viku­dag­inn 28. apríl er skipst á fötum á Lofti. Laug­ar­dag­inn og sunnu­dag­inn 29. & 30. maí getur fólk kíkt við í Munasafn Reykja­víkur og skipst á bókum, hand­verki og peysum. 

Uppfært: Við­burð­inum í Muna­safni Reykja­víkur hefur verið frestað frá apríl í maí. Búið er að upp­færa dag­setn­ing­una.

Múlinn jazzklúbbur

Hvar? Harpa
Hvenær? 28. apríl, 5. & 12. maí
Aðgangs­eyrir: 3.500 kr.

Djass­hóp­ur­inn Múlinn hefur verið að í tólf ár og spilar núna gjarnan í Flóa, sal Hörpu þar sem auð­velt er að virða fjar­lægð­ar­mörk. Þrennir tón­leikar fara fram á næst­unni: með kvar­tett­inum Jónsson, Jónsson, Hemstock & Gröndal þann 28., með Unu Stef og Stefáni S. Stef­áns­syni 5. maí, og tríó­inu Hist 12. maí.

Kardemommubærinn

Hvar? Þjóð­leik­húsið
Hvenær? 2. maí til 10. októ­ber
Aðgangs­eyrir: 5.500 kr.

Skáld­skapur norska lista­manns­ins Thor­björns Egners rataði beint að hjarta íslenskra barna og Kar­demommu­bær­inn og Dýrin í Hálsa­skógi hafa verið sett á svið Þjóð­leik­húss­ins reglu­lega allar götur síðan. Verkið fjallar um indæla bæinn sem er fullur af skemmti­legum dýrum og lit­ríkum íbúum, en allt fer í upp­nám þegar ræn­ingj­arnir Kasper, Jesper og Jónatan heim­sækja hann.

Kok

Hvar? Borg­ar­leik­húsið
Hvenær? 5. & 9. maí kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 5.200 kr.

Ljóða- og mynd­list­ar­bókin Kok eftir Kristínu Eiríks­dóttur öðl­ast nýtt líf sem tón­listar- og leik­hús­upp­lifun. Ljóð Krist­ínar fjalla á óvenju­lega bein­skeyttan hátt um sam­band og sam­bands­leysi, ást og andúð, þrá og skeyt­ing­ar­leysi þar sem mann­legt eðli er afhjúpað í öllum sínum dýr­lega breysk­leika. Verkið er sett upp í tengslum við tón­list­ar­há­tíð­ina Óperu­daga, í sam­vinnu við leik­hóp­inn Svartan jakka.

Sumarnótt

Hvar? Lista­safn Íslands
Hvenær? 7. maí til 19. sept­em­ber
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Líkt og The Visitors er Sum­arnótt sjö rása víd­eóinn­setn­ing eftir Ragnar Kjart­ans­son þar sem end­ur­tekn­ingar, tími og rúm leika veiga­mikið hlut­verk. Áhyggju­leysi og ang­ur­værð svífur yfir vötnum þar sem ung pör ganga um fábrotið und­ir­lendi og syngja við gít­ar­leik. Með sam­hverfri mynd og síend­ur­tek­inni lag­línu dregst áhorf­and­inn inn í óend­an­leika hringrásar verks­ins þar sem feigð­inni er haldið fyrir utan um leið og stöðugt er minnt á hana.

Reddingakaffi

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 6. júní kl. 13.00-16.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Redd­inga­kaffi Muna­safns Reykja­víkur hefur göngu sína á ný, en þessi óform­legi hitt­ingur fer fram fyrstu helgi í hverjum mán­uði að sumri til. Fólk mætir með brotna hluti og vinur að því, með hjálp hand­lag­inna sjálf­boða­liða, að lag­færa þá. Gætt verður að sótt­vörnum, en hægt er að panta tíma fyr­ir­fram. Einnig verður kvik­mynd sýnd fyrir þátt­tak­endur.

Uppfært: Við­burð­inum hefur verið seinkað úr maí í júní. Búið er að upp­færa dag­setn­ing­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár