Þorsteinn Már tekur við framkvæmdastjórn og prókúru samstæðu Samherja í kjölfar eigendaskipta til barnanna

Þor­steinn Már Bald­vins­sonar tók aftur form­lega við fram­kvæmda­stjóra­stöðu og pró­kúru Samherja og Samherja Holding í kringum 20. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Hann er því áfram æðsti stjórn­andi Sam­stæð­unnar þrátt fyrir Namib­íu­málið og eigna­til­færslu á hluta­bréfum í Samherja til barna sinna.

Þorsteinn Már tekur við framkvæmdastjórn og prókúru  samstæðu Samherja í kjölfar eigendaskipta til barnanna
Aftur tek­inn við pró­kúr­unum Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri og fyrr­ver­andi stærsti hlut­hafi félags­ins, er aftur tek­inn við pró­kúr­unum í þeim félögum sem mynda Sam­herj­a­sam­stæð­una. Þor­steinn sést hér í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í byrjun sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja sem í gegnum árin hefur verið stærsti hlut­hafi útgerð­ar­innar ásamt Krist­jáni Vil­helms­syni, er tek­inn við pró­kúru og fram­kvæmda­stjórn þeirra tveggja félaga sem mynda Sam­herj­a­sam­stæð­una.

Breyt­ingin, sem kemur fram í upp­lýs­ingum frá Rík­is­skatta­stjóra 19. og 22. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, á sér stað í kjöl­far þess að þeir fram­seldu Samherja yfir til afkom­enda sinna.

Orðinn pró­kúru­hafi allrar sam­stæð­unnar aftur

Þor­steinn er því aftur orð­inn fram­kvæmda­stjóri og pró­kúru­hafi fyrir Samherja hf. og Samherja Holding ehf.

Munurinn á þessum tveimur félögum er sá að Samherji hf. heldur utan um eign­ar­haldið á starf­sem­inni á Íslandi og í Færeyjum á meðan Samherji Holding heldur utan um hluta­bréf í Eim­skipa­fé­lagi Íslands og eignum Samherja erlendis, meðal ann­ars á Kypur og í Namibíu.

Þor­steinn Már lét af störfum tíma­bundið sem for­stjóri og pró­kúru­hafi Samherja og Samherja Holding í kjöl­far þess að Kveikur, Stundin og Al Jazeera sögðu frá mútu­greiðslum Samherja í Namibíu, til …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár