Sjö alvarlegar tilkynningar hafa borist Lyfjastofnun

Alls hefur verið til­kynnt um 57 til­vik þar sem grunur leikur á um auka­verk­anir í kjöl­far bólu­setn­inga við Covid-19. Tilkynnt hefur verið um sex and­lát en ekk­ert hefur komið fram sem bendir til aug­ljósra tengsla bólu­setn­inga og til­vikanna.

Sjö alvarlegar tilkynningar hafa borist Lyfjastofnun
Rannsókn enn yfir­stand­andi Vonast er til að rann­sókn á auka­verk­unum sem til­kynntar hafa verið eftir bólu­setn­ingar við Covid-19 ljúki á næstu dögum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Lyfja­stofnun hafa borist 57 til­kynn­ingar um grun um auka­verk­anir í kjöl­far bólu­setn­ingar við Covid-19. Af þeim eru sjö alvar­legar og þar af hefur verið til­kynnt um sex and­lát. Í öllum sjö til­vik­unum er um að ræða aldr­aða ein­stak­linga með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma og lang­vinn veik­indi, og ekk­ert hefur komið fram um tengsl milli bólu­setn­ing­ar­innar og atvikanna. Rannsókn emb­ættis land­læknis á umræddum atvikum stendur enn yfir en von­ast er til að stutt sé í nið­ur­stöðu, jafn­vel undir lok þess­arar viku.

Þetta kemur fram í svari emb­ættis land­læknis við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar. Rann­sóknin á auka­verk­unum vegna bólu­setn­inga var hafin 5. jan­úar, eftir að emb­ætti Land­læknis höfðu borist fimm til­kynn­ingar um alvar­legar auka­verk­anir, þar af fjögur and­lát, sem hugs­an­lega kynnu að tengj­ast bólu­setn­ingum með Comirnaty bólu­efni Pfizer og BioNTech lyfja­fyr­ir­tækj­ana. Ekkert hafði komið fram um að beint orsaka­sam­band væri milli bólu­setn­ing­anna og þess­ara alvar­legu atvika en í öllum til­vikum var um að ræða aldr­aða sjúk­linga með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma. Engu að síður ákváðu land­læknir, sótt­varn­ar­læknir og for­stjóri Lyfja­stofn­unar í sam­ein­ingu að láta hefja rann­sókn til að meta hverjar lík­urna séu á tengslum þar á milli.

Hefur ekki áhrif á bólusetningar með bóluefni Moderna

Í til­kynn­ingu frá land­lækn­is­emb­ætt­inu var til­greint að stefnt væri að því að frum­nið­ur­stöður myndu liggja fyrir eftir viku til tíu daga. Var lögð áhersla á að hraða rann­sókn­inni til að nið­ur­stöður lægju fyrir áður en gefa ætti fólki síð­ari skammt af bólu­efn­inu, og jafn­framt að skoðað yrði hvort breyta þyrfti nálgun á bólu­setn­ingum eldri ein­stak­linga.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá land­lækn­is­emb­ætt­inum hefur yfir­stand­andi rann­sókn ekki nein áhrif á bólu­setn­ingar fólks með bólu­efni frá lyfja­fyr­ir­tæk­inu Moderna, sem barst hingað til lands í morgun.

Rannsókn á Landakoti enn í gangi

Þá er rann­sókn land­lækn­is­emb­ætt­is­ins á hópsmiti sem kom upp á Landa­koti á í októ­ber á síð­asta ári  enn í gangi og ekki er hægt að gefa upp hvenær henni mun ljúka sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá emb­ætt­inu. Umræddar tvær rann­sóknir, tengdar Covid-19 far­aldr­inum, eru umfangs­miklar og sagðar í miklum for­gangi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteinsdóttir meðal gesta
InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár