Ofbeldi eykst en innbrotum fækkar

Það sem af er ári hafa lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu borist tólf pró­sent fleiri til­kynn­ingar um heim­il­is­of­beldi en bár­ust að með­al­tali á sama tíma­bili síð­ustu þrjú ár.

Ofbeldi eykst en innbrotum fækkar
Til­kynn­ingum um ofbeldi fjölgar Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fékk fleiri til­kynn­ingar um ofbeld­is­brot og kyn­ferð­is­brot í sept­em­ber en í ágúst. Mynd: Shutterstock

Ofbeld­is­brotum sem til­kynnt hafa verið til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fjölg­aði í sept­em­ber frá ágúst­mán­uði. Álíka margar til­kynn­ingar um heim­il­is­of­beldi bár­ust þessa tvo mán­uði en heim­ilsof­beld­is­málum hefur fjölgað veru­lega það sem af er ári. Þá voru framin fleiri kyn­ferð­is­brot í sept­em­ber en í ágúst en fjórtán slík brot voru til­kynnt.

Þetta kemur fram í mán­að­ar­skýrslu Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þar kemur fram að til­kynn­ingar um mann­dráp og lík­ams­meið­ingar voru 100 tals­ins í síð­asta mán­uði, borið saman við 91 til­kynn­ingu í ágúst. Þá voru sem fyrr segir til­kynnt fjórtán kyn­ferð­is­brot í sept­em­ber en átta í ágúst. Það eru þó 47 pró­sent færri til­kynn­ingar um kyn­ferð­is­brot það sem af er ári en bár­ust að með­al­tali á sama tíma­bili síð­ast­liðin þrjú ár þar á undan.

Í heild fækk­aði til­kynn­ingum um hegn­ing­ar­laga­brot milli mán­aða en alls voru til­kynnt 768 hegn­ing­ar­laga­brot í síð­asta mán­uði, 56 færr en í mán­uð­inum á undan. Til­kynn­ingum um þjófn­aði, inn­brot, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár