Dæmdur í 16 ára fangelsi

Arturas Leimontas var rétt í þessu dæmdur í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í sextán ára fang­elsi fyrir mann­dráp.

Dæmdur í 16 ára fangelsi

Arturas Leimontas var rétt í þessu dæmdur í sextán ára fang­elsi fyrir mann­dráp. Dómurinn var kveð­inn upp í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur. 

Arturas var dæmdur fyrir að hafa hrint öðrum manni fram af svölum í Úlf­árs­dal í des­em­ber 2019 með þeim afleið­ingum að mað­ur­inn lést. 

Þegar lög­regla kom á vett­vang þann 8. des­em­ber árið 2019 lá brota­þoli stórslas­aður og með­vit­und­ar­laus fyrir neðan sval­irnar sem honum hafði verið hrint af. Þá var hann fluttur á sjúkra­hús en skömmu síðar úrskurð­aður lát­inn. 

Lög­reglu­menn fóru þá inn í húsið og hittu þar Arturas sem var mjög ölv­aður og með nýlega áverka. Skömmu eftir það brutu lög­reglu­menn sér leið inn í íbúð hans og hand­tóku þar fjóra aðila ásamt honum. 

Við skýrslu­töku hafði komið fram að mikil ólæti og rifr­ildi höfðu heyrst frá íbúð­inni skömmu áður en brota­þoli féll niður af svöl­unum. Arturas og brot­ar­þoli höfðu þá verið að ríf­ast inn í íbúð­inni þar sem Arturas hafði löðr­ungað brota­þola áður en þeir færðu rifr­ildið út á svalir. 

Skömmu síðar heyrðu vitni öskur og skell og eitt vitn­anna sá Arturas standa einan eftir á svöl­unum. 

Réttarmeinarfræðingur taldi slys ólíklegt

Við rann­sókn máls­ins svið­setti lög­regla vett­vang­inn að við­staddri lög­reglu, pró­fessor í véla­verk­fræði, rétta­mein­ar­fræð­ingi og verj­anda kærða. Átta sinnum létu þeir brúðu í líki manns­ins sem lést falla með ýmsum aðferðum úr sömu hæð og yfir jafn hátt hand­rið og sval­irnar á umræddri íbúð til þess að leiða í ljós hvort að mað­ur­inn hefði getað dottið niður sval­irnar.

Nið­ur­stöður rétta­meina­fræð­ings leiddu í ljós að ólík­legt hafi verið að um slys hafi verið að ræða. Annað hvort hafi mað­ur­inn hoppað fram af svöl­unum eða annar aðili hefði komið að máli. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dómsmál

Ógnaði heimilisfólki með heimagerðu sverði
FréttirDómsmál

Ógnaði heim­il­is­fólki með heima­gerðu sverði

Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands dæmdi fyrir skömmu mann fyrir lík­ams­árás, hús­brot og akstur undir áhrifum áfengis. Í lýs­ingum vitna er sagt frá því að mað­ur­inn hafi kýlt heim­il­is­mann sem reyndi að koma í veg fyrir að mað­ur­inn kæmi inn um glugga á hús­inu. Þá er einnig sagt frá því að mað­ur­inn hafi á einum tíma­punkti dregið fram heima­gert sverð á sveiflað því í kringum sig fyrir utan húsið.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár