Mynd: Heiða Helgadóttir

Sýnin breyttist eftir slysið

Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir, for­maður Öryrkja­banda­lags Íslands, segir mik­il­vægt að líða vel í eigin skinni, líða vel inni í sér og vera sátt við það hver hún og hvernig hún er.

Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir, for­maður Öryrkja­banda­lags Íslands, ólst upp í sveit með fimm systk­inum. Í hvert sinn sem hún fékk að heim­sækja ömmu sína og afa, sem bjuggu innar í sveit­inni, var það eins og að fá að fara í sum­ar­frí, en þar dvaldi hún í eina til tvær vikur á hverju ári um ára­bil. „Þá upp­lifði ég mikla ham­ingju af því að þar var svo mikil ró. Og kyrrð. Í dag búum við við svo mik­inn hraða. Allir eru á fleygi­ferð og þá skiptir máli að taka sér tíma til að anda.“

Náttúran hefur einnig mikið að segja en Þuríður segir að það veiti sér mikla ham­ingju að vera úti í fal­legri nátt­úru, taka inn lit­ina í umhverf­inu, hlusta á nátt­úr­una og finna fyrir kyrrð­inni. „Ég fer þó minna út í nátt­úr­una en áður vegna fötl­unar minnar,“ segir hún. 

Sá hvað pirringur var tilgangslaus

Hún segir að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár