Hvíti hertoginn heldur upp á afmælið

Um þessar mundir eru 45 ár frá útgáfu meistarverks Davids Bowie, Station to Station, plata sem markaði djúp spor í feril tónlistar­mannsins og tónlistar­sögu 20. aldar. Af því tilefni rýnir Sindri Freysson rithöfundur í skraut­lega tilurð þessa merkilega lista­verks þar sem dulspeki, trúar­grufl, nornir, kólumbískt lyftiduft og Hitler koma meðal annars við sögu.

45 ára stórvirki
45 ára stór­virki Station to Station, meist­ara­stykki Bowie, á afmæli um þessar mundir.

Snjókófið klofnar skyndi­lega og langt að komin hrað­lestin birtist öskrandi, glampandi rýtingur sem rekinn er af alefli inn í nætur­kyrrð borgarinnar.

Fínlegur maðurinn sem stígur út á brautar­pallinn ber með sér að vera aðal­borinn. Líklega hertogi að snúa úr sjálf­skipaðri útlegð til að vitja ríkmannlegrar gotneskrar hallar í útjaðri borgarinnar. Skuggaleg bygging sem beðið hefur komu hans lengur en þjónarnir, sem hafa allan tímann haldið henni við fægjandi og pússandi spegla og marmara, geta munað. En þeir geta hins vegar ekki fyrir nokkra muni gleymt trylltum veislu­höldunum sem skóku þar gólf og veggi enda­lausar nætur áður en húsbóndinn hvarf út í buskann án skýringa endur fyrir löngu.

Á höfðinu slúttir barðstór svartur hattur sem skyggir á tvílit og rann­sakandi augu. Yfir klæðskera­saumuð svört jakkaföt er kæruleysis­lega tyllt á herðarnar hvítum ullar­frakka sem rennur saman við kókaín­hvíta drífuna sem þyrlast um manninn einsog standi hann í miðri hringiðu sjónvarps eftir útsendingu.

Gesturinn ber með sér dulúð, myrkur og háska, á tálguðum og grann­leitum vöngum hvílir vampír­ískur fölvi og það er einhver óþreyja í svip hans, niðurbæld harka eða ófullnægt hungur. Í stað sálar aðeins frysti­hólf, full af engu. Öll nærvera hans er þrungin ójarðneskum annarleika og þar sem hann stendur einsamall á pallinum og virðir fyrir sér mannlausa stöðina, minnir hann á soltinn úlf að svipast eftir bráð.

Í borginni sem Bowie hataði

Einhvern veginn fram­kallast þessar svip­myndir, óræðar og mystískar, þegar maður hugsar til breið­skífunnar Station to Station sem fagnar 45 ára afmæli þessa dagana, ótrúlegt nokk því að hún virðist vart hafa elst um dag. Upphafs­skref hennar voru ekki tekin í dular­fullri mið-evrópskri borg um hávetur, heldur á sólbökuðum haust­dögum í Los Angeles árið 1975, í borginni sem er safn um gjálífi, innan­tómar glansmyndir og taumlausa sjálfs­dýrkun. Borg sem Bowie hataði einsog pláguna.

Hann var nýkominn til baka til borgarinnar eftir sumar­langa dvöl í eyði­mörkinni í New Mexico við leik í existensíalísku framtíðar­myndinni The Man Who Fell to Earth, sem fjallar um hvernig háþróuð geimvera í mannslíki verður jarðnesku hóglífi og fíkn að bráð. Fram­leiðslan var þyrnum stráð; hann fékk matar­eitrun eftir að hafa drukkið skemmda mjólk og hitinn var lamandi. Fíkn hans var í þokkabót orðin stjórn­laus: Meðan á tökunum stóð kvaðst hafa tekið tíu grömm af kókaíni á dag!

„Ég var jafn tilfinninga­lega firrtur og framandi og persónan sem ég lék. Þetta var frekar áreynslu­laus frammistaða, gott sýnishorn af manni að brotna gjör­samlega niður fyrir framan áhorf­endur,” sagði hann seinna meir.

Á milli taka dundaði hann sér við að skrifa handrit bókar sem átti að vera blanda af eigin minningum og hrein­ræktuðum skáldskap, bútasaums­teppi sýndar og reyndar rimpað saman með geimnál. Handritið nefndist The Return of the Thin White Duke. Hann fékkst líka við að semja tónlist fyrir kvik­myndina, sem hann taldi sig hafa verið ráðinn til að gera, þó að þess væri hvergi getið í samningum hans við fram­leiðendur. Þegar hann uppgötvaði síðan að þeir höfðu ekki áhuga á tónlistinni fauk heiftar­lega í kappann, hann henti lögunum ofan í skúffu og hóf næsta verkefni; að undirbúa nýja plötu, sem síðar fékk heitið Station to Station. Nafnið tengist þó ekki drunga­legum lestar­stöðvum heldur svonefndum stöðvum krossins, þ.e. fjórtán skilgreindum áföngum eða þrepum í þjáningarför Krists frá þeim tíma sem hann var dæmdur til dauða þangað til hann reis upp frá dauðum.

Hvíta fjallið og svarti galdurinn

Bowie rogaðist sjálfur með þungan kross á þessu skeiði. Hann var aðeins 28 ára gamall þegar þetta var, en að niður­lotum kominn líkamlega, tilfinninga­lega og andlega. Hjónaband hans, sem hafði verið svo lengi galopið að það var farið að næða á berangri um þá mörgu sem höfðu haft þar viðkomu, var komið að endalokum. Hann hámaði í sig örvandi efni í gríð og erg sem fyrr segir, til að halda sér vakandi sem lengst – enda kvaðst hann hata svefn í viðtali á þessum tíma – og halda afköstunum í hámarki. Hann svaf lítið sem ekkert langtímum saman, var stundum vakandi marga sólar­hringa að klífa hvíta fjallið og kafa í svarta galdurinn. Að auki var átröskun hans orðin öllum ljós, um tíma lifði hann á einni papriku og mjólkur­fernu á dag og fór niður í 50 kíló að þyngd.

Hann var farinn að upplifa rang­hugmyndir, ofsókna­ræði og ofskynjanir; í viðtali sem birtist við hann í tíma­ritinu Rolling Stone á þessu tímabili var blaða­maður viðstaddur þegar Bowie hélt sig sjá líkama falla af himni ofan og brást við með að draga fyrir gluggann og kveikja örskamma stund á svörtu galdra­kerti. Venju­legur þriðjudagur …

Hann hafði sökkt sér ofan í trúar­grufl og dulspeki, las skrif breska rugludallsins Aleister Crowley í drep, fann samhljóm í talna­speki og hinni gyðinglegu Kaballah-trú, tók Kirlian-ljós­myndir til að kanna breytingar á orku­streymi sínu fyrir og eftir töku eitur­lyfja, og til að bæta gráu ofan á svart daðraði hann við fasískar hugmyndir sem birtust meðal annars í glanna­legum full­yrðingum um að hann gæti hæglega orðið fyrirtaks Hitler. Raunar væri Hitler ein fyrsta rokk­stjarnan …

Dulspeki­áhuginn hafi raunar leitt hann inn í nasísk öngstræti og afkima og hann gaf hverjum sem vildi eintak af bókinni The Occult Reich, sem fjallaði á lítt fræði­legan hátt um dufl nasista við dylhyggjuleg fyrirbæri. Hann teiknaði díabólísk tákn á borð við fimm­hyrning og hið kabbalíska tré lífsins á veggi og gólf heimilis síns og skoðaði allar tölur sem urðu á vegi hans með tilliti til merkingar þeirra samkvæmt túlkun talna­spekinnar. Hann hélt því fram að nornir stælu úr honum sæðinu.

Stórvirki knúið af hvítu dufti

Í emjandi hraðlest á leið í geðrof og hungur­dauða geystist hann inn í upptökuver í september ásamt fríðum flokki hljóðfæra­leikara. Þar fóru fremstir hrynhluti upptöku­sveitarinnar, þeir Carlos Alomar gítar­leikari, Dennis Davis trommu­leikari og George Murray bassa­leikari.

Textarnir skipta mestu máli, sagði Bowie ákveðinn og sýndi þeim laga­hugmyndir sem grunna til að vinna með. Þeir bjuggu síðan í sameiningu til ryþma-grind laganna sem hann klæddi að því loknu með öðrum hljóð­færum og söng. Þessu verki stýrði Bowie í samvinnu við upptöku­stjórann Harry Maslin, sem pródúserað hafði lögin tvö sem Bowie vann með John Lennon fyrir plötuna Young Americans, en hún hafði komið út í byrjun sama árs og slegið rækilega í gegn.

Og þó að heilsufar Bowie virtist í frjálsu falli var engin miskunn hjá meistaranum þegar inn í Cherokee-hljóð­verið í LA var komið. Hann sannaði afdráttar­laust að tilvistar­kreppa þarf ekki að jafngilda sköpunar­kreppu. Gígantísk lyst hans á kólumbíska lyfti­duftinu var óseðjandi og hljóm­sveitin gekk fyrir sama eldsneytinu í upptökum sem fóru fram daga jafnt sem nætur. Þær einkenndust af tilrauna­mennsku og sköpunar­krafti og tónlistar­mennirnir höfðu sjaldan eða aldrei lifað jafn gjöfular stundir í hljóðveri. Fagmennska og einbeiting Bowie virtist óaðfinnanleg. Þeir hafa allir rifjað upp gleðilegar minningar um þessa haustdaga sem Station to Station var í fæðingu. Allir nema Bowie, sem mundi ekkert eftir þeim. Ekkert.

Platan er hins vegar skínandi stórvirki sem býður allri gleymsku birginn. Ein albesta plata Bowie og dægur­tónlistar á 20. öld.

Ákall um ást og merkingu

Kannski er Station to Station ekki alveg saklaus af að vera danteískur könnunar­leiðangur um dekadansinn í undir­heimum og undir­vitund þjakaðrar rokk­stjörnu, en fyrst og fremst sameinar hún þó stórar andstæður áreynslu­laust. Mýkt og hörku, hlýju og kulda, angurværð og kæti, trylling og kyrrð, von og vonleysi, gleði og sorg. Hún er ákall um ást, ákall um upprisu, ákall um æðri leiðsögn, ákall um mennsku og sjálfs­mynd, ákall um merkingu í heimi þar sem framboðið af merkingu er langtum minna en eftir­spurnin. Og auðvitað blekkingarnar: „It’s not the side-effects of the cocaine! I’m thinking that it must be love.”Lyftum glösum! Lyftum þeim hátt! Skál fyrir afmælis­barninu

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár