Stóra málið er að elska

Kristján Jóhannsson óperu­söngvari er léttur í skapi og hamingju­samur. Hann segist ráðleggja fólki að vera jákvætt og hafa jákvæðnina að leiðar­ljósi og hætta að tuða og kvarta yfir öllu og ráðast á náungann þótt eitthvað í fari annarra fari í taugarnar á því. Þannig geti fólk frekar upplifað hamingjuna.

Kristján við sköpunartólið
Kristján við sköp­un­ar­tólið Hann seg­ist ná bestum flutn­ingi þegar hann er ham­ingju­samur. Mynd: Heiða Helgadóttir

Kristján Jóhannsson óperu­söngvari er spurður hvað hamingjan sé í huga hans. 

„Hamingjan er auðvitað mjög flókið, stórtækt og breytilegt hugtak. Ég held ég tali fyrir hönd flestra þegar ég segi að hamingjan sé mjög djúpstæð og áríðandi. Ég veit til dæmis ekki hvernig ég gæti lifað án hamingjunnar. Ég held að hamingjan sé alger lífs­nauðsyn fyrir alla. Hamingjan getur auðvitað verið misdjúp­stæð og missterk og jafnvel breytileg á milli daga og klukku­stunda en þegar ég er að túlka mína list þá líður mér best þegar ég er hamingju­samastur og það er ekkert sem raun­verulega truflar það. Eins og við vitum þá getur ýmislegt truflað hamingjuna þó það sé ekkert endilega mjög djúpstætt og getur ýmislegt komið upp á. Ég held að maður túlki tónlistina betur eftir því sem manni líður betur og er hamingju­samari. Já, mér finnst það vera jafn­áríðandi, ef ég má vera svona einfaldur, og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Hamingjan

Fjall­göngur veita hamingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finnist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki hamingjan að vera alltaf einhvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregðast við ef það finnur fyrir óhamingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlutina. Fjall­göngur hjálpuðu Jóhönnu Fríðu í kjölfar sambands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem farar­stjóri í aukavinnu.
Hamingjan

„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Friðriks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um árabil var hún skotspónn bekkjar­félaga sinna og upplifði sig eina þótt hún ætti vinkonur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við tilfinninga­doðann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risastórt og ótrúlega ógnvænlegt skref,“ segir Ingileif sem er nú hamingju­samlega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár