Jóhannes meðhöndlari dæmdur fyrir fjórar nauðganir

Jóhannes Tryggvi Svein­björns­son var í dag dæmdur í fimm ára fang­elsi fyrir að hafa nauðgað fjórum konum sem leit­uðu með­höndl­unar hjá honum. Alls kærðu fimmtán konur Jóhannes fyrir kyn­ferð­is­brot.

Jóhannes meðhöndlari dæmdur fyrir fjórar nauðganir
Dæmdur í fimm ára fang­elsi Jóhannes Tryggvi var dæmdur fyrir að hafa nauðgað fjórum konum sem leit­uðu með­ferðar hjá honum sem með­höndlafa við stoð­kerf­is­vanda.

Jóhannes Tryggvi Svein­björns­son, með­höndl­ari við stoð­kerf­is­vanda, var dæmdur í fimm ára fang­elsi í dag fyrir að hafa nauðgað fjórum konum sem leit­uðu með­ferðar hjá honum á árunum 2009 til 2015. Dómur þess efnis var kveð­inn upp í Hér­aðs­dómi Reykja­ness.

Stundin fjall­aði ítar­lega um Jóhannes Tryggva, kærur og ásak­anir um nauðg­anir og kyn­ferð­is­brot á hendur honum í sumar. Fimmtán konur kærðu Jóhannes til lög­reglu, ein dró kæruna til baka en tíu mál voru látin niður falla. Í umfjöllun Stund­ar­innar stigu fram þrjár konur sem lýstu brotum Jóhann­esar á hendur sér. Mál þeirra allra voru látin niður falla og eru ekki meðal þeirra sem hann er dæmdur fyrir nú.

Flestar höfðu kon­urnar fimmtán svip­aða sögu að segja af brotum Jóhann­esar á hendur þeim, þær hefðu leitað til hans vegna stoð­kerf­is­vanda­mála en hann hefði við með­ferð þeirra brotið gegn þeim með því að snerta kyn­færi þeirra og í flestum til­fellum farið með fingur inn í leggöng þeirra eða enda­þarm. Ein kona, sem Stundin ræddi við í sumar, kærði Jóhannes hins vegar fyrir ítrekuð kyn­ferð­is­brot og nauðgun þegar hún var á ung­lings­aldri, meðal ann­ars í félags­skap við aðra menn. Þá var mál vin­konu þeirrar konu, sem kærði Jóhannes fyrir nauðgun árið 2005, tekið til rann­sóknar að nýju einnig. Mál þeirra voru látin niður falla.

Í ákær­unum sem sak­sókn­ari gaf út á hendur Jóhann­esi og hann hefur nú verið dæmdur fyrir voru brotin öll á svip­aða leið. Var Jóhannes ákærður fyrir nauðgun í mál­unum fjórum með því að hafa haft önnur kyn­ferð­is­mök en sam­ræði við kon­urnar án þeirra sam­þykkis.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Meðhöndlari kærður

„Hann heilaþvoði mig algjörlega“
FréttirMeðhöndlari kærður

„Hann heila­þvoði mig algjör­lega“

Frænka Jóhann­esar Tryggva Svein­björns­sonar kærði hann árið 2018 fyrir ítrekuð kyn­ferðs­brot gegn sér, frá 15 ára aldri og þar til hún var orðin 19 ára. Í skýrslu­tökum lýsir hún því hvernig Jóhannes hafi brotið margoft á henni í félagi við fjölda ann­arra karl­manna og hvernig hann hafi átt frum­kvæði að þeim brotum. Þá ber hún að Jóhannes hafi einnig brotið á henni þegar hann veitti henni hnykk­með­ferð líkt og á annan tug kvenna kærði hann fyrir.
Fann fyrir mikilli sektarkennd vegna hinna kvennanna
FréttirMeðhöndlari kærður

Fann fyrir mik­illi sekt­ar­kennd vegna hinna kvenn­anna

Ragn­hildur Eik Árna­dóttir kærði Jóhannes Tryggva Svein­björns­son fyrir að hafa brotið gegn sér kyn­ferð­is­lega í tvígang. Hún er óánægð með vinnu­brögð lög­reglu við rann­sókn máls­ins og óar við því að Jóhannes sé enn að með­höndla ungar konur. Það að fjöldi kvenna lýsi sams konar brotum af hálfu Jóhann­esar hljóti að eiga að hafa eitt­hvað að segja við máls­með­ferð­ina.
Fjöldi kvenna lýsir ítrekuðum og alvarlegum kynferðisbrotum Jóhannesar
FréttirMeðhöndlari kærður

Fjöldi kvenna lýsir ítrek­uðum og alvar­legum kyn­ferð­is­brotum Jóhann­esar

Fimmtán konur kærðu Jóhannes Tryggva Svein­björns­son fyrir nauðg­anir og önnur kyn­ferð­is­brot sem sam­kvæmt vitn­is­burði áttu sér stað allt frá árinu 2005 og til árs­ins 2017. Yngsta stúlkan var aðeins 14 ára þegar hún kærði Jóhannes. Hann hefur nú verið ákærður fyrir fjórar nauðg­anir. Þrjár kvenn­anna sem kærðu Jóhannes stíga fram í Stund­inni og segja sögu sína. Sjálfur neitar hann að hafa brotið gegn kon­unum og segir þær ljúga.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár