Sjúkrabílnum snúið við á Stykkishólmi

Fjöl­skylda Guðlaugs Jóns Bjarna­sonar, eins þeirra sem smit­uð­ust á Landa­koti, hefur verið gagn­rýnin á hvernig staðið var að málum. Til hafði staðið að Guð­laugur fengi pláss á hjúkr­un­ar­heim­ili í Stykk­is­hólmi og var hann fluttur þangað með sjúkra­bíl fimmtu­dag­inn 22. októ­ber. Bílnum var snúið við í Stykk­is­hólmi eftir að upp­lýs­ingar bár­ust um hópsmitið sama dag.

Sjúkrabílnum snúið við á Stykkishólmi

„Mér finnst leið­in­legt að það sé ekki hægt að segja að það hafi verið gerð mis­tök og að þau ætli að skoða það,“ segir Hall­gerður Guð­laugs­dóttir, dóttir Guðlaugs Jóns Bjarna­sonar, um við­brögð stjórn­enda Land­spít­al­ans. Hún segir að fjöl­skyld­unni hafi verið boðið á fund með yfir­mönnum á Landa­koti. Skýr­ingar sem þar voru gefnar hafi verið ófull­nægj­andi að mati fjöl­skyld­unnar, sem veitti því síðan eft­ir­tekt að önnur skýr­ing hafi verið gefin í frétt­unum. „Skýr­ingin var sú að það hafi verið svo lágur þrösk­uldur á því hvort það væru tekin sýni hjá fólki sem er veikt og með ein­kenni sem gætu verið COVID-19. Því hafi svo oft verið tekin sýni sem reynd­ust nei­kvæð. Sem gæti alveg verið rétt. Ef það hefði alltaf verið að taka sýni og bíða eftir nið­ur­stöðum þeirra þá hefði allt stoppað og aldrei verið hægt að útskrifa neinn. Við gátum skilið það, en ekki aðrar skýr­ingar sem okkur voru gefnar.“

Faðir hennar fór því ekki í sýna­töku áður en hann var sendur á Stykk­is­hólm. Annar maður á sömu deild var hins vegar sendur í sýna­töku og var fyrsti sjúk­ling­ur­inn sem greind­ist með COVID-19 á Landa­koti. Nið­ur­stöður sýna­tök­unnar lágu fyrir þegar sjúkra­bíll­inn var að renna í hlað í Stykk­is­hólmi og því var ákveðið að snúa bílnum við. „Allar upp­lýs­ingar sem við fengum voru að það hefði verið þessi sjúk­lingur sem greind­ist jákvæður sama dag og pabbi var útskrif­aður og sendur af stað. Í fréttum sáum við svo að það var starfs­maður sem greind­ist fyrst með COVID-19. Þannig að ég veit ekki hvernig það var.“

Sjúklingar saman í mat

Faðir hennar var einn hinna heppnu og fékk aðeins væg ein­kenni, var rétt hrjúfur í rödd­inni og með háls­bólgu. Við kom­una til Reykja­víkur var hann engu að síður sendur í sýna­töku og var greindur með COVID-19 á föstu­deg­inum og sendur í ein­angrun sem hann losn­aði úr fimmtu­dag­inn 12. nóv­em­ber. 

Aðspurð segir hún að faðir hennar hafi ekki deilt her­bergi með mann­inum sem greind­ist fyrstur með veiruna. Herbergi þeirra hafi ekki einu sinni verið sam­liggj­andi, heldur hvort í sínum enda deild­ar­innar. „Á Landa­koti er lagt upp með að dvölin sé heim­il­is­leg, sem er auð­vitað ynd­is­legt, en þýðir það að fólk fer fram í mat­sal og borðar þar saman. Þá gildir einu hvar stofa manns­ins sem veik­ist er. Fólk var alltaf hvatt til þess að fara fram í mat­sal. Þetta segi ég án þess að vita fyrir víst hvort hinn veiki hafi farið fram í mat­sal, því það eru auð­vitað alltaf ein­hverjir sem treysta sér ekki þangað.“ 

Þá áréttar Hall­gerður að Land­spít­al­inn sé gam­all spít­ali og hús­næðið bjóði ekki upp á mikla aðgrein­ingu. Til að mynda séu ekki sal­erni inni á hverju her­bergi, heldur þrjú eða fjögur á hverri deild. „Mamma er hjúkr­un­ar­fræð­ingur og ég vinn sjálf við umönnun aldr­aðra. Okkur er mikið í mun að kerf­inu sé haldið við. Það er mörgu ábóta­vant. Þess vegna erum við kannski til­bún­ari en margir til að tala um hluti sem mættu vera í lagi. Margir not­endur kerf­is­ins taka bara við því sem að þeim er rétt. Margir myndu kannski vilja svör við spurn­ingum, en vita ekki að þeir eiga rétt á þeim.“ 

Samstaða um að bæta kerfið 

Fjöl­skylda Guðlaugs var í við­tali hjá Vísi um atburða­rás­ina tveimur dögum eftir að hópsmitið kom upp. „Mér fannst mjög leið­in­legt hvernig þessi umræða fór,“ segir Hall­gerður sem sjálf vinnur á hjúk­urn­ar­heim­ili. „Ég upp­lifði að við værum vonda fólkið að gagn­rýna allt æðis­lega starfs­fólkið, sem margir eru sam­starfs­menn okkar.“ Fyrir nokkrum árum síðan var hún sjálf að vinna á Landa­koti og segir að sér sé hlýtt til starfs­fólks­ins þar. Hún hafi verið ánægð að vita af föður sínum í þeirra höndum. Gagn­rýnin hafi alls ekki beinst að starfs­fólki sem ber enga ábyrgð á stöðu spít­al­ans. „Okkar gagn­rýni var beint að stjórn­endum. Við viljum vita hvað gerð­ist á Landa­koti. Auðvitað er þetta allt nýtt og það er eng­inn að segja að þetta sé allt ein­hverjum að kenna sem eigi að hengja fyrir þetta. En það má skoða hvað má betur fara. Í stærri sam­fé­lögum þykir sjálf­sagt að skoða hvað fer úrskeiðis, hver ber ábyrgð og hvað hægt er að læra af því. Hér er eins og það megi ekki því við eigum öll að standa saman. Við getum samt staðið saman og bætt kerfið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sjá meira

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvað gerðist á Landakoti?

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár