Veitir innsýn í daglegt líf listamanna

Elísabet Alma Svendsen rekur list­ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið Listval þar sem hún veitir ráð­gjöf um val og upp­setn­ingu á lista­verkum. Hún veitir lista­mönnum einnig aðgang að Instagram-reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins til að kynna sig, halda staf­rænar vinnu­stofu­heim­sóknir og sýna verkin sín.

Veitir innsýn í daglegt líf listamanna

Þegar Elísabet Alma Svendsen ákvað að stofna Listval fyrir ári leit heim­ur­inn öðru­vísi út. Fyr­ir­tækið, sem hún á og rekur, sér­hæfir sig í því að veita fólki ráð­legg­ingu við að kaupa og setja upp lista­verk. „Fólk veit oft ekki hverju það er að leita að og fer á ranga staði,“ segir hún. „Það ímyndar sér að það sé of dýrt að kaupa lista­verk og hengir þess í stað upp plaköt, en það þarf ekki að vera dýrt að kaupa mynd­list.“

Elísabet útskrif­að­ist úr list­fræði árið 2014 og starf­aði eftir það í gall­eríi. Hún var því með alla til­tæka reynslu og menntun til að stofna Listval. Þegar COVID-19 far­ald­ur­inn brast á setti far­ald­ur­inn hins vegar strik í reikn­ing­inn.

„Ég hafði áður verið að fara í vinnu­stofu­heim­sóknir til lista­manna, taka þær upp og birta á Instagram-reikn­ingi Listvals, en það hætti að vera hægt þegar far­ald­ur­inn skall á. Þá kom þessi hug­mynd til …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár