Rósa Gísladóttir hlýtur fyrstu Gerðarverðlaunin

Rósa Gísla­dóttir er fyrsti verð­launa­hafi Gerð­ar­verð­laun­anna, nýrra mynd­list­ar­verð­launa til stuðn­ings högg­mynda­list hér­lendis. Gerð­ar­safn í Kópavogi veitir verð­launin, en þau eru nefnd eftir Gerði Helga­dóttur mynd­höggv­ara, sem safnið er nefnt eftir.

Rósa Gísladóttir hlýtur fyrstu Gerðarverðlaunin

Rósa Gísla­dóttir hlaut Gerð­ar­verð­launin, ný mynd­list­ar­verð­laun sem Gerð­ar­safnið veitir. Verð­launin eru veitt árlega fram­úr­skar­andi mynd­list­ar­manni sem vinnur í skúlp­túr og rým­is­verk. Rósa hlýtur verð­launin fyrir metn­að­ar­fullt og kröft­ugt fram­lag til högg­mynda­listar, en hún nam mynd­list í Þýska­landi, Bret­landi og á Íslandi. Verk hennar hafa verið sýnd hér­lendis og erlendis.

Dóm­nefndin segir eft­ir­far­andi um Rósu: „Verk Rósu eru könnun á geometríu og klass­ískri form­gerð með vís­unum í arki­tektúr og rúss­neskan konstrúkti­visma. Skúlp­t­úrar hennar spila á mörkum þess klass­íska og nútíma­lega jafn­framt í fag­ur­fræði og efn­is­notkun. Verk í við, gifs, ker­amik og gler skapa sam­spil við umhverfi sitt hvort sem það er stað­bundið verk í borg­ar­lands­lagi eða skúlp­t­úrar sem hverf­ast um sýn­ing­ar­rými.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár