Varar við verðtryggðum húsnæðislánum

Ólafur Mar­geirs­son hag­fræð­ingur varar við verð­trygg­ing­unni og áhrifum hennar á fjár­hags­legt heil­brigði. „Reynið sem allra allra mest að taka óverð­tryggð lán,“ segir hann.

Varar við verðtryggðum húsnæðislánum
Reykja­vík Mynd: Shutterstock

Ólafur Mar­geirs­son hag­fræð­ingur varar ein­dregið við verð­tryggðum hús­næð­is­lánum. Samkvæmt útreikn­ingum hans eru verð­tryggðu lánin óhag­stæð­ari. Um 67% allra hús­næð­is­lána eru verð­tryggð, þótt mikil til­færsla hafi verið yfir í óverð­tryggð lán und­an­farið.

Ólafur hefur afger­andi ráð­egg­ingar að færa lán­tak­endum. „Fyrir ykkar eigin fjár­hags­lega heil­brigði: reynið sem allra allra mest að taka óverð­tryggð lán frekar en verð­tryggð,“ segir hann á Facebook-síðu sinni.

Hærri vextir verðtryggðra lána

Samkvæmt grein­ingu Ólafs hafa raun­vextir óverð­tryggðra fast­eigna­lána bank­anna verið 4,4% frá alda­mótum, en raun­vextir verð­tryggðra lána verið 4,6%. Þetta segir þó ekki alla sög­una því nið­ur­staðan er mjög mis­mun­andi eftir tíma­bilum. Þannig voru raun­vextir óverð­tryggðra lána 10,4% árið 2007, en verð­tryggðra lána 5,2% sama ár. Á móti voru óverð­tryggðu lánin með raun­vexti á bil­inu 0,7% til 2,2% árin 2009 til 2012, sömu ár og verð­tryggðu lánin voru með 3,8% til 5,6% raun­vexti.

„Sé reiknað aftur til árs­ins 2001 hafa raun­vextir óverð­tryggðra lána að jafn­aði verið lægri en raun­vextir verð­tryggðra lána, sama hvað allar hag­fræði­kenn­ingar segja um að því eigi að vera öfugt farið. Þá er kostn­aður af slíkum lánum vit­an­lega fyr­ir­sjá­an­legri þar sem fylgni kostn­aðar af óverð­tryggðum lánum er óháð­ari verð­bólgu en kostn­aður verð­tryggðra lána,“ segir Ólafur. 

Hann bendir á að greiðslu­byrðin af verð­tryggðum lánum sé lægri en kostn­að­ur­inn af þeim í upp­hafi láns­tím­ans. „Skilj­an­lega vill fólk taka slík lán og reynir að gera það.“

Munur á lánumÓverð­tryggð lán voru mun óhag­stæð­ari þegar vextir hækk­uðu veru­lega árin fyrir efna­hags­hrunið.

Vaxandi verðbólga

Und­an­farin miss­eri hafa flestir lán­tak­endur tekið óverð­tryggð lán og stór hluti af því er end­ur­fjár­mögnun úr verð­tryggðum lánum. Árið 2010 voru aðeins 10% hús­næð­is­lána bank­anna óverð­tryggð, en nú eru þau ríf­lega þriðj­ungur lána.

Verð­bólga hefur farið vax­andi á árinu vegna geng­is­falls krón­unnar við óvissu og brott­hvarf ferða­manna í Covid-far­aldr­inum. Verð­bólgu­mark­mið Seðla­bank­ans er 2,5% en árs­verð­bólga mælist nú 3,5%. Hún var aðeins 1,7% í jan­úar. Þetta þýðir að 40 milljón króna verð­tryggt fast­eigna­lán hefur hækkað um 1,4 millj­ónir króna á einu ári, en greiðslu­byrðin af óverð­tryggðu láni er hærri sem nemur um 240 þús­und krónum á ári. Spáð er enn auk­inni verð­bólgu út árið. Greining Lands­bank­ans gerir ráð fyrir að hún verði komin upp í 3,9% í des­em­ber.

Helsta áhættan fyrir þá sem taka óverð­tryggð hús­næð­is­lán er að Seðla­bank­inn og bank­arnir hækki vexti og þá hækki greiðslu­byrði meira en af verð­tryggðum lánum, en meg­in­vextir Seðla­bank­ans eru nú í sögu­legu lág­marki, aðeins 1%.

Ósammála því að ungt fólk eigi að taka verðtryggt

Ólafur Mar­geirs­sonDoktor í hag­fræði segir varað erlendis við lánum eins og verð­tryggðu fast­eigna­lán­unum.

Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri viðr­aði þau sjón­ar­mið á fundi um fjár­mála­stöð­ug­leika á dög­unum að ungt fólk ætti að frekar að taka verð­tryggð lán, en eldra fólk. „Verð­trygg­ing og breyti­legir vextir eru í raun speg­il­mynd af hvoru öðru að ein­hverju leyti. Og það má alveg halda því fram að hvernig lána­form fólk er með ætti að ráð­ast af aldri og stöðu á vinnu­mark­aði. Það má alveg færa rök fyrir því að ungt fólk ætti frekar að taka verð­tryggð lán, sem er að byrja að kaupa sér heim­ili,“ sagði hann.

Ólafur seg­ist í sam­tali við Stundina hins vegar vara við verð­tryggðu lán­unum almennt. „Já, lang­flestir lán­takar ættu að forð­ast verð­tryggð lán, óháð aldri. Verð­tryggð lán eru dæmi um lán með nei­kvæðri afborgun, á ensku negative amortization, og það er margoft búið að vara við slíkum lánum utan Íslands, bæði fyrir lán­tak­ann sjálfan, á grund­velli neyt­enda­verndar, og út frá sjón­ar­mið­inum um að við­halda fjár­mála­legum stöð­ug­leika. Lán með nei­kvæðri afborgun, til dæmis verð­tryggð lán, eru í raun aðeins fyrir mjög agaða fjár­festa sem eru fjár­hags­lega vel að sér og með óreglu­legar tekjur.“

Ólafur segir að búast megi við því að óverð­tryggð lán verði áfram álit­legur kostur. 

„Vextir óverð­tryggðra lána ættu því að vera frekar stöðugir næstu miss­erin“

„Miðað við árferði sem má búast við: Vextir á óverð­tryggðum lánum sveifl­ast í takt við stýri­vexti Seðla­bank­ans en ekki í takt við verð­bólgu. Þannig er fylgni heild­ar­kostn­aðar verð­tryggðra lána, það er summa vaxta og verð­bóta, og verð­bólgu nær algjör meðan fylgnin er veik­ari milli heild­ar­kostn­aðar óverð­tryggðra lána og verð­bólgu, ein­fald­lega vegna þess að vaxta­kostn­aður óverð­tryggðra lána fylgir fyrst og fremst stýri­vöxtum Seðla­bank­ans og stýri­vextir Seðla­bank­ans stjórn­ast helst af verð­bólgu­vænt­ingum og gengi hag­kerf­is­ins en ekki núver­andi verð­bólgu. Seðla­bank­inn benti á í nýj­ustu Pen­inga­málum að sumir mark­aðs­að­ilar búist ekki við stýri­vaxta­hækk­unum frá Seðla­bank­anum fyrr en á síð­ari hluta árs­ins 2022 vegna slakans í hag­kerf­inu, jafn­vel þótt verð­bólga gæti látið á sér kræla til skamms tíma vegna geng­is­veik­ingar krón­unnar. Vextir óverð­tryggðra lána ættu því að vera frekar stöðugir næstu miss­erin gangi þær vænt­ingar eftir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár