Lífsins tré í kaffi og súkkulaði

Matur og nor­ræn goða­fræði hafa lengi verið ástríða Oddnýjar Cöru Edwards og hefur hún síð­ast­liðin ár rann­sakað og kynnt sér heil­næma eig­in­leika asks­ins sem í goða­fræð­inni er kall­aður lífs­ins tré. Í raun má nýta alla hluta trés­ins til mat­ar­gerðar og Oddný þróar nú vöru­línu af kaffi, te, súkkulaði og eins konar áka­víti þar sem ask­ur­inn er not­aður sem íblöndu­an­ar­efni.

Lífsins tré í kaffi og súkkulaði

Oddný Cara Edwards hefur búið og starfað í Englandi í nærri tvo ára­tugi og rak um tíma veit­inga­stað sem sér­hæfði sig í nor­rænum mat á suð­ur­strönd Englands. Í dag á hinn goð­sagna­kenndi askur Ygg­dras­ils hug hennar allan en hún stofn­aði nýverið fyr­ir­tækið Öskuhús og þróar undir merkjum þess mat­vörur unnar úr aski.

Eiginleikar á við túrmerik

„Það er kannski ekki að undra að ask­ur­inn er kall­aður lífs­ins tré enda hægt að nýta í raun alla hluta trés­ins til mat­ar­gerðar. Matur og nor­ræn goða­fræði hafa lengi verið mín ástríða og ég hef rann­sakað askinn heil­mikið. Hann inni­heldur mörg heil­næm efni og mætti helst líkja honum við túr­merik. Hægt er að leggja lauf­blöðin í heitt vatn til að gera te, þurrka ræt­urnar, fræin, lauf­blöðin og börk­inn og nota olíu af trénu. Ég hef prófað að setja fræin í súr og notað eins og súrar gúrkur og notað börk­inn til að reykja mat. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa grein.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár