Fjarlægðu strax vegglistaverk með ákalli um stjórnarskrá

Nýtt vegg­lista­verk nærri Sjáv­ar­út­vegs­hús­inu með ákalli um nýja stjórn­ar­skrá var fjar­lægt í flýti, þrátt fyrir að annað veggjakrot hafi lengi verið látið standa. Rekstr­ar­fé­lag Stjórn­ar­ráðs­ins er talið hafa látið fjar­lægja það.

Fjarlægðu strax vegglistaverk með ákalli um stjórnarskrá
Lista­verkið fjar­lægt Allt-af háþrýsti­þvoði vegg­inn að beiðni Rekstr­ar­fé­lags Stjórn­ar­ráðs­ins. Mynd: Stjórnarskrárfélagið

Aðeins tók tvo daga að hreinsa nýtt vegg­lista­verk frá Skilta­málun Reykja­víkur af vegg við bílaplan á Skúla­götu, sem lengi hefur verið und­ir­lagður veggjakroti.

Lista­verkið var stað­sett við bílaplan sem er á lóð í eigu rík­is­ins á milli Sölv­hóls­götu og Skúla­götu, við hlið Sjáv­ar­út­vegs­húss­ins sem hýsir atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið, þar sem sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ann Kristján Þór Júl­í­us­son er til húsa ásamt ráðu­neyti sínu. 

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var verkið fjar­lægt að beiðni Rekstr­ar­fé­lags Stjórn­ar­ráðs­ins.

Listaverk með ákall

Stjórn­ar­skrár­fé­lagið birti um helg­ina mynd og mynd­band af nýju vegg­lista­verki með áletr­un­inni: „Hvar er nýja stjórn­ar­skráin?“ 

„Þetta magn­aða lista­verk hefur risið á vegg við Sjáv­ar­út­vegs­húsið, sem árum saman hefur verið útkrot­aður og til lít­illar prýði,“ sagði í stöðu­færslu félags­ins. 

Lista­verkið vakti nokkra athygli á sam­fé­lags­miðlum um helg­ina. Það var Skilta­málun Reykja­víkur sem stóð að gerð lista­verks­ins. Ákallið kall­ast á við her­ferð sem farið hefur fram á sam­fé­lags­miðlum undir myllu­merk­inu #hvar, þar sem stjórn­völd eru gagn­rýnd fyrir að hafa ekki farið eftir nið­ur­stöðum þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu árið 2012 um að til­lögur stjórn­laga­ráðs yrðu grund­völlur nýrrar stjórn­ar­skrár.

Ákall um stjórn­ar­skráHöfundur verks­ins er reyndur í veggskreyt­ingum.

Listaverk eða skemmdarverk?

Upp­lýs­inga­full­trúi hjá Reykja­vík­ur­borg kann­að­ist ekki við að borgin hefði látið fjar­lægja verkið, þegar Stundin hafði sam­band. Lóðin, þar sem vegg­ur­inn liggur, er í eigu rík­is­ins. Hjá Rík­is­eignum náð­ist sam­band við umsjón­ar­mann ann­arrar fast­eignar. „Ég sá þetta bara í blöð­unum. Mér fannst þetta bara töff. Ég er sak­laus,“ sagði hann. Hann taldi þó lík­legt að farið hefði verið með lista­verkið eins og annað veggjakrot, það hefði verið fjar­lægt til þess að forð­ast að slíkt athæfi myndi dreifa sér.

Aðgerðin var fram­kvæmd af háþrýsti­þvotta­fé­lag­inu Allt-af ehf, sem skráð er í Baugakór í Kópavogi. Aðspurður hver hefði farið fram á að lista­verkið yrði fjar­lægt sagð­ist for­svars­maður félags­ins hafa fengið beiðni frá Rekstr­ar­fé­lagi Stjórn­ar­ráðs­ins fyrr í dag. „Ja, þetta er svo sem ekki lista­verk. Þetta hljóta að vera skemmd­ar­verk, að krota á eigur ann­arra,“ sagði hann. 

Þá sagði for­svars­mað­ur­inn að veggjakrot hefði áður verið fjar­lægt af sama vegg.

Vegg­ur­inn fyrirHér sést vegg­ur­inn með skreyt­ingum áður en verkið var unnið.

Tók upp hjá sjálfum sér að gera verkið

Narfi Þor­steins­son, hjá Skilta­málun Reykja­víkur, sem hefur mikla reynslu af skilta­málun, skreyt­ingum, list- og aug­lýs­inga­málun og aug­lýs­inga­teikn­ingum, sagð­ist í sam­tali við Stundina ekki hafa gert lista­verkið að und­ir­lagi neins ann­ars. Hann hafi ein­göngu viljað sýna sam­stöðu. Narfi fylgd­ist með í dag þegar lista­verkið var fjar­lægt. 

Myndir sýna að fyrir gerð vegg­lista­verks­ins höfuð svokölluð „tögg“ verið lang­dvölum á veggnum, merki til­tek­inna veggjakrot­ara.

Rekstr­ar­fé­lag Stjórn­ar­ráðs­ins, sem stað­sett er í Skugga­sundi og heitir nú heitir Umbra - þjon­ustu­mið­stöð Stjórn­ar­ráðs­ins, svarar ekki í síma eftir klukkan fjögur. 

Rekstr­ar­fé­lagið heyrir undir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið. Hlutverk félags­ins, sam­kvæmt vef­síðu þess, er að „gera ráðu­neyt­unum kleift að ein­beita sér að kjarna­starf­semi sinni“. Þá er fram­tíð­ar­sýn félags­ins til­greind sem svo að það „bindi ráðu­neytin saman í eina heild með fram­úr­skar­andi þjón­ustu og fjöl­breyttum lausnum.“

Ekki liggur hins vegar end­an­lega fyrir stað­fest­ing á því hver fór fram á að lista­verkið við hlið Sjáv­ar­út­vegs­húss­ins með ákalli um nýja stjórn­ar­skrá yrði fjar­lægt. Fyr­ir­spurn til félags­ins með tölvu­pósti hefur ekki verið svarað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnarskrármálið

„Ég er oft á milli steins og sleggju þegar kemur að viðkvæmum málum“
FréttirStjórnarskrármálið

„Ég er oft á milli steins og sleggju þegar kemur að við­kvæmum málum“

Þor­steinn Pálm­ars­son, eig­andi Allt-af ehf, fyr­ir­tæk­is­ins sem fjar­lægði vegg­lista­verkið „Hvar er nýja stjórn­ar­skráin?“ seg­ist oft upp­lifa sig á milli steins og sleggju í deilu­málum milli þeirra sem mála á veggi og þeirra sem biðja um að verkin verði fjar­lægð. Hann vann við að hreinsa til eftir mót­mæli í Bús­á­halda­bylt­ing­unni.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár