Mynd: Heida Helgadottir

Á ekki að vera heppni að geta bjargað barninu sínu

Hildur Ýr Ísberg, móðir ungrar konu með átröskun, segir að pen­ingar eigi ekki að koma í veg fyrir að móðir geti bjargað barn­inu sínu frá átröskun eða komið því til aðstoðar. Dóttir Hildar komst ekki að á barna-og ung­linga­geð­deild vegna biðlista, svo móðir hennar þurfti að greiða fyrir kostn­að­ar­sama sál­fræði­með­ferð.

Móðir ungrar konu með átröskun lýsir í sam­tali við Stundina því úrræða- og von­leysi sem hún upp­lifði í kjöl­far þess að hafa kom­ist að því að dóttir hennar væri með átröskun.  

Hildur Ýr Ísberg man vel eftir þeirri stundu er hún átt­aði sig á þeim mögu­leika að dóttir hennar, þá sautján ára, væri með átröskun. „Þá ját­aði hún fyrir okkur að hún hafði ekki borðað í viku og ég man að ég greip utan um hana og ég sá hana fyrir mér, í hug­anum, fljóta burt frá mér. Ég fann mjög raun­veru­legan mögu­leika á því að ég myndi missa hana, að þetta væri mjög hættu­legt, þannig að ég hélt mjög fast í hana til þess að koma í veg fyrir að hún færi.“

Hildur tók eftir því haustið sem dóttir hennar byrj­aði í mennta­skóla árið 2015, að dóttir hennar væri eitt­hvað und­ar­leg, eins og hún orðar það. Hún …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár